Fréttablaðið - 07.11.2017, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 07.11.2017, Blaðsíða 24
KOSTIR OG GALLAR KIA STINGER  3,3 LÍTRA BENSÍNVÉL  370 HESTÖFL  FJÓRHJÓLADRIF Eyðsla frá: 10,6 l/100 km í bl. akstri Mengun: 244 g/km CO2 Hröðun: 4,9 sek. Hámarkshraði: 270 km/klst. Verð frá: 7.990.777 kr. Umboð: Askja  Stærð innanrýmis  Aksturseiginleikar  Útlit  Ekki í boði beinskiptur Loksins, loksins, sportbíll frá Kia og það engin smá kerra og með allt að 370 hestafla rokki. Á tímum endalaust fleiri jepplinga blása ferskir vindar um tilkomu fyrsta sportbíls Kia og segja má að það hafi verið alveg rakið fyrir suðurkóreska fram- leiðandann að bæta sportbíl við bílaflóruna. Það sárvantaði svona flaggskip hjá Kia sem hingað til hefur verið þekkt fyrir smíði hóf- samra bíla, en afar vel smíðaðra. Það má hæglega fullyrða að Stinger sé fæddur í heiminn til að storka þýsku lúxusbílafram- leiðendunum sem munu ekki geta keppt við þennan bíl í verði, en svona öflugir sportbílar þeirra eru allir með mun hærri verðmiða hangandi á hurðahúninum. Kia þarf svona „top of the line“- bíl og hæglega má segja að það auki hreinlega á virði og upplifun minni bíla Kia. Það þarf jú að gæta að ímyndinni og það er einmitt með svona bíl eins og Stinger sem ímyndin vex og stimpillinn sem framleiðandi bíla án mikils skemmtanagildis hverfur. Hér er nefnilega kominn bíll með skemmtanagildi, en þetta er samt í leiðinni frekar stór bíll sem tekur alla fjölskylduna, en líklega bara í skemmtilega bíltúra. Magnaður brautarakstur Það voru að minnsta kosti bara skemmtilegir bíltúrar sem boðið var upp á á Mallorca fyrir stuttu þar sem bílablaðamönnum gafst tækifæri til að kynnast Kia Stinger. Ekki skemmdi mikið fyrir að á meðal þeirra var akstur á keppnisbraut þar sem allra kosta bílsins mátti njóta og það án þess að brjóta umferðarlög. Þar var Stinger þaninn til hins ítrasta og við slíkar aðstæður kemur í ljós hvers bílar eru megnugir og hæfir í akstri. Ekki sveik Sting- e r inn við þær aðstæður og ekki leiðinlegt að leyfa öllum 370 hestöflunum að grípa sem fastast í malbikið. Farnir voru nokkrir hringir með undanfara og hraðinn sífellt aukinn eftir hæfni þeirra sem honum fylgdu. Vandlega var passað upp á að bíllinn væri stilltur í Sport+ akstursstillingu svo hegðun bílsins væri í takti við aðstæðurnar. Þessi brautarakstur varð ekki til þess að minnka hrifninguna á þessum ógnar- skemmtilega bíl. Kom skemmti- lega á óvart hve hægt var að henda bílnum til í hröðum akstri þó svo skrikvörnin væri enn þá á. Ekki var í boði að aftengja hana og mátti skilja þá afstöðu betur er í ljós kom að sama dag og við Íslendingarnir vorum í brautinni voru tveir glænýir Stinger bílar eyðilagðir í árekstri þar. Virkjar forvitnina En það er ekki nóg með að Kia Stinger sé öflugur og skemmti- legur akstursbíll sem getur tekið marga farþega í gleðiaksturinn, heldur er þarna kominn hörku- flottur bíll sem dregur augun að sér ef marka má forvitnina sem vegfarendur sýndu er hann rann um göturnar á Mallorca. Víst er að hann er enginn eftirbátur bíla í sama stærðar- og kraftaflokki hvað fegurð varðar, þ.e. bíla eins og BMW 5, Audi A6, Mercedes Benz E-Class og Lexus GS og að margra áliti slær þeim hreinlega við. Coupé lag bílsins, sterkar línur og lengd bæði húdds og bílsins alls ljær honum mikinn eðalsvip og hann á sannarlega eftir að vekja athygli hér á landi er hann fer að streyma á göt- Passið ykkur Þjóðverjar! Nýjasta útspil Kia er öflugur sportbíll sem færir merkið upp í nýjar hæðir og storkar lúxusbílaframleið- endum með afar aksturshæfum bíl sem er þó nógu stór til að taka alla fjölskylduna í skemmtiferðir urnar hér innan tíðar. Innrétting bílsins er einnig til fyrirmyndar og vandað til smíðinnar í hvívetna, eins og Kia er reyndar von og vísa. Bíllinn er með hörkflott leðursæti og umfram allt þægileg og með góðan stuðning. Sérstök ástæða er til að nefna stillingu fyrir hliðar- stuðning á framsætum sem þrengir að ökumanni ef hann kýs að vera pikkfastur í sætinu við frísklegan akstur. Efnisnotkun í innrétting- unni er ríkuleg en engir stælar með yfirhönnun eða takkaflóði. Ódýr draumur Kia Stinger verður í boði hér á landi með tveimur vélarkostum. Með 2,2 lítra dísilvél, 200 hestafla og sömu vél og finna má í núverandi Kia Sorrento. Drífur þessi vél Stinger í hundraðið á 7,6 sekúndum. Með þessa vél verður Stinger vafalaust mjög eyðslugrannur, en samt enginn letingi. Hinn vélarkosturinn er þó með öllu meira skemmtana- gildi, þ.e. 3,3 lítra bensívél, 370 hestafla. Með henni rýkur Stinger í 100 á litlum 4,9 sekúndum. Með þessari vél er Stinger kominn í kraftaflokk með bílum eins og Audi S6, BMW M5 og Mercedes Benz E 43 AMG, en kosturinn sá að Stinger inn verður þeirra ódýrastur og mun kosta kringum 10 milljónir. Kia býður reyndar Stinger með einum vélarkostinum enn, þ.e. með 250 hestafla bensínvél og áhuga- samir geta vafalaust sérpantað hann hjá Öskju. Það verður að segjast að það var hreinn unaður að njóta Stinger með 370 hestafla vélinni bæði á götunum á Mallorca og í akstursbrautinni. Þarna fer firna skemmtilegur akstursbíll sem er þéttur og stífur eins og sportbílar eiga að vera, án þess að vera á nokk- urn hátt óþægilegur. Með þessum bíl stígur Kia upp mörg þrep á töffara skalanum og gefur sportbíla- áhugamönnum mun ódýrari kost til að uppfylla drauma sína. Vel gert Kia, þetta er besta smíði ykkar hingað til! Kia Stinger er fögur hönnun enda ekki von á öðru úr smiðju Peters Schreyer, yfirhönnuðar Kia. Jafn fögur sýn blasir við þegar inn er komið.Í reynsluakstrinum á Mallorca blöstu bæði við fögur hús og fagrir bílar. Reynsluakstur Finnur Thorlacius finnurth@365.is 7 . N Ó V E M B E R 2 0 1 7 Þ R I Ð J U D A G U R6 B Í L A R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð BÍLAR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.