Fréttablaðið - 07.11.2017, Side 46
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Finndu okkur
á facebook
Flísabúðin kynnir hágæða
Ítalska HELIOSA rafmagnshitara
HELIOSA hitarar henta
bæði innan- og utandyra.
Hitna strax, vindur hefur
ekki áhrif, vatnsheldir og
menga ekki.
Margar gerðir til á lager.
Flísabúðin
Stórhöfða 21 | s: 545 5500 | flis.is
Allur borðbúnaður
fyrir veitingahús
gsimport.is
892 6975
ára
Starfsmanna-
og munaskápar
www.rymi.is
LEIKSTJÓRI
Erlingur Óttar Thoroddsen
Bók
Lífsins
Hvað ertu að lesa núna?
Var að klára yndislega bók sem
heitir Call Me By Your Name eftir
André Aciman, og hún á eftir að
sitja í mér lengi.
Besta bók sem ég hef lesið
Uppáhaldsbókin mín er IT eftir
Stephen King, ein besta hrollvekja
sem skrifuð hefur verið og bók
sem ég týnist gjörsamlega í þegar
ég les hana (sem er orðið nokkuð
oft!).
Versta bók sem ég hef lesið
Ég reyni að forðast að nota orðið
„versta“ um bækur, bíómyndir eða
tónlist o.s.frv. því það var einhver
sem lagði gríðarlega vinnu í verkið
og ég ber mikla virðingu fyrir því.
En ég gafst upp á Mr. Mercedes
eftir Stephen King, sem ég myndi
nú samt segja að væri uppáhalds-
rithöfundurinn minn.
Hvað ætla ég að lesa næst
Er alltaf með nokkrar við rúmið
sem bíða eftir mér. Valið stendur
á milli Snjómannsins eftir Jo
Nesbø, Solaris eftir Stanisław Lem
eða Dreggja dagsins eftir Kazuo
Ishiguro, sem mér finnst ég verði
að lesa núna þegar hann er búinn
að fá Nóbelinn!
Leikarinn Þórhallur Sig-urðsson, eða Laddi eins og flestir þekkja hann, er að undirbúa sína fyrstu einkasýningu á myndlist sem hann hefur unnið að
undanfarin ár. „Þetta eru verk sem
ég er búinn að vera að dunda mér
við að teikna og mála í nokkur ár.
Flestar teikningar sem verða á sýn-
ingunni eru samt frá þessu ári.“
Spurður nánar út í verkin segir
Laddi: „Þetta eru mestmegnis
portrett, svona fígúrur, ekki alveg
mennskar. Ég teikna með blek-
penna og lita þetta með olíulitum
á pappír,“ útskýrir Laddi sem lýsir
verkum sínum sem litríkum.
Laddi segir það hafa staðið til að
fara í myndlist síðan hann var ungl-
ingur. „En ég komst aldrei í þetta.
Ég var alltaf teiknandi í gamla daga
en svo lenti maður í öðrum bransa
þannig að þetta sat á hakanum. Svo
þegar ég varð sextugur þá ákvað ég
að gera eitthvað í þessu, þannig að
já, það má segja að þetta séu um
tíu ár síðan að ég fór aftur að fikta í
þessu og lofaði sjálfum mér að halda
einkasýningu,“ segir Laddi sem varð
70 ára í janúar á þessu ári.
Aðspurður hvernig sýningin legg-
ist í hann segir hann þetta vera bæði
spennandi og stressandi. „Ég er með
hnút í maganum yfir þessu, þetta er
eins og að frumsýna leikrit. Þetta er
eiginlega sama, maður veit aldrei
hvernig fólk tekur þessu. Þetta er
bara spenna og kvíði.“
Þess má geta að á sýningunni
verða í kringum 20 verk og flest
í kringum stærð A3. Sýningin
verður opnuð á fimmtudag í
Smiðjunni Listhúsi, klukkan 20.
gudnyhronn@365.is
Stressandi eins og
að frumsýna leikrit
Leikarinn Þórhallur Sigurðsson, betur þekktur sem Laddi, mun
á fimmtudaginn opna sína fyrstu einkasýningu. Hann líkir því að
setja saman sýningu á listaverkum við að frumsýna leikrit.
Eitt af verkum Ladda.
Laddi teiknaði mikið á sínum yngri árum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ÉG VAR ALLTAF
TEIKNANDI Í GAMLA
DAGA EN SVO LENTI MAÐUR Í
ÖÐRUM BRANSA ÞANNIG AÐ
ÞETTA SAT Á HAKANUM.
7 . N Ó V E M B E R 2 0 1 7 Þ R I Ð J U D A G U R30 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð