Fréttablaðið - 07.11.2017, Blaðsíða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —2 6 2 . T Ö L U B L A Ð 1 7 . Á R G A N G U R Þ R I Ð J U D A G U R 7 . N Ó V E M B E R 2 0 1 7
FRÍTT
Fréttablaðið í dag
SKOÐUN Hanna
Katrín Friðriksson
vill hnykkja enn
frekar á sam-
félagslegri ábyrgð
lífeyrissjóða. 14
SPORT Heimir
Guðjónsson,
flytur til
Færeyja og
tekur við liði
HB. 16
MENNING Bæði léttleiki og
dramatík verða í sal Tónlistar-
skólans í Garðabæ í kvöld. 22
LÍFIÐ Laddi opnar myndlistar-
sýningu á fimmtudaginn. 30
PLÚS 2 SÉRBLÖÐ FÓLK BÍLAR
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015 MIÐASALA Á MIÐI.IS
,,Salurinn EMJAÐI úr hlátri”
,,Mér er illt í maganum eftir
allan þennan hlátur”
FANGELSISMÁL „Á Sogni eru fanga-
verðir valdafígúrur sem halda sig
að mestu á bak við luktar dyr,“
segir Guðmundur Ingi Þóroddsson,
formaður Afstöðu, félags fanga, í
aðsendri grein í blaðinu í dag. Þar
deilir hann mjög á fangelsið Sogn
sem hann segir að ætti ekki að falla
undir opið fangelsi.
Hann lýsir gjá á milli starfsfólks
og vistmanna og segir eftirlitið of
mikið, regluverk íþyngjandi og
pappírsvinnu í tengslum við ein-
földustu beiðnir óþarflega flókna.
– ósk / sjá síðu 15
Gagnrýnir Sogn
Mikil fundahöld voru hjá öllum stjórnmálaflokkum í gær og fram á kvöld eftir að upp úr slitnaði í tilraun Katrínar Jakobsdóttur, formanns VG, til þess að mynda stjórn með Samfylkingu,
Pírötum og Framsókn. Þessi mynd var tekin síðdegis í gær þegar Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, var á hraðferð inn á þingflokksfund í Valhöll. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTONBRINK
Guðmundir Ingi
Þóroddson, for-
maður Afstöðu
Vandséð stjórn án Sjálfstæðisflokksins
Katrínu Jakobsdóttur tókst ekki að mynda stjórn Vinstri-grænna, Samfylkingar, Framsóknar og Pírata. Sjálfstæðismönnum sem blaðið
ræddi við hugnast best þriggja flokka ríkisstjórn með Vinstri-grænum og Framsóknarflokki, en slík stjórn gæti reynst Katrínu erfið.
VÍSINDI Ekki voru til staðar tilskilin
leyfi fyrir rannsóknum sem gerðar
voru á sjúklingi á Landspítala Íslands
í tilefni af skrifum á vísindagrein
sem birt var í læknatímaritinu The
Lancet. Þetta er meðal fjölmargra
aðfinnslna í niðurstöðum rannsókn-
arnefndar um aðkomu starfsmanna
Háskóla Íslands og Landspítalans
að Plastbarkamálinu.
Í niðurstöðu nefndarinnar
er einnig rakið hvernig ítalski
skurðlæknirinn Paolo Macc-
hiarini hafi fengið íslenskan
skurðlækni, Tómas Guðbjarts-
son, til að breyta tilvís-
unarvottorði sínu fyrir
sjúkling í málinu. Að
mati nefndarinnar var
orðalag vottorðsins
óvarlegt og bauð upp á mistúlkun.
Í athugasemdum sínum til nefndar-
innar segist Tómas hafa verið beittur
blekkingum.
Í skýrslunni kemur einnig fram að
víða hafi pottur verið brotinn í mál-
inu hér á landi. Ekki er hins vegar
talið, eða í það minnsta ósannað, að
það hafi verið gert af ásetningi.
Nefndin leggur til að heimildir
vísindasiðanefndar til að grípa
inn í óleyfisrannsóknir verði
auknar og að nefndin gefi út
leiðbeinandi álit vegna rann-
sókna. Að auki er lagt til að
ekkju sjúklingsins verði
veitt fjárhagsaðstoð til
að sækja mögulegan
rétt sinn.
– jóe / sjá síðu 6
Víða pottur brotinn
í Plastbarkamálinu
Tómas Guðbjartsson
STJÓRNMÁL Eftir atburði gærdags-
ins virðist ljóst að meirihlutastjórn
verður ekki mynduð án Sjálfstæðis-
flokks. Katrín Jakobsdóttir skilaði
stjórnarmyndunarumboðinu á
Bessastöðum síðdegis í gær eftir að
Framsóknarmenn slitu stjórnar-
myndunarviðræðum sem staðið
hafa yfir undanfarna daga.
Í samtali við fjölmiðla á Bessa-
stöðum gaf Katrín Jakobsdóttir til
kynna að ekki væri grundvöllur til
að taka Flokk fólksins og Viðreisn
inn í þær formlegu viðræður sem
slitið var í gær, í stað Framsóknar-
flokksins.
Þeim Sjálfstæðismönnum sem
Fréttablaðið hefur rætt við lýst best
á myndun þriggja flokka stjórnar
með Vinstri grænum og annað hvort
Framsóknarflokki eða Samfylkingu.
Vinstri græn eru sögð þrýsta mjög
á síðari kostinn, enda verði stjórn
með Sjálfstæðisflokki og Fram-
sóknarflokki Katrínu erfið vegna
baklandsins og auðveldara verði að
hafa Samfylkinguna með. Samfylk-
ingin útilokar ekki lengur samstarf
með Sjálfstæðisflokki samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins. Flokkur-
inn er þó enn tregur í taumi en lítur
með jákvæðari augum á þátttöku ef
Viðreisn yrði tekin að borðinu.
Stjórn Sjálfstæðisflokks, Vinstri
grænna og Samfylkingar hefði
34 manna meirihluta á þingi; 38
manna meirihluta ef Viðreisn fengi
að fljóta með.
Enginn þeirra sem Fréttablaðið
ræddi við í gær úr röðum þessara
flokka útilokaði að þessi stjórn gæti
orðið að veruleika, þótt Sjálfstæðis-
mönnum hugnist þessi kostur, að
sögn, ekki eins vel og þriggja flokka
stjórn. Aðrir viðmælendur blaðsins
hafa haft á orði að jafn breið stjórn
og þessi sé líklegri en aðrar stjórnir
til að auka stöðugleika í stjórnmál-
um. Viðmælendur blaðsins úr hópi
Samfylkingar segjast þó ekki fara í
stjórn nema um raunverulega upp-
byggingu í velferðarmálum verði að
ræða og stjórnarskrármálin yrðu
einnig að komast á dagskrá.
– aá / sjá síðu 4