Fréttablaðið - 07.11.2017, Side 26
MAN atvinnubílar hafa lengi verið til sölu á Íslandi og fyrirtækið Kraftur selur þá
hér á landi. Nú ber til tíðinda hjá
MAN og Krafti því frá og með næsta
ári verða í boði MAN sendibílar hjá
Krafti. Fram að þessu hafa minnstu
bílar MAN sem í boði eru verið 7,5
tonn, en nú verða á boðstólum allt
niður í einungis þriggja tonna bíla.
Sendibílar MAN bera stafina TGE
og eru þeir framleiddir algjörlega
af MAN en hannaðir í samstarfi við
móðurfyrirtæki MAN, Volkswagen.
Þessir nýju sendibílar MAN voru
kynntir í Barcelona á dögunum og
fengu bílablaðamenn víða að að
reyna þessa kostagripi og var greinar-
höfundur þeirra á meðal.
Gríðarlegt úrval
TGE-sendibílarnir frá MAN eru búnir
2,0 lítra dísilvél sem fáanleg verður
í fjórum útfærslum, 102, 122, 140
og 177 hestafla. Margir valkostir í
útfærslu sendibílanna munu fást.
Fjöldi möguleika verður á yfir-
byggingum, lokaður sendibíll og
grindarbílar með einföldu húsi eða
flokkahúsi. Flokkahúsið verður fáan-
legt í fjölda útfærslna. Bílarnir verða
fáanlegir með fjórhjóladrifi, fram-
hjóladrifi og afturhjóladrifi og annað
hvort með 8 gíra sjálfskiptingu eða 6
gíra beinskiptingu. TGE sendibílarnir
eru af þremur mismunandi lengdum,
með tvenns konar hjólhaf og þrjár
mismunandi þakhæðir. Lokaði sendi-
bíllinn verður til í 6 metra, 6,8 metra
og 7,4 metra lengdum og hæðin 2,3m,
2,6 og 2,8 metrar. Hámarks rúmmál
er 18,3 rúmmetrar. Að auki verða í
boði sendibílar til fólksflutninga og
má kalla slíka bíla mini-rútur sem
henta mjög vel fyrir íslenska ferða-
þjónustu.
Fáránlega liprir
Það er ekki á hverjum degi sem
undirritaður reynsluekur sendibíl-
um, en mikið fáránlega er það gaman
ef þeir eru góðir. Það vekur hrein-
lega furðu hvað sendibílar geta verið
aksturshæfir. Því er ég löngu hættur
að vorkenna sendibílaökumönnum,
ef þeim eru færðar í hendur bílar af
þessum gæðum. Reyndar voru einar
fjórar gerðir TGE-sendibílsins, bæði
3 og 5 tonna bílar, lokaðir bílar sem
og grindarbílar, beinskiptir sem sjálf-
skiptir. Alveg sama var hvers konar
gerð þeirra var undir ökumanni,
lipurðin skein af þeim. Sem dæmi
þá var ekið alveg upp að Benedictin-
klaustrinu í Montserrat sem er mörg
hundruð metra kræklótt klifur upp
bratta fjallshlíð. Það reyndist hinn
skemmtilegasti akstur og eins og ekið
væri á liprum fólksbíl. Tog vélarinn-
ar í bílnum, sem var reyndar af
öflugustu 177 hestafla útfærslu, gerði
það að verkum að rösklega mátti
fara og á ótrúlega skömmum tíma
blasti fegurð klaustursins við. Sama
lipurðin gladdi svo ökumann þegar
farnir voru sveitavegir í nágrenni
Barcelona og ekki reyndist vandi að
snúast með bílana um þrengri götur
þorpa og bæja, sem og í Barcelona.
Afar vel fer um ökumann
Innanrými bílanna eru hugsuð
með ökumann og farþega í huga og
hrikalega vel fer um alla og innrétt-
ing þeirra beinlínis falleg. Bílarnir
er ótrúlega vel búnir, meðal annars
öryggiskerfum og til að mynda er
sjálfbremsandi búnaður í bílunum
og það sem staðalbúnaður. Fjar-
lægðarskynjarar, bakkstuðningskerfi
og hjálparkerfi fyrir aftanívagna eru
svo valkvæður búnaður. Rafvél-
vænn stýribúnaður vinnur á móti
gangstýrikröftum, svo sem sterkum
hliðarvindi. Skriðstillir eykur svo enn
á þægindin í akstri og þreytuskynjun
og fjölöryggishemlun eykur svo enn á
öryggið. Sem sagt, ferlega vel útbúnir
vinnubílar, eða eins og þeir MAN
menn segja; „That´s no Van – That´s
a MAN.“ MAN hefur sem sagt ruðst
með stæl inn á fjölbreyttan sendi-
bílamarkaðinn og það er einmitt líkt
MAN að gera það með svo miklum
stæl að hæglega má hafa eftir for-
svarsmönnum fyrirtækisins að þar
séu komnir hæfustu sendibílar sem í
boði eru. Það er afrakstur endalausra
prófana en TGE-sendibílunum var
ekið samtals 1.000.000 kílómetra við
prófanir.
MAN sendibílar fáanlegir
hérlendis á næsta ári
Kaupendur MAN sendibíla geta valið úr gríðarlegu úrvali í útfærslum.
Nokkrir af nýjum
sendibílum MAN
voru reyndir í ná-
grenni Barcelona
um daginn og þar
reyndust þeir svo
fáránlega liprir
að vork unnsemi
í garð sendibíl-
stjóra er alveg
horfin.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
–
1
7
-1
0
2
6
Við viljum hafa
pláss fyrir allt
Lífið tekur breytingum með tímanum. Börnin
stækka, þeim fjölgar, áhugamálin breytast,
ferðalögin lengjast. Það sem ekki breytist er að
við þurfum pláss fyrir alla og allt sem þeim fylgir.
Þegar þörf er á brúar Arion bílafjármögnun
bilið í bílakaupunum.
Kynntu þér kjörin og ólíkar leiðir á arionbanki.is
7 . N Ó V E M B E R 2 0 1 7 Þ R I Ð J U D A G U R8 B Í L A R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
BÍLAR