Fréttablaðið - 07.11.2017, Blaðsíða 2
Veður
Breytileg átt á landinu og vindhraði
hóflegur. Það verða dálítil él á víð
og dreif um landið vestanvert. Á
austurhelmingi landsins verður hins
vegar slydda eða snjókoma um tíma
því snaggarlegt úrkomusvæði mun
ganga þar yfir. SJÁ SÍÐU 20
Eftirköst óveðursins
Vindhviður fóru í allt að 65 metra á sekúndu þegar mikið óveður gekk yfir landið í fyrrakvöld og mátti sjá eldingar og heyra þrumur sem fylgdu. Yfir
40 þúsund Íslendingar glímdu við rafmagnsleysi. Flest verkefni björgunarsveitanna og viðbragsaðila tengdust byggingarsvæðum í borginni og voru
menn enn að í gær við að ganga frá hlutum sem fuku þegar veðrið var sem verst. Mikil mildi þykir að ekkert stórtjón hafi orðið. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Rafvirkjar
LED skápalampar
www.olafsson.is
Endursöluaðilar um land allt
Snjöll lýsing!
Jóhann Ólafsson & Co.
Krókháls 3, 110 Reykjavík
533 1900
olafsson.is
STJÓRNSÝSLA ÁTVR hefur ekki sótt
sérstaklega um leyfi hjá bæjar-
stjórn Garðabæjar fyrir opnun
fyrirhugaðrar Vínbúðar í Kaup-
túni sem bæjarstjórn telur nauð-
synlegt. Fyrra leyfi bæjarins til
ÁTVR fyrir vínbúð, sem lokað var
fyrir þó nokkrum árum, var bundið
við aðra staðsetningu. Bæjarfull-
trúi furðar sig á málinu og skorar
bæjarstjórn á ÁTVR að sækja um
leyfi fyrir versluninni í Kauptúni.
ÁTVR stefnir á að opna verslunina
15. nóvember.
Heilbrigðisnefnd Hafnarfjarðar-
og Kópavogssvæðis samþykkti
starfsleyfi ÁTVR í Kauptúni 3 til allt
að 12 ára á fundi sínum 30. október.
Á fundi bæjarstjórnar Garðabæjar
síðastliðinn fimmtudag lagði bæjar-
fulltrúi meirihlutans, Sigurður Guð-
mundsson, fram bókun þar sem
hann fagnaði því að Vínbúð væri að
opna aftur í Garðabæ eftir margra
ára fjarveru. Hins vegar vekti það
furðu hans að ÁTVR hafi ekki sótt
um leyfi fyrir áfengissölu á nýjum
stað, líkt og kveðið er á um í áfengis-
lögum.
ÁTVR rak fyrir mörgum árum
Vínbúð við Garðatorg en Sigurður
segir ÁTVR hafa lokað henni ein-
hliða og án samráðs eða samvinnu
við bæjarstjórn Garðabæjar. Árið
2003 hafi bæjarstjórn Garðabæjar
samþykkt að veita ÁTVR leyfi til
reksturs vínbúðar en leyfið var
bundið skilyrði um staðsetningu
við Garðatorg.
„Nú fréttir maður af því að þeir
ætli að opna í Kauptúni, en þá hafa
þeir ekki sótt um leyfi sérstaklega
til þess,“ segir Sigurður í samtali við
Fréttablaðið.
Vilja að ÁTVR sæki um
nýtt leyfi fyrir vínbúð
Bæjarstjórn Garðabæjar skorar á ÁTVR að sækja um leyfi fyrir nýrri Vínbúð sem
til stendur að opna í Kauptúni. ÁTVR sótti ekki um leyfi til bæjarstjórnar fyrir
nýrri staðsetningu en fyrri leyfisveiting gerði ráð fyrir vínbúð við Garðatorg.
Framkvæmdir við nýja Vínbúð ÁTVR í Kauptúni eru langt komnar og stefnt á
opnun 15. nóvember. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Sigurður Guð-
mundsson,
bæjarfulltrúi í
Garðabæ.
Sigurður bendir á í bókun sinni að
samkvæmt áfengislögum skal leita
álits skipulagsnefndar sveitarfélaga
varðandi rekstur áfengisverslunar. Í
lögunum komi einnig fram að sveit-
arstjórn sé heimilt að binda veitingu
leyfis til reksturs útsölustaðar áfengis
skilyrðum um staðsetningu versl-
unar og afgreiðslutíma.
Í ljósi þess að ÁTVR hafi ekki farið
að þessum lögum sammæltist bæjar-
stjórn Garðabæjar því um að beina
því til ÁTVR með bókuninni að stofn-
unin sæki um leyfi fyrir opnun vín-
búðar í Kauptúni, þar sem leyfi var
áður bundið við rekstur vínbúðar að
Garðatorgi.
Sigrún Ósk Sigurðardóttir,
aðstoðarforstjóri ÁTVR, segir að í
áratugi hafi verið í gildi það verklag
hjá stofnuninni að sækja um starfs-
leyfi fyrir nýjum staðsetningum á
vínbúðum til heilbrigðisnefnda við-
komandi sveitarfélaga.
„Ef vínbúð hefur ekki verið áður í
sveitarfélaginu hefur verklagið verið
þannig að sótt er um leyfi til sveitar-
stjórna. Ef það leyfi hefur fengist
hefur verið talið nægjanlegt að sækja
um leyfi fyrir starfseminni á nýjum
stað til heilbrigðisnefndar.“
Segir Sigrún Ósk að ÁTVR muni
þó hafa samband við bæjaryfirvöld
í framhaldinu og kanna málið nánar
en vonar að ágreiningurinn valdi
ekki töfum á fyrirhugaðri opnun,
þann 15 nóvember næstkomandi.
mikael@frettabladid.is
SLYS Karlmaður lést í umferðar-
slysi á gatnamótum Sæbrautar og
Kirkjusands í Reykjavík í gær þegar
reiðhjól og bifreið rákust saman.
Hinn látni var á reiðhjólinu.
Lögreglunni barst tilkynning um
slysið upp úr klukkan eitt í gær.
Rannsóknarnefnd samgöngu-
slysa og lögreglan rannsaka tildrög
slyssins og lögreglan segir að ekki
sé unnt að greina frá nafni hins
látna að svo stöddu.
Lögreglan óskar eftir vitnum að
slysinu og biður þá sem hafa upp-
lýsingar um slysið að hafa sam-
band. – ósk
Lést í umferðarslysi í gær
Slysið varð á gatnamótum Sæbrautar og Kirkjusands í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
VIÐSKIPTI Facebook mun á næstu
vikum gera fólki utan Bandaríkj-
anna kleift að millifæra fjármuni í
gegnum smáforritið Messenger.
Þjónustan hefur verið í boði í
Bandaríkjunum frá 2015. Tilkynnt
var í gær um að stefnt sé að því að
opna þjónustuna fyrir notendur
annars staðar á allra næstu vikum.
Facebook bætist þar með í hóp
tæknirisa sem bjóða upp á slíka
þjónustu. Apple hefur boðað komu
Apple Pay Cash sem leyfir fólki að
senda fé í gegnum iMessage. Þá hafa
PayPal og Square Inc. boðið upp á
svipaðar leiðir.
Óvíst er hvaða áhrif, ef einhver,
þjónustan mun koma til með að
hafa á starfsemi banka og hvort þeir
komi til með að missa spón úr aski
sínum vegna þessa. – jóe
Millifæra fé í
gegnum Fésbók
7 . N Ó V E M B E R 2 0 1 7 Þ R I Ð J U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð