Fréttablaðið - 07.11.2017, Blaðsíða 28
Með T-Roc er
kominn fram einn
albesti jepplingur sem
framleiddur er. Það er
hreinlega brjálæðislega
skemmtilegt að aka
bílnum og hann liggur
eins vel og hægt er að gera
kröfu um varðandi
jepplinga.
KOSTIR OG GALLAR
VOLKSWAGEN
T-ROC
2,0 LÍTRA BENSÍNVÉL
190 HESTÖFL
FJÓRHJÓLADRIF
Eyðsla frá: 6,7 l/100 km í bl. akstri
Mengun: 155 g/km CO2
Hröðun: 7,2 sek.
Hámarkshraði: 216 km/klst.
Verð frá: 3.290.000kr.
Umboð: Hekla
Útlit
Aksturseiginleikar
Margir vélarkostir
Verð
Verð í dýrustu útfærslum
Þeir streyma hreinlega af færiböndunum litlu og sætu jepplingarnir og vart má finna
bílaframleiðanda sem ekki er búinn
að tefla fram sínum bíl í þessum
flokki. Nú er Volkswagen komið fram
með sitt útspil, T-Roc og það sperra
allir eyrun þegar þessi bílarisi kemur
fram með nýjan bíl. Sjaldnast mis-
heppnast þýska framleiðandanum
framleiðslan, markaðssetningin eða
salan á sínum bílum. Volkswagen
T-Roc fellur í B-stærðarflokk og
er talsvert minni en Tiguan jepp-
lingurinn sem Volkswagen hefur haft
í boði frá árinu 2007. Það er alveg
ljóst að T-Roc á eftir að mokseljast,
ekki bara í ljósi þess að hann fellur í
þann flokk bíla sem seljast hvað best í
heiminum öllum um þessar mundir,
heldur einnig vegna þess hve laglegur
hann er og góður akstursbíll. Að auki
mun hann bjóðast í fjöldamörgum
útfærslum og með mikið úrval véla,
eitthvað sem Volkswagen er þekkt
fyrir. Og það mun vart minnka eftir-
spurnina að í sinni ódýrustu útfærslu
mun hann kosta aðeins 3.290.000 kr.
Með þeim allra laglegustu
Volkswagen er ekki þekkt fyrir yfir-
drifna djörfung við hönnun nýrra
bíla sinna og það á enn eina ferðina
við T-Roc. Það sem T-Roc á þó einnig
sameiginlegt með öðrum VW bílum
er að hann er fagurlega hannaður
og gæti með árunum talist tímalaus
klassísk. Línur hans eru þó heldur
skarpari en á öðrum úr VW-fjöl-
skyldunni og virðist sem það sé
viðkvæðið hjá flestum bílaframleið-
endum í dag, þ.e. aðeins hvassari línur
og meiri karakter. T-Roc gengur langt
frá því eins langt og Toyota gerði við
hönnun annars vel heppnaðs C-HR
jepplings síns, sem er afar djarflega
teiknaður og af svipaðri stærð og
T-Roc. T-Roc er einfaldlega fallegur
frá öllum hliðum, en þó skal viðra þá
skoðun að afturendinn er hvað best
heppnaður og erfitt að telja upp betri
slíka. Volkswagen fer sömu leið og
margur annar bílaframleiðandinn nú
að bjóða T-Roc með öðrum lit á þaki
og með fjölbreyttu litaúrvalinu má
með því búa til ári margar útfærslur
á þessum fallega bíl. Sem dæmi, þá er
bíllinn í bláum lit með hvítt þak alveg
hrikalega flottur og ekki skemma
mjög laglegar álfelgurnar sem fylgja
með. Margar aðrar útfærslur eru
gullfallegar og hver og einn á að geta
fundið sína draumasamsetningu.
Mikið vélaúrval
og kraftaköggull
Sem fyrr segir klikkar Volkswagen
ekki á vélaúrvalinu og býður T-Roc
með 6 vélagerðum, þremur bensín-
vélum og þremur dísilvélum. Þarna
gerir Volkswagen mun betur en
margur annar bílaframleiðandinn
þar sem oft skortir á meira úrval og
að minnsta kosti eina öfluga gerð.
T-Roc má nefnilega fá með 190
hestafla bensínvél og er sá bíll ekki
nema 7,2 sekúndur í hundraðið.
Vélarnar eru frá 115 til 190 hestafla og
sú aflminnsta er ekki nema 1,0 lítra
og þriggja strokka vél. Staðreyndin
er bara sú að flestar af þeim þriggja
strokka vélum sem bjóðast í smærri
bílum nú eru ári skemmtilegar,
hljóma vel og duga þeim flestum. Það
mun vafalaust einnig eiga við í tilfelli
T-Roc en nú við kynningu T-Roc, sem
fram fór í nágrenni Lissabon í Portú-
gal, var sá bíll ekki til reynslu þar sem
framleiðsla hans er ekki hafin. Þar
voru hins vegar 150 hestafla dísilút-
gáfa hans og 190 hestafla bensínbíll.
Svo athyglivert er að bæði dísilvélarn-
ar þrjár og bensínvélarnar þrjár eru
115, 150 og 190 hestöfl og allar for-
þjöppudrifnar. Með minnstu bensín-
og dísilvélunum er T-Roc aðeins
með framhjóladrifi, með öflugustu
vélunum eingöngu með fjórhjóladrifi
en með 150 hestafla vélunum fæst
hann bæði með fjór- og framhjóla-
drifi. Fá má bæði 6 gíra beinskiptingu
og 7 gíra DSG-sjálfskiptingu.
Frábær akstursbíll
Með T-Roc er kominn fram einn
albesti jepplingur sem framleiddur
er. Það er hreinlega brjálæðislega
skemmtilegt að aka bílnum og hann
liggur eins vel og hægt er að gera
kröfu um varðandi jepplinga. Hann
er ekki mikill eftirbátur í akstri við
Golf fólksbílinn þó háfættari sé. Er
þar ekki leiðum að líkjast. Alveg
sama var hvort bílnum var ekið í
þröngum bæjum, hraðari akstri á
þjóðvegum eða á fáförnum þröngum
sveitavegum, alls staðar stóð T-Roc
sig frábærlega og sakar það ekki fyrir
þá sem aka munu bílnum á þýskum
Autobahn að hann er líka fær um
gríðarmikinn hraða og hagaði sér líkt
og góður sportbíll við þær aðstæður.
Með 190 hestafla bensínvélinni
minnti bíllinn á Golf GTI, slíkt er
aflið. Að innan er T-Roc afar smekk-
legur og sver sig mjög í ætt ann-
arra Volkswagen bíla, með fremur
einfalda en greinilega vel smíðaða
innréttingu þar sem allt er innan
handar, skiljanlegt og auðlært. Ytri
litur bílsins er færður inn í innrétting-
una og verður hann mjög frísklegur
fyrir vikið, en sumum gæti þótt það
ungæðislegt, en alls ekki greinarrit-
ara. Skott bílsins er vel rúmt, eða 445
lítrar og 1.290 lítrar með aftursætin
niðri. Hekla mun kynna T-Roc til
sögunnar í þessum mánuði svo biðin
eftir bílnum er ekki löng. Verðið er
frá 3.290.000 og upp yfir 5 milljónir í
öflugustu og best búnu gerð hans.
Stormsveipur í flokki minni
jepplinga í formi VW T-Roc
T-Roc frá Volkswagen er flott útspil í þennan vinsælasta flokk bíla í heiminum í dag. Þar fer fagur bíll
sem býðst með miklu vélaúrvali í hrikalega mörgum útfærslum, en umfram allt frábær akstursbíll.
Það er greinilega í mikilli tísku að bjóða nýja bíla með öðrum lit á þaki bílanna. Það kemur einkar vel út hér.
Litaútfærslurnar í T-Roc eru nánast óteljandi.
Ytri litur bílsins er færður í innanrýmið og það gefur frísklegt yfirbragð.
7 . N Ó V E M B E R 2 0 1 7 Þ R I Ð J U D A G U R10 B Í L A R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
BÍLAR