Fréttablaðið - 07.11.2017, Blaðsíða 34
Margir þurfa að láta af störfum þegar sjö-tugsafmælið brestur á svo Ingibjörg Hafstað kennari sem fyllir sjöunda tuginn í dag
er spurð hvort um meiriháttar tímamót sé
að ræða. „Nei, ég er nú eiginlega hætt að
vinna reglubundið, veiktist í fyrra svo það
kom af sjálfu sér. Nú tek ég bara að mér
verkefni. Ég kenndi útlendingum íslensku
í mörg ár. Stofnaði lítið fyrirtæki utan um
það sem heitir Fjölmenning og hafði nóg
að gera, ég hefði getað haldið áfram þess
vegna.“
Þegar Ingibjörgu er slegið upp í
Íslendingabók kemur í ljós að í hennar
formæðra- og feðrahópi eru auk Haf-
staðs, ættarnöfnin Hafstein, Scheving,
Stephensen og Kvaran. Hún hlær þegar
hún er spurð hvort það sé gaman að heita
Hafstað? „Ég reyndi einu sinni að hætta að
nota þetta nafn en það tókst ekki. Nafnið
er það mikill hluti af manni. Ég heiti Ingi-
björg Sigurðardóttir og þar var fræg skáld-
kona fyrir á fleti. Amma hét Ingibjörg og
ég á fullt af alnöfnum.“
Hún segir Hafstaðsnafnið koma úr
Skagafirði. „Afi minn bjó í Vík í Skagafirði,
það er óðalið og þar býr ein nafna mín.“
Þótt Ingibjörg reki ættir sínar norður
kveðst hún hafa alist upp í útlöndum
að mestu leyti. „Ég er diplómatabarn,
fædd í Moskvu og þaðan fóru foreldrar
mínir, Sigurður Hafstað og Ragnheiður
Kvaran, til Svíþjóðar, svo til Noregs, síðan
til Frakklands og aftur til Moskvu svo það
var mikið rót á okkur,“ útskýrir hún. „Ég
mundi ekki gera mínu barni það að alast
upp á svo mörgum og ólíkum stöðum,
held að það sé ekkert hollt en ég lærði
mörg tungumál og það hefur komið sér
vel í kennslu fyrir útlendinga.“
Nú þarf Ingibjörg að rjúka því hún á
tíma hjá tannlækni uppi á Akranesi en
hún hefur pottþétt frá mörgu að segja,
svo það væri efni í heila bók. Kemur sú bók
kannski einhvern tíma? „Það gæti bara vel
verið nú þegar ég er hætt að vinna!“
gun@frettabladid.is
Ég á fullt af alnöfnum
Ingibjörg Hafstað kennari sem þekkt er fyrir áhuga sinn og atorku í sambandi við ís-
lenskukennslu nýbúa er sjötug í dag. Hún stofnaði og rekur fyrirtækið Fjölmenningu.
Ingibjörg útilokar ekki að skrifa bók nú þegar hún er hætt að vinna. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Ég mundi ekki gera
mínu barni það að alast
upp á svo mörgum og ólíkum
stöðum, held að það sé ekkert
hollt en ég lærði mörg tungumál
og það hefur komið sér vel í
kennslu fyrir útlendinga.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Hadda Benediktsdóttir
áður til heimilis Suðurtúni 11,
lést á hjúkrunarheimilinu Mörk
í Reykjavík laugardaginn 4. nóvember.
Útförin fer fram frá Digraneskirkju
miðvikudaginn 15. nóvember kl. 13.00.
Stefán Hans Stephensen Kristín Jóhanna Kjartansdóttir
Lára G. Stephensen Jakob Svanur Bjarnason
Eiríkur G. Stephensen María Gunnarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn,
Hans Meinhard Jensen
áður Kjarnagötu 14, Akureyri,
lést 26. október. Útför hans fer fram
frá Akureyrarkirkju mmtudaginn
9. nóvember kl. 13.30.
Áslaug Á. Jóhannsdóttir
Elsku eiginmaður minn,
pabbi okkar, tengdafaðir og a
,
Svavar Kristinsson
rafverktaki,
Logafold 136, Reykjavík,
lést laugardaginn 28. október sl.
Útför hans fer fram í Langholtskirkju
mmtudaginn 9. nóvember klukkan 15.00.
Þökkum kveðjur og hlýhug.
Anna Steindórsdóttir
Sólveig María Svavarsdóttir Jón Heiðar Hannesson
Svavar Már Svavarsson Elísabet Esther Sævarsdóttir
Sigríður Inga Svavarsdóttir Rósant Friðrik Skúlason
Sindri Snær Svavarsson
og afabörnin Steindór Sólon, Ísold Svava, Bjarmi Sær,
Maísól Mirra og Ronja.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Ólína Anna Guðjónsdóttir
frá Eiðhúsum, Miklaholtshreppi,
síðast til heimilis að Björtuhlíð 33,
lést á hjúkrunarheimilinu Hömrum í
Mosfellsbæ föstudaginn 3. nóvember. Hún
verður jarðsungin föstudaginn 10. nóvember 2017
frá Lágafellskirkju í Mosfellsbæ klukkan 13.00.
Erling Jóhannesson
Eva Erlingsdóttir Lárus Björnsson
Una Erlingsdóttir Vagn Ingólfsson
Jóhannes Erlingsson Valborg Guðmundsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Elín Sigurjónsdóttir
Vesturtúni 28, Álanesi,
lést mmtudaginn 2. nóvember.
Guðný Lára Petersen
Selma Björk Petersen Ellert Gissurarson
Styrmir Petersen Margrét Gilsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug
vegna andláts og útfarar ástkærrar
eiginkonu, móður, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
Kapitolu Snjólaugar
Jóhannsdóttur
Mýrargötu 18, Neskaupstað,
áður Hamragerði 7, Egilsstöðum.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki sjúkradeildar
Heilbrigðisstofnunar Austurlands í Neskaupstað.
Sveinn Árnason
Jóhann S. Hákonarson Sigríður Kristinsdóttir
Aðalsteinn Hákonarson Elínborg Valsdóttir
Inga Birna Hákonardóttir
Þórveig Hákonardóttir Guðmundur Ólafsson
Elín Hildur Sveinsdóttir Ragnar Guðmundsson
Stefanía Anna Hoskins Chris Hoskins
Eva Steinunn Sveinsdóttir Þorvarður Sigurbjörnsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Margrét Snorradóttir
Þykkvabæ 14,
lést á hjúkrunarheimilinu Grund
laugardaginn 4. nóvember 2017.
Útför hennar fer fram frá Árbæjarkirkju
mánudaginn 13. nóvember kl. 15.00.
Jón Magngeirsson
Reynir Jónsson Þorgerður Ernudóttir
Birgir Jónsson Elsa Óskarsdóttir
Birna Jónsdóttir Sigfús Ásgeir Kárason
og barnabörn.
Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Útfararstofa kirkjugarðanna
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Útfarar- og lögfræðiþjónusta
Við önnumst alla þætti undir-
búnings og framkvæmd útfarar
ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og
umhyggju að leiðarljósi
og af faglegum metnaði.
Lára Árnadóttir,
skrifstofustjóri
18 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 7 . N Ó V E M B E R 2 0 1 7 Þ R I Ð J U D A G U R
TÍMAMÓT
Tilkynningar um merkisatburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@365.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða
hringja í síma 512 5000.