Fréttablaðið


Fréttablaðið - 07.11.2017, Qupperneq 14

Fréttablaðið - 07.11.2017, Qupperneq 14
Frá degi til dags ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Einar Þór Sverrisson FORSTJÓRI: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir ÚTGEFANDI OG AÐALRITSTJÓRI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRAR: Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kjartan Hreinn Njálssson kjaranh@frettabladid.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞRÓUNARSTJÓRI: Tinni Sveinsson tinni@365.is HELGARBLAÐ: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is MENNING: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is LÍFIÐ: Guðný Hrönn Antonsdóttir gudnyhronn@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Halldór Kjartan Hreinn Njálsson kjartanh@frettabladid.is Vísinda- greinin sem birtist í The Lancet 24. nóvember 2011 var hvorki í samræmi við boðleg vísindi né gott siðferði. CELY PC-50 talningavog Áður 57.109,- NÚ 45.688,- gæði – þekking – þjónusta Krókhálsi 1 110 Reykjavík s. 567 8888 www.pmt.is TALNINGAVOGIR Mikið úrval af talningavogum, sem einfalda talningu á smáhlutum FÆRIBANDAVOGIR - RANNSÓKNAVOGIR - IÐNAÐARVOGIR - SMÁVOGIR VERÐÚTREIKNINGSVOGIR - FITUMÆLINGAVOGIR - KRÓKAVOGIR BAÐVOGIR - BARNAVOGIR - GÓLFVOGIR - LÍMMIÐAVOGIR GOTT VERÐ Liðsmaðurinn Stjórnarmyndunarviðræðum stjórnarandstöðunnar var slitið í gær. Framsóknarmönnum þótti 32ja manna meirihluti of naum- ur. Þetta er út af fyrir sig nokkuð merkileg skýring hjá Fram- sóknarflokknum, enda hefði ekki þurft fjögurra daga samtal flokkanna til að átta sig á saman- lögðum þingstyrk. Hitt er aftur á móti annað mál að óskiljanlegt tal Björns Levís Gunnarssonar, þingmanns Pírata, um mögu- legan stuðning hans við þá stjórn sem var til umræðu gat ekki orðið til þess að vekja væntingar hjá neinum um að sú stjórn væri á vetur setjandi. Þátttaka Viðreisnar Vinstrimenn kenna Sigurði Inga Jóhannssyni og Lilju um það hvernig fór. Benda þeir meðal annars á að það hafi verið Fram- sóknarflokkurinn sem vildi ekki styrkja stöðuna og fjölga flokkum í viðræðunum með aðkomu Viðreisnar. En Viðreisn tapaði þremur þingmönnum í kosningunum og hefur verk að vinna við að styrkja innra starfið í ungu stjórnmálaafli. Þorgerður Katrín hefur enda sagt allt frá kosninganótt að það gæti hentað flokknum vel að vera í minni- hluta næsta kjörtímabilið. Er eitthvað víst að Þorgerður, aðrir þingmenn Viðreisnar og kjós- endur flokksins hefðu kært sig um þátttöku flokksins í þessum viðræðum. jonhakon@frettabladid.is Fá fordæmi eru fyrir jafn grófu vísindamis-ferli og kristallast í hinu svokallað Plast-barkamáli. Umfangsmiklar rannsóknir hafa farið fram í Svíþjóð á lygum ítalska læknisins Paolo Macchiarini og siðlausum tilraunum hans á fárveikum einstaklingum. Þessar sömu rannsóknir hafa einnig varpað ljósi á hrollvekj- andi afstöðu Karolinska Institutet til orðspors, tilrauna og rannsóknarniðurstaðna læknisins eftir að sjálfstæð úttekt hafði verið gerð á störfum hans á Karólínska háskólasjúkrahúsinu. Sérfræðinganefnd undir formennsku Páls Hreins- sonar, dómara við EFTA-dómstólinn, hefur nú skilað niðurstöðum sínum þar sem úttekt var gerð á því hvort ákvarðanir íslenskra heilbrigðisstarfsmanna á Landspítala í tengslum við málið hefðu verið í sam- ræmi við lög, reglur og verkferla. Niðurstöðurnar varpa í senn ljósi á það hvernig Macchiarini, í krafti stöðu sinnar sem einn virtasti brjóstholsskurðlæknir heims, stóð í umfangsmiklum blekkingarleik gagnvart kollegum sínum í Svíþjóð og á Íslandi, og hvernig íslenskir vísindamenn brugðust þegar á reyndi, bæði í aðdraganda aðgerðarinnar örlagaríku á Erítreumanninum Andemariam Beyene, og í þeirri vísindavinnu sem tók við að henni lokinni. Andemariam lést tveimur og hálfu ári eftir aðgerð- ina, í janúar 2014. Hann var fjölskyldumaður og var hér á landi að sækja sér menntun. Í heimalandinu geisaði borgarastyrjöld. Hann var notaður sem til- raunadýr af Macchiarini, en aðrir nýttu sér hlutskipti hans til að koma nafni sínu á spjöld sögunnar. Vísindagreinin sem birtist í The Lancet 24. nóvem- ber 2011 var hvorki í samræmi við boðleg vísindi né gott siðferði. Þann sama dag birti Háskóli Íslands nafn Andemariams og kom honum í fjölmiðla án þess að taka tillit til hans sem sjúklings og nemanda við skólann. Hann var notaður í auglýsingaskyni. Ljóst er að íslensku læknarnir voru fullir efasemda um innihald greinarinnar. Þær rannsóknir sem gerðar voru á Andemariam á Landspítala voru ekki gerðar með samþykki Vísindasiðanefndar og Persónuvernd- ar. Því var greinin ekki hæf til birtingar frá upphafi. Íslensku læknarnir hefðu átt að segja sig frá greininni. Það gerðu þeir ekki fyrr en í febrúar á þessu ári. Mistök eru óumflýjanlegur liður í öllu vísindastarfi. Brotaviljinn er sjaldnast einbeittur, nema mögulega í tilfelli Macchiarinis. Landspítali, Háskóli Íslands og viðkomandi læknar skipa framvarðarsveit íslenskra vísinda, vonandi tekst þeim að læra af mistökum sínum. Það sem eftir stendur er að fársjúkur maður, sem var með tímabundið landvistarleyfi á Íslandi, tók í örvæntingu sinni þátt í ólögmætri tilraun. Íslenskir vísindamenn stunduðu ólögmætar rannsóknir á honum og Háskóli Íslands notaði hann í eigin hagn- aðarskyni. Vísindalegur óheiðarleiki Um síðustu áramót áttu lífeyrissjóðirnir hreina eign sem nam 3.509 milljörðum kr. samkvæmt hagtölum Seðlabanka Íslands. Lífeyrissjóðirnir eru umsvifa- mestu aðilar á íslenskum fjármálamarkaði nú um stundir og áhrif þeirra í íslensku viðskiptalífi því veruleg. Í lögum um lífeyrissjóði er hnykkt á samfélagslegri ábyrgð þeirra þar sem sagt er að þeir skuli hafa hagsmuni allra sjóðsfélaga að leiðar- ljósi og setja sér siðferðisleg viðmið í fjárfestingum. Hér þarf að ganga lengra. Það er alkunna að þó margt hafi áunnist í jafnréttismálum hér á landi er það enn viðvarandi vandamál hversu fáar konur gegna stjórnunarstöðum í fjármálageiranum. Í febrúar 2017 voru kynjahlutföll við- skiptabanka, sparisjóða, lífeyrissjóða, skráðra félaga, félaga á leið á markað, óskráðra tryggingafélaga, lánafyrirtækja, verðbréfafyrirtækja og -miðlana, framtakssjóða, orkufyrir- tækja, greiðslustofnana, Kauphallar og lánasjóða á þá leið að 80 karlar gegndu þar stöðu æðsta stjórnanda en einungis átta konur. Staðan er verst þegar kemur að verðbréfafyrirtækjum og rekstrarfélögum verðbréfasjóða sem starfa sem milliliðir fyrir fjárfesta gegn þóknun. Þessir fjárfestar eru aðallega lífeyrissjóðir. Viðreisn mun við fyrsta tækifæri leggja fram frumvarp til laga þar sem hnykkt er enn frekar á samfélagslegri ábyrgð líf- eyrissjóða að því er varðar jafna stöðu og jafnan rétt karla og kvenna í samfélaginu. Eins og staðan er nú er lífeyrissjóðum í flestum tilvikum stýrt af körlum og karlar eru í verulegum meirihluta ef litið er til starfsmanna sem koma að fjár- festingum og eignastýringu. Frumvarpið kveður m.a. á um að í ársskýrslu sjóðanna skuli gerð grein fyrir framkvæmd jafnréttisstefnu sjóðanna. Þannig beri lífeyrissjóðum t.d. að skýra sérstaklega forsendur þess að fjárfest er í fyrirtækjum þar sem kynjahalli er verulegur meðal æðstu stjórnenda. Auðvitað ættu þessar áherslur að vera sjálfsagðar og eðli- legar í ljósi hlutverks lífeyrissjóða enda sýna fjölmargar rann- sóknir að fyrirtækjum þar sem jafnvægi er í kynjahlutföllum í stjórn og framkvæmdastjórn vegnar almennt betur. Þess vegna er núverandi slagsíða vandamál. Því til viðbótar leiðir hún af sér annað tengt vandamál sem er að aðgengi karla og kvenna að fjármagni er alls ekki það sama. Vonandi munu stjórnmálamenn hvar í flokki sem þeir standa, geta samein- ast um þessar áherslur til hagsbóta fyrir samfélagið allt. Konur, karlar og lífeyrissjóðir Hanna Katrín Friðriksson þingmaður Það er alkunna að þó margt hafi áunnist í jafnréttis- málum hér á landi er það enn viðvar- andi vanda- mál hversu fáar konur gegna stjórnunar- stöðum í fjármálageir- anum. 7 . N Ó V E M B E R 2 0 1 7 Þ R I Ð J U D A G U R14 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.