Fréttablaðið - 07.11.2017, Qupperneq 30
Í síðasta mánuði bauðst blaða-mönnum að líta nýjan Nissan Leaf augum í Ósló, en hvar annars
staðar væri meira viðeigandi að
sýna þennan vinsæla rafmagnsbíl.
Norðmenn eru svo ginnkeyptir fyrir
rafmagnsbílum að það sem liðið er
af þessu ári hefur fjórði hver nýr bíll
sem þar er keyptur verið hreinrækt-
aður rafmagnsbíll. Noregur hefur
fyrir löngu tekið forystuna í heim-
inum á þessu sviði, en það jákvæða
er að Ísland er í öðru sæti þegar
kemur að hlutfallslegum kaupum á
rafmagnsbílum. Það gladdi vafalaust
margan bílablaðamanninn að sjá
að ný kynslóð Nissan Leaf bílsins
ber ekkert endilega með sér að þar
fari rafmagnsbíll, hann er orðinn
eins og hver annar fallegur bíll og
það stendur ekki „stórum stöfum“
á honum að þar fari bíll knúinn
rafmagni. Nýr Nissan Leaf er býsna
laglegur bíll og það á bæði við ytra og
innra útlit hans. Farangursrými hans
hefur líka aukist úr 370 lítrum í 435.
Mikið fé í þróun rafmagnsbíla
Renault-Nissan hefur á undan-
förnum árum lagt mikið í þróun
rafmagnsbíla og hefur til þess fjár-
fest fyrir um 550 milljarða króna.
Það er ekki lítið fé og því ekki nema
von að það komi eitthvað einkar
gott út úr því. Einn árangur þess er
sá að Nissan Leaf er vinsælasti raf-
magnsbíll heims og hefur nú þegar
selst í 295.000 eintökum um allan
heim. Það er þó ekki bara Nissan
Leaf sem selst vel meðal rafmagns-
bíla því Renault Zoe er söluhæsti
rafmagnsbíll í Evrópu, auk þess sem
sala rafmagnsdrifinna sendibíla
Renault-Nissan hefur vaxið hröðum
skrefum og hraðar en í tilviki fólks-
bílanna. Þrátt fyrir allt umtalið um
rafmagnsbílaframleiðandann Tesla
þá er Renault-Nissan miklu stærri
rafmagnsbílaframleiðandi þó svo
umtalið um bíla þeirra rati kannski
ekki eins oft á fréttasíðurnar.
Stærsti rafmagnsbílafram-
leiðandi heims
Renault-Nissan er einfaldlega
stærsti framleiðandi rafmagns-
bíla í heiminum og framleiðir um
fjórðung allra þeirra rafmagnsbíla
sem seljast í heiminum nú. Nissan
spáir því að um 30% nýrra bíla sem
seljist árið 2027, eftir aðeins 10 ár,
verði rafmagnsbílar. Það er því ekki
nema von að stór hluti þróunarfjár
Renault-Nissan fari í rafmagnsbíla.
Frá því Renault-Nissan hóf að selja
rafmagnsbíla hefur tilkoma þeirra
sparað alls um 600 milljón tonn af
CO2 mengun. Því magni hefði verið
spúð út í loftið ef bílar með brunavél
hefðu verið keyptir í þeirra stað.
Með 379 km drægni
og bráðum 500 km
Ný kynslóð Nissan Leaf lofar góðu
og það ekki bara fyrir nýtt og glæsi-
legt útlitið. Fyrir það fyrsta er hann
með 379 km drægni, þökk sé 40
kWh rafhlöðu, en síðasta gerð Leaf
var með 30 kWh rafhlöðu. Með nýrri
22kW hleðslustöð frá Renault-Niss-
an má hlaða bílinn að fullu á aðeins
tveimur klukkustundum heima hjá
sér, en Nissan hefur fundið út að yfir
80% eigenda Nissan Leaf hlaða bílinn
eingöngu heima hjá sér. Með 7 kW
hleðslustöð frá Renault-Nissan má
fullhlaða bílinn á 5,5 klukkustundum.
Rafmótorar Nissan Leaf eru nú 150
hestöfl og togið 320 Nm, en þetta afl
dugar til að hraða bílnum í hundr-
aðið á rétt innan við 10 sekúndum.
Þrátt fyrir stóraukna drægni nýs Leaf
ætlar Nissan að bjóða enn stærri
rafhlöður í bílinn eftir eitt til eitt og
hálft ár og þá á hann að komast um
500 km á fullri hleðslu. Með því er
Leaf orðinn enginn eftirbátur Tesla
bíla hvað drægni varðar, þrátt fyrir að
vera miklu ódýrari.
Framtíð Nissan er
rafmögnuð
Nýr Nissan Leaf var kynntur í Ósló á dögunum og þar fer
mun fríðari bíll en forverinn og drægni hans er orðin 379
km. Nissan Leaf er söluhæsti rafmagnsbíll heims og þessi
nýja kynslóð mun vafalaust tryggja áframhald á því.
Nýasta kynslóð Nissan Leaf er mun fegurri en forverinn.
Í byrjun árs 2015 heimsótti Joann Muler, blaðakona hjá Forbes, fyrirtækið Munro Associates
í Detroit sem sérhæfir sig í verk-
fræðilegri ráðgjöf til framleiðslu-
fyrirtækja í ýmsum greinum
iðnaðar með það að markmiði að
flýta þróun þeirra á markaðshæfum
vörum til neytenda. Muler heim-
sótti fyrirtækið þegar sérfræðingar
þess höfðu nýlega rifið nýjan BMW
i3 í frumeindir, stykki fyrir stykki,
til að skilja til fullnustu hugmynda-
fræði BMW að baki smíði rafmagns-
bílsins sem þá var nýkominn á
markað Norður-Ameríku. Jafnframt
voru allir kostnaðarþættir við
smíðina greindir nákvæmlega og
upplýsingarnar settar í skýrslu sem
seld var öðrum bílaframleiðendum
með verkfræðilegri ráðgjöf um það
hvað þeir gætu lært á aðferðafræði
og háþróuðum tæknilausnum sem
BMW hannaði fyrir rafmagnsbílinn
i3.
Þróaðasti bíll heims
„Þetta er án nokkurs efa þróaðasti
bíllinn í heiminum í dag,“ sagði
Sandy Munro, framkvæmdastjóri
fyrirtækisins í viðtalinu við Muler
og vísaði þar til yfirbyggingar bíls-
ins, rafhlöðu hans og fleiri þátta sem
skiptu sköpum við þróun hans og
enginn annar bílaframleiðandi var
að nota þá. Þetta voru upplýsingar
sem aðrir höfðu kost á að kaupa
og hagnýta sér við eigin þróun og
framleiðslu á umhverfismildari
bílum. Yfirbygging i3 er t.d. úr lauf-
léttum og mjög sterkum koltrefjum
sem gera bílinn mun léttari en ella
hefði verið með notkun stáls eða
jafnvel áls á sama tíma og þær veita
farþegum bílsins fullkomna vernd
í umferðaróhappi vegna styrkleika
síns. Munro segir BMW i3 hafa
valdið jafn mikilli byltingu og Ford
Model T gerði á sínum tíma.
Nýjar lausnir með i3
BMW i3 er fyrsti fjöldafram-
leiddi bíllinn með yfirbyggingu úr
kol trefjum til að draga úr þyngd
bílsins og auka drægi rafhlöðunnar.
Einnig er bíllinn smíðaður úr fjölda
umhverfisvænna efna í innréttingu
sem skaða ekki umhverfið að líftíma
loknum. Hönnun rafhlöðunnar er
einnig af öðrum toga en hjá öðrum.
Snilldin að baki þróun BMW i3 afhjúpuð
Bók bílaáhugafólksins
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | www.forlagid.is
Opið alla virka daga 10–18 | laugardaga 11–15 |
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | www.forlagid.is
Opið alla virka daga 10–18 | laugardaga 11–15
Ómissandi bók fyrir
alla bílaáhugamenn!
Ný íslensk bók um sögu
Mercedes-Benz
Þú getur einnig
lesið Fréttablaðið
í heild sinni á Vísi
og í Fréttablaðs-
appinu.
... allt sem þú þarft
Þú færð appið á visir.is/fbl eða beint í gegnum
MEST LESNA DAGBLAÐ LANDSINS
7 . N Ó V E M B E R 2 0 1 7 Þ R I Ð J U D A G U R12 B Í L A R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
BÍLAR