Fréttablaðið - 07.11.2017, Page 20
www.visir.is/bilar
Umsjón blaðsins
Finnur Thorlacius
finnurth@365.is
Auglýsingar:
Atli Bergmann
atlib@365.is, Sími 512 5457 BÍLAR
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000
Mitsubishi hefur nýverið kynnt áform sín um 40% aukna framleiðslu
á næstu þremur árum og ætlar
fyrirtækið að fara úr framleiðslu
926.000 bíla í fyrra í 1,3 milljón
bíla árið 2020. Renault-Nissan á
nú 34% ráðandi hlut í Mits ubishi
og þar á bæ eru greinilega mikil
áform um stórsókn Mitsubishi
merkisins. Í því augnamiði verður
sett mikið fjármagn í þróun bíla
fyrir Mits ubishi. Meiningin er að
auka fjárveitingar til þróunar um
50% og verja til þess 125 millj-
örðum króna. Mits ubishi ætlar að
sækja af mun meiri þrótti á bíla-
markaði í Kína, Bandaríkjunum
og Suðaustur-Asíu.
11 nýir bílar til 2020
Mitsubishi ætlar að kynna til
sögunnar ellefu nýja bíla á næstu
þremur árum. Þar á meðal verður
Mitsubishi Eclipse Cross jepp-
lingur sem ætlaður er einnig á
Evrópumarkað. Áhersla verður
á framleiðslu fjórhjóladrifinna
bíla og ekki síður verður áherslan
á bíla með tengiltvinndrifrás. Í
nýrri sóknaráætlun Mitsubishi er
markmiðið að ná 10% markaðs-
hlutdeild í Suðaustur-Asíu, en
þar er Mitsubishi sterkt fyrir. Enn
fremur er stefnt að 30% vextí
í Bandaríkjunum og að selja
þar 130.000 bíla á ári. Í Kína eru
áformin enn þá metnaðarfyllri
og er þar stefnt á tvöföldun í sölu
og að selja þar árlega 220.000
bíla. Árið 2020 er stefnan að Mit-
subishi selji einnig 220.000 bíla
í Evrópu. Mitsubishi stefnir á að
ná hagnaði af sölu upp í 6%, eða
0,3% meira en á síðasta ári. Á það
m.a. að nást með sameiginlegri
notkun íhluta með Renault og
Nissan bílum og stærðarhag-
kvæmni þessa stærsta bílarisa
heims.
Mitsubishi ætlar að auka
framleiðsluna um 40% Tuttugu ár eru frá því að Hekla hóf innflutning á metanbílum en það var árið 1997 sem inn-
flutningur hófst á metanknúnum
Volkswagen Caddy og Volkswagen
Touran. Síðan þá hefur mikið vatn
runnið til sjávar og Hekla býður í dag
upp á fjölbreyttt úrval bíla sem ganga
bæði fyrir metani og bensíni. Má þar
nefna Skoda Octavia, Volkswagen
Caddy, Volkswagen Golf, Volkswagen
up!, Volkswagen Polo, Audi A3 og
Audi A5. 1.246 metanbílar hafa selst
síðustu fimm ár og frá ársbyrjun 2016
er búið að nýskrá 648 metanbíla, eða
24% af öllum nýskráðum vistvænum
bílum.
Ánægðir metanbílaeigendur
„Við höfum góða reynslu af sölu
metanbíla sem og annarra vist-
vænna bíla. Þeir bílaeigendur sem
prófa metanbílana eru almennt mjög
ánægðir og það bætast sífellt fleiri
í þann hóp ánægðra viðskiptavina.
Hekla er leiðandi í vistvænum far-
kosti og við munum halda áfram að
bjóða upp á fjölmarga og fjölbreytta
kosti á sviði vistvænna bíla. Við hlökk-
um til að bjóða upp á nýja kosti á
komandi misserum,“ segir María Jóna
Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri
sölusviðs hjá Heklu. Annars voru þrír
af tíu vinsælustu fólksbílunum sem
seldir voru á landinu í september frá
Heklu en bílar frá Mitsubishi, Skoda
og Volkswagen raða sér þar á lista.
Þessar bíltegundir hafa ekki aðeins
slegið í gegn hjá bíleigendum, heldur
eiga sér trygga kaupendur sem kaupa
þessar tegundir aftur og aftur þegar
kemur að endurnýjun. Mitsubishi
Outlander PHEV er þar í fararbroddi
en gríðarlega góð sala hefur verið á
þessum vinsæla tengiltvinnbíl á 100
ára afmælisári Mitsu bishi. Þá komast
hinir sívinsælu Skoda Octavia og
Volkswagen Golf einnig á topp tíu
listann.
Hekla stærst
í vistvænum bílum
Sem fyrr ber Hekla höfuð og herðar
yfir önnur bílaumboð þegar vistvænir
bílar eru annars vegar. Vistvænir bílar
frá Heklu eru nú orðnir 953 það sem
af er ári og er það 15% fjölgun miðað
við allt árið í fyrra. Það er því ljóst
að þegar árið verður gert upp hafi
Íslendingar sýnt það í verki að þeim
sé umhugað um náttúruna þegar
þeir horfa til vistvænna kosta í bíla-
kaupum.
Metanbílar frá
Heklu í 20 ár
Vistvænir bílar frá Heklu eru nú orðnir fleiri en 1.000 á
árinu og Hekla selur meira en helming slíkra bíla á Íslandi.
Skoda Octavía G-Tec.Tilkynnt var um val á bíl árs-ins hjá Bandalagi íslenskra bílablaðamanna (BÍBB)
síðastliðinn fimmtudag. Það var
Peugeot 3008 sem hlaut nafn-
bótina Bíll ársins að þessu sinni.
Alls voru það 30 bílar sem valið
stóð á milli þetta árið, en gjald-
gengar eru glænýjar bílgerðir og
nýjar kynslóðir þekktari gerða.
Tólf þeirra voru valdar í úrslit í
fjórum flokkum, það er minni
fólksbílar, millistærðarfólksbílar,
stærri fólksbílar og jeppar og
jepplingar. Peugeot 3008 fellur í
flokk stærri fólksbíla, en annar í
þeim flokki var Volvo V90 Cross
Country og þriðji BMW 5.
Í flokki smærri fólksbíla stóð
Suzuki efstur á blaði, annar var
Nissan Micra og þriðji Kia Rio.
Í flokki millistærðarfólksbíla
varð efstur Hyundai Ionic, annar
Honda Civic og þriðji Hyundai
i30. Í flokki jeppa og jepplinga
bar sigur úr býtum Volvo XC60,
annar varð Skoda Kodiaq og
þriðji Renault Koleos. Allra hæstu
einkunn allra þessara bíla hlaut
Peugeot 3008. Næstflestu stigin
fékk svo Hyundai Ionic og þau
þriðju flestu Volvo XC60. Verð-
laun fyrir bíl ársins, sem og fyrir
fyrstu þrjú sætin í hverjum flokki
voru veitt með viðhöfn í sal
Blaðamannafélagsins í Síðumúla
á fimmtudagskvöldið og voru
margir viðstaddir þá athöfn.
Bíll ársins er Peugeot 3008
Peugeot 3008 var einnig kjörinn bíll ársins í Evrópu.
AXARHÖFÐA 16
foliatec.is
5673322
LED Perur
Bjóðum nú felgur
á ameríska-pallbíla
jeppa- Land Cruser
og alla fólksbíla
Gæðavottaðar álfelgur
7 . N Ó V E M B E R 2 0 1 7 Þ R I Ð J U D A G U R2 B Í L A R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
BÍLAR