Fréttablaðið - 07.11.2017, Qupperneq 24
KOSTIR OG GALLAR
KIA STINGER
3,3 LÍTRA BENSÍNVÉL
370 HESTÖFL
FJÓRHJÓLADRIF
Eyðsla frá: 10,6 l/100 km í bl. akstri
Mengun: 244 g/km CO2
Hröðun: 4,9 sek.
Hámarkshraði: 270 km/klst.
Verð frá: 7.990.777 kr.
Umboð: Askja
Stærð innanrýmis
Aksturseiginleikar
Útlit
Ekki í boði beinskiptur
Loksins, loksins, sportbíll frá Kia og það engin smá kerra og með allt að 370 hestafla
rokki. Á tímum endalaust fleiri
jepplinga blása ferskir vindar um
tilkomu fyrsta sportbíls Kia og
segja má að það hafi verið alveg
rakið fyrir suðurkóreska fram-
leiðandann að bæta sportbíl við
bílaflóruna. Það sárvantaði svona
flaggskip hjá Kia sem hingað til
hefur verið þekkt fyrir smíði hóf-
samra bíla, en afar vel smíðaðra.
Það má hæglega fullyrða að
Stinger sé fæddur í heiminn til
að storka þýsku lúxusbílafram-
leiðendunum sem munu ekki geta
keppt við þennan bíl í verði, en
svona öflugir sportbílar þeirra eru
allir með mun hærri verðmiða
hangandi á hurðahúninum. Kia
þarf svona „top of the line“- bíl
og hæglega má segja að það auki
hreinlega á virði og upplifun
minni bíla Kia. Það þarf jú að gæta
að ímyndinni og það er einmitt
með svona bíl eins og Stinger
sem ímyndin vex og stimpillinn
sem framleiðandi bíla án mikils
skemmtanagildis hverfur. Hér
er nefnilega kominn bíll með
skemmtanagildi, en þetta er samt
í leiðinni frekar stór bíll sem tekur
alla fjölskylduna, en líklega bara í
skemmtilega bíltúra.
Magnaður brautarakstur
Það voru að minnsta kosti bara
skemmtilegir bíltúrar sem boðið
var upp á á Mallorca fyrir stuttu
þar sem bílablaðamönnum
gafst tækifæri til að kynnast Kia
Stinger. Ekki skemmdi mikið fyrir
að á meðal þeirra var akstur á
keppnisbraut þar sem allra kosta
bílsins mátti njóta og það án þess
að brjóta umferðarlög. Þar var
Stinger þaninn til hins ítrasta
og við slíkar aðstæður kemur í
ljós hvers bílar eru megnugir og
hæfir í akstri. Ekki sveik Sting-
e r inn við þær aðstæður og ekki
leiðinlegt að leyfa öllum 370
hestöflunum að grípa sem fastast
í malbikið. Farnir voru nokkrir
hringir með undanfara og hraðinn
sífellt aukinn eftir hæfni þeirra
sem honum fylgdu. Vandlega
var passað upp á að bíllinn væri
stilltur í Sport+ akstursstillingu
svo hegðun bílsins væri í takti við
aðstæðurnar. Þessi brautarakstur
varð ekki til þess að minnka
hrifninguna á þessum ógnar-
skemmtilega bíl. Kom skemmti-
lega á óvart hve hægt var að henda
bílnum til í hröðum akstri þó
svo skrikvörnin væri enn þá á.
Ekki var í boði að aftengja hana
og mátti skilja þá afstöðu betur
er í ljós kom að sama dag og við
Íslendingarnir vorum í brautinni
voru tveir glænýir Stinger bílar
eyðilagðir í árekstri þar.
Virkjar forvitnina
En það er ekki nóg með að Kia
Stinger sé öflugur og skemmti-
legur akstursbíll sem getur tekið
marga farþega í gleðiaksturinn,
heldur er þarna kominn hörku-
flottur bíll sem dregur augun að
sér ef marka má forvitnina sem
vegfarendur sýndu er hann rann
um göturnar á Mallorca. Víst er
að hann er enginn eftirbátur bíla
í sama stærðar- og kraftaflokki
hvað fegurð varðar, þ.e. bíla eins
og BMW 5, Audi A6, Mercedes
Benz E-Class og Lexus GS og að
margra áliti slær þeim hreinlega
við. Coupé lag bílsins, sterkar
línur og lengd bæði húdds og
bílsins alls ljær honum mikinn
eðalsvip og hann á sannarlega
eftir að vekja athygli hér á landi
er hann fer að streyma á göt-
Passið ykkur Þjóðverjar!
Nýjasta útspil Kia er öflugur sportbíll sem færir merkið upp í nýjar hæðir og storkar lúxusbílaframleið-
endum með afar aksturshæfum bíl sem er þó nógu stór til að taka alla fjölskylduna í skemmtiferðir
urnar hér innan tíðar. Innrétting
bílsins er einnig til fyrirmyndar og
vandað til smíðinnar í hvívetna,
eins og Kia er reyndar von og vísa.
Bíllinn er með hörkflott leðursæti
og umfram allt þægileg og með
góðan stuðning. Sérstök ástæða er
til að nefna stillingu fyrir hliðar-
stuðning á framsætum sem þrengir
að ökumanni ef hann kýs að vera
pikkfastur í sætinu við frísklegan
akstur. Efnisnotkun í innrétting-
unni er ríkuleg en engir stælar með
yfirhönnun eða takkaflóði.
Ódýr draumur
Kia Stinger verður í boði hér á landi
með tveimur vélarkostum. Með 2,2
lítra dísilvél, 200 hestafla og sömu
vél og finna má í núverandi Kia
Sorrento. Drífur þessi vél Stinger
í hundraðið á 7,6 sekúndum. Með
þessa vél verður Stinger vafalaust
mjög eyðslugrannur, en samt
enginn letingi. Hinn vélarkosturinn
er þó með öllu meira skemmtana-
gildi, þ.e. 3,3 lítra bensívél, 370
hestafla. Með henni rýkur Stinger
í 100 á litlum 4,9 sekúndum. Með
þessari vél er Stinger kominn í
kraftaflokk með bílum eins og
Audi S6, BMW M5 og Mercedes
Benz E 43 AMG, en kosturinn sá að
Stinger inn verður þeirra ódýrastur
og mun kosta kringum 10 milljónir.
Kia býður reyndar Stinger með
einum vélarkostinum enn, þ.e. með
250 hestafla bensínvél og áhuga-
samir geta vafalaust sérpantað
hann hjá Öskju. Það verður að
segjast að það var hreinn unaður
að njóta Stinger með 370 hestafla
vélinni bæði á götunum á Mallorca
og í akstursbrautinni. Þarna fer
firna skemmtilegur akstursbíll sem
er þéttur og stífur eins og sportbílar
eiga að vera, án þess að vera á nokk-
urn hátt óþægilegur. Með þessum
bíl stígur Kia upp mörg þrep á
töffara skalanum og gefur sportbíla-
áhugamönnum mun ódýrari kost
til að uppfylla drauma sína. Vel
gert Kia, þetta er besta smíði ykkar
hingað til!
Kia Stinger er fögur hönnun enda ekki von á öðru úr smiðju Peters Schreyer, yfirhönnuðar Kia.
Jafn fögur sýn blasir við þegar inn er komið.Í reynsluakstrinum á Mallorca blöstu bæði við fögur hús og fagrir bílar.
Reynsluakstur
Finnur
Thorlacius
finnurth@365.is
7 . N Ó V E M B E R 2 0 1 7 Þ R I Ð J U D A G U R6 B Í L A R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
BÍLAR