Fréttablaðið


Fréttablaðið - 07.11.2015, Qupperneq 108

Fréttablaðið - 07.11.2015, Qupperneq 108
TónlisT John Grant kom fram með Sin- fóníuhljómsveit Íslands ásamt rytmasveit. Stjórnandi Christopher George. HHHHH Ég var einu sinni á rokkfestívali í Belgíu þar sem Marilyn Manson kom fram. Þegar hann steig fram á sviðið var leikin byrjunin úr hæga kaflanum í Es-dúr tríóinu eftir Schubert. Af hverju var ekki ljóst. Þetta er „íkonísk“ tónlist, hún hefur heyrst í mörgum bíó- myndum, t.d. í vampírumyndinni Hunger. Manson hefur gefið sig út fyrir að vera djöfladýrkandi, svo kannski var það tengingin. Ekki er heldur á hreinu hvers vegna John Grant notaði prelúdíu í cís-moll opus 3 nr. 2 eftir Rakman- ínoff sem inngang að einu laginu sínu. Hann kom fram með rytma- sveit og Sinfóníuhljómsveit Íslands á fimmtudagskvöldið á Airwaves. Rétt eins og með Schubert þá er pre- lúdían mjög þekkt. Hún er drunga- leg, jafnvel spúkí. Þetta er einhver þunglyndislegasta tónlist sem er til. En drunginn var í skemmtilegri mótsögn við teknókenndan hama- ganginn sem tók við. Fram að þessu höfðu tónleikarnir verið býsna rólegir, en nú kvað við annan tón. Þetta var líflegur gerningur. Teknóið var grípandi og tilfinningastigið magnaðist upp úr öllu valdi með aðkomu sinfóníuhljómsveitarinnar. Tónlist Grants var falleg. Laglín- urnar voru einlægar og blátt áfram, þær komu greinilega frá hjartanu. Ýmislegt í textanum var nokkuð groddalegt, og það var í sérkenni- legri andstöðu við hjartnæmar melódíurnar, sem voru allsráðandi á undan Rakmanínoff. En að öðru leyti voru lögin fremur hefðbundin, það var ekkert frumlegt eða óvana- legt við þau. Það sem „gerði“ tónleikana var hversu vel tónlistin var flutt. Mjúk baritonrödd Grants var ákaflega fögur, og hún var alltaf tandurhrein. Rytmasveitin var líka pottþétt, og leikur Sinfóníunnar var stórbrotinn. Útsetningarnar voru hóflegar, aðal- lega liggjandi hljómar sem juku á ástríðukennda stemninguna. Sumt minnti jafnvel á kvikmyndatónlist John Barry heitins. Það var eitt- hvað mjög sjarmerandi við það allt. Grant sjálfur, sem hefur búið á Íslandi í nokkrun tíma, virðist vera viðkunnanlegur náungi. Hann er HIV-smitaður og hefur háð baráttu við Bakkus og haft betur. Það er eitthvað brothætt og mannlegt við hann sem gerir bæði hann og tónlist hans aðlaðandi. Við- tökurnar á tónleikunum í Eldborg voru í samræmi við það. Fólk bókstaflega æpti af hrifningu og undirritaður var þar á meðal. Jónas Sen niðursTaða Stórgóðir tónleikar Johns Grant og Sinfóníuhljómsveit- ar Íslands. Tónlistin var heillandi, flutningurinn framúrskarandi. Stórbrotinn og ástríðukenndur Bækur Gildran HHHHH Höfundur Lilja Sigurðardóttir JPV Oddi Kápuhönnun Halla Sigga K 344 bls. Íslenskir spennusagnahöfundar hafa notið töluverðrar velgengni á erlendri grund undanfarin ár og þessi velgengni hefur orðið til þess að fleiri og fleiri rithöfundar hafa árætt að leggja fyrir sig spennu- sagnaskrif sem þóttu varla teljast til alvöru ritstarfa hérlendis lengi framanaf. Þeir og þær hafa fengið tækifæri til að þjálfa sig í þessari listgrein sem er ansi harður hús- bóndi þar sem kröfuharðir les- endur krefjast að minnsta kosti einnar bókar á ári og gamalla og gróinna hugmynda í stöðugt nýjum búningum. Lilja Sigurðardóttir er einn þeirra íslensku höfunda sem hefur fengið útgáfusamninga við erlend fyrir- tæki en þriðja bók hennar, Gildran, kom út á dögunum. Sagan gerist eldgosaveturinn 2010-2011 og fjallar um Sonju, sem eftir erfiðan skilnað stendur uppi eignalaus og án forræðis yfir syni sínum. Hún skuldar stórfé sem aðeins býðst að greiða á einn veg: með því að smygla kókaíni til landsins. Hún lítur á þessa iðju sem neyðarúr- ræði rétt á meðan hún kemur undir sig fótunum en smyglhringurinn sem hefur leitt hana í þessa gildru hefur annað í huga. Inn í þessa sögu fléttast svo ástarsamband Sonju við bankakonuna Öglu, sem milli stormasamra ástarfunda situr í yfir- heyrslum hjá sérstökum saksókn- ara, og saga tollvarðarins Braga sem þrjóskast við að fara á eftirlaun þar sem konan hans er komin á elli- heimili og hann hefur að engu að hverfa þegar hann kemur heim. Sagan er spennandi og söguþráð- urinn vel ofinn, persónusköpun er skýr og vel tekst að byggja upp og halda spennu. Einkalíf persóna er oft miðlægt í glæpasögum og í þessu tilfelli er skemmtileg til- breyting að fá að skyggnast inn í ástarsamband lesbískra elskenda, einkum þar sem önnur er hikandi við að gangast við tilfinningum sínum og er því sífellt að biðja hina um að segja sér „lesbíuleyndarmál“ sem eru ýmist fyndnar klisjur eða staðreyndir sem ýmist koma þeirri forvitnu á óvart eða setja hana úr jafnvægi. Helsti galli bókarinnar (og það má vissulega deila um hvort það er galli) er að hún klárast ekki alveg eins og formúlan segir til um. Les- andinn býr sig undir að allir þræðir sögunnar komi saman í lokin þar sem lausn á einu vandamáli hrindir af stað keðjuverkun sem leysir öll hin eins og á vanda til að gerast í glæpasögum af því tagi þar sem sjónarhornið er ekki hjá lögregl- unni (það er ein lögga nafngreind í sögunni og hún kemur tvisvar við sögu í stutta stund) heldur hjá glæpamanninum sem hefur samúð lesandans óskipta. Endirinn er að mörgu leyti ófullnægjandi og þræðirnir koma ekki saman eins og á þann hátt sem lesandinn óskar sér. Í sögu þar sem ótrúlegar en vissulega haganlega fléttaðar tilvilj- anir ráða stundum framvindunni er næstum eins og ekki hafi gefist nægur tími til að ganga frá lausum endum og hnýta þá saman. En svo má aftur hrósa höfundi fyrir að leika sér með hefðina og láta ekki kröfur fastsetts forms og ímynd- aðra lesenda stjórna sköpun sinni og skrifum. Og þetta truflar auðvitað ekki ánægjuna af því að lesa góða glæpa- sögu. Brynhildur Björnsdóttir niðursTaða Skemmtileg og spennandi glæpasaga og endirinn kemur á óvart. Kókaínsmygl og lesbíuleyndarmál Bæjarlistamaður Seltjarnarness 2016 Menningarnefnd Seltjarnarness auglýsir eftir umsóknum frá listamönnum búsettum á Seltjarnarnesi og/eða rökstuddum ábendingum um nafnbótina Bæjarlistamaður Seltjarnarness 2016. Bæjarlistamaður Seltjarnarness skal vera reiðubúinn að vinna með menningarsviði bæjarins að því að efla áhuga á list og listsköpun á Seltjarnarnesi og taka þátt í viðburðum bæjarins með það að leiðarljósi. Í umsókninni skulu koma fram ítarlegar upplýsingar um náms- og starfsferil viðkomandi og hugmyndir um á hvern hátt nýta eigi styrkinn við listsköpun. Nafnbótinni fylgir starfsstyrkur að upphæð einni milljón króna. Umsækjendur eru beðnir um að haga umsóknum í samræmi við reglur um Bæjarlistamann sem finna má á heimasíðu bæjarins www.seltjarnarnes.is. Umsóknum og/eða ábendingum skal skilað á Bæjarskrifstofur Seltjarnarness, Austurströnd 2, 170 Seltjarnarnesi merkt: „Bæjarlistamaður 2016“ eða á netfangið soffia.karlsdottir@seltjarnarnes.is fyrir 25. nóvember. Menningarnefnd Seltjarnarness www.seltjarnarnes.is „Tónlist Grants var falleg. Laglínurnar voru einlægar og blátt áfram og þær komu greinilega frá hjartanu,“ segir í dómnum. Mynd/ALexAnder MATuKnO 7 . n ó v e m B e r 2 0 1 5 l a u G a r D a G u r64 m e n n i n G ∙ F r É T T a B l a ð i ð menning
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.