Fréttablaðið - 07.11.2017, Qupperneq 12
BANDARÍKIN „Það er ekkert hægt
að finna að þessum viðskiptum,“
sagði Wilbur Ross, viðskiptaráð-
herra Bandaríkjanna, við BBC í gær
en fjallað er um það í hinum svo-
kölluðu Paradísarskjölum að ráð-
herrann hafi í gegnum skipafélagið
Navigator stundað viðskipti við
rússneska fyrirtækið Sibur.
Sibur er rússneskt olíufélag í eigu
þeirra Gennady Timchenko, Kirills
Shamalov og Leonids Mikhelson.
Timchenko er gamall vinur Vlad-
imirs Pútín Rússlandsforseta og
Shamalov er giftur Yekaterínu
Pútínu, dóttur forsetans. Þá beinast
viðskiptaþvinganir Bandaríkjanna
gegn Rússum að þeim Timchenko
og Mikhelson.
Uppljóstrunin hefur vakið mikla
athygli vestanhafs, sér í lagi þar
sem Robert Mueller, sérstakur sak-
sóknari dómsmálaráðuneytisins,
rannsakar nú meint afskipti rúss-
neskra yfirvalda af forsetakosning-
unum 2016 og tengslum framboðs
Donalds Trump forseta við Rússa.
Ross á hlut í Navigator í gegnum
aflandsfélög á Cayman-eyjum en
skipafélagið flutti olíu og gas fyrir
Sibur árum saman.
„Það er ekkert að því að Navig-
ator stundi viðskipti við Sibur. Ef
ríkisstjórnin hefði ákveðið að beita
þvingunum gegn Sibur væri það
annað mál,“ sagði Ross og bætti því
við að hann hefði sagt viðeigandi
aðilum frá viðskiptunum áður en
hann tók við embætti. Þá neitaði
hann því að hafa sagt þingnefnd-
inni sem samþykkti skipun hans í
embætti ósatt, líkt og hann hefur
verið sakaður um.
„Það var villt um fyrir nefndinni.
Það var villt um fyrir bandarísku
þjóðinni þegar þessi félög voru
falin,“ sagði Richard Blumenthal,
öldungadeildarþingmaður Demó-
krata, í gær. Kallaði hann jafnframt
eftir því að tengsl viðskiptaráðherr-
ans við tengdason Pútíns yrðu rann-
sökuð.
En Paradísarskjölin hafa áhrif í
fleiri ríkjum en Bandaríkjunum.
Narendra Modi, forsætisráðherra
Indlands, var í gær hvattur til að
taka á skattaundanskotum þar í
landi eftir að rúmlega 700 nöfn Ind-
verja fundust í skjölunum. Meðal
annars nafn eins ráðherra og annars
þingmanns úr flokki Modi.
Ráðherrann Jayant Sinha, neitaði
að tjá sig um málið í gær. Þingmað-
urinn, Ravindra Kishore, sagði í yfir-
lýsingu að hann gæti ekki tjáð sig í
vikunni þar sem hann hefði svarið
þagnareið af trúarlegum ástæðum.
Þá hafa Paradísarskjölin valdið
titringi á Bretlandi. Hefur Bret-
landsdrottning til að mynda haldið
milljónum punda í aflandsfélögum
og Ashcroft lávarður, áhrifamaður
í Íhaldsflokknum, sömuleiðis.
Jeremy Corbyn, formaður Verka-
mannaflokksins, var harðorður í
gær. „Þessar uppljóstranir sýna að
það eru aðrar reglur fyrir hina ofur-
ríku en aðra þegar kemur að því að
borga skatta,“ sagði Corbyn.
Lagði Corbyn til að drottningin
myndi biðjast afsökunar. „Allir sem
setja peninga sína í skattaskjól ættu
að gera tvennt. Annars vegar að
biðjast afsökunar og hins vegar að
átta sig á því hvað þetta gerir sam-
félaginu okkar.“
thorgnyr@frettabladid.is
Ráðherrann
segir ekkert að
viðskiptunum
við vin Pútíns
Viðskiptaráðherra Bandaríkjanna átti í viðskiptum
við bæði góðvin og tengdason Rússlandsforseta.
Hann hafnar því að nokkuð hafi verið að viðskipt-
unum en Demókratar krefjast rannsóknar. Indversk-
ur þingmaður svarar ekki og ber fyrir sig þagnareiði.
Það er ekkert að því
að Navigator stundi
viðskipti við Sibur. Ef
ríkisstjórnin hefði
ákveðið að
beita þving-
unum væri
það annað
mál.
Wilbur Ross, viðskiptaráðherra
Bandaríkjanna
SIMBABVE Emmerson Mnangagwa,
varaforseti Simbabve, var í gær rek-
inn úr starfi. Þetta staðfesti upplýs-
ingamálaráðherrann Simon Khaya
Moyo og sagði ástæðuna ótrygg-
lyndi Mnangagwa.
„Störf herra Mnangagwa eru ekki
í samræmi við skyldur hans. Vara-
forsetinn hafði sýnt ótrygglyndi
sitt,“ sagði Moyo í gær.
Robert Mugabe forseti er sagður
hafa tekið ákvörðunina en BBC
greinir frá því að hún auki líkurnar
á því að eiginkona hans, Grace
Mugabe, taki við af forsetanum.
Grace hefur áður kallað eftir brott-
rekstri Mnangagwa.
Varaforsetinn þótti einna líkleg-
astur til að taka við forsetaembætt-
inu af Mugabe.
Robert Mugabe hefur verið forseti
Simbabve allt frá árinu 1987 en er
orðinn 93 ára gamall og því stefnir
í forsetaskipti. – þea
Ótryggur varaforseti rekinn
Brottreksturinn eykur líkurnar á að
Grace Mugabe taki við af eiginmanni
sínum. NORDICPHOTOS/AFP
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | SÍMI 510 1700 | VR.IS
VR óskar eftir
orlofshúsum
VR óskar eftir vönduðum sumar húsum
eða orlofsíbúðum á leigu til framleigu
fyrir félagsmenn sína. Leitað er eftir
húsnæði á lands byggðinni fyrir næsta
sumar.
Áhugasamir sendi upplýsingar á
vr@vr.is fyrir 20. nóvember 2017.
Nauðsynlegt er að góðar ljósmyndir
og lýsing á umhverfi fylgi með.
Öllum tilboðum verður svarað.
Eftirfarandi upplýsingar
þurfa að fylgja tilboði:
- Lýsing á eign og því
sem henni fylgir
- Ástand íbúðar og
staðsetning
- Stærð, öldi svefnplássa
og byggingarár
- Lýsing á möguleikum til
útivistar og afþreyingar
í næsta nágrenni
SPÁNN „Leiðtogar þessa lýðræðislega
verkefnis eru nú sakaðir um upp-
reisn og eiga yfir höfði sér þyngstu
refsingu spænskra hegningarlaga.
Sömu refsingu og fyrir hryðjuverk
og morð, þrjátíu ára fangelsi,“ skrifaði
Carles Puigdemont, fyrrverandi for-
seti héraðsstjórnar Katalóníu í grein
í Guardian í gær.
Puigdemont leiddi Katalóníu í
gegnum kosningar um sjálfstæði
og sjálfstæðisyfirlýsingu en eftir að
spænska ríkisstjórnin svipti hér-
aðið sjálfsstjórn missti hann forseta-
embættið. Þá hafa allir ráðherrar
héraðsstjórnarinnar verið ákærðir
fyrir uppreisn og vilja Spánverjar fá
evrópska handtökuskipun á Puigde-
mont svo hægt sé að draga hann fyrir
rétt.
Í greininni fordæmdi Puigdemont
viðbrögð Spánverja við atburðum
undanfarinna vikna. Sakaði hann
yfirvöld um að beita fádæma hörku
og að hann væri hræddur um að
réttarhöldin yfir Katalónunum yrðu
ósanngjörn. Hann kallaði jafnframt
eftir því að alþjóðasamfélagið gagn-
rýndi Spánverja.
„Spænska ríkið verður sjálft að
virða það sem það hefur sagt við
hryðjuverkamenn undanfarin ár.
Bindið enda á ofbeldið, þá er hægt
að tala um hvað sem er. Við sem
styðjum sjálfstæði Katalóníu höfum
aldrei valið að beita ofbeldi. En nú
höfum við komist að því að það var
hrein lygi þegar Spánverjar sögðu að
hægt væri að ræða málin.“ – þea
Segir framgöngu Spánverja hneyksli
Bjartara
framundan
Vinur við veginn
Þú færð rúðuhreinsinn og allar hinar
vetrarvörurnar fyrir bílinn hjá Olís.
10%
afsláttur
af bílavörum
til lykil- og
korthafa
7 . N Ó V E M B E R 2 0 1 7 Þ R I Ð J U D A G U R12 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð