Fréttablaðið - 07.11.2017, Síða 48

Fréttablaðið - 07.11.2017, Síða 48
Jóns Sigurðar Eyjólfssonar BAKÞANKAR Dreifing dreifing@postdreifing.is Ef blaðið berst ekki 800 1177 Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja mest lesna dagblað landsins. ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ. Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu. Eitt sinn gerði ég könnun meðal þrettán ára nemenda í skóla einum í Andalúsíu og spurði í hverju velgengni væri fólgin. Flestir svöruðu á þá leið að maður yrði að vera frægur, eiga fræga eða fallega kærustu eða kærasta, eiga pening eða einhver tól eða tæki af einhverri gerð. Fyrst varð ég óskaplega hissa en þegar ég fór að velta því fyrir mér hvað þau hafa fyrir augum og eyrum alla daga rann upp fyrir mér ljós. Ungmenni á Vesturlöndum lifa í heimi þar sem flest er dæmt eftir yfirborðinu en lítið skeytt um innihaldið. Afþreying og aug- lýsingaáróður sem við hellum yfir þau byggist á því að grípa athygli þeirra strax og vekja hjá þeim hégómagirnd og græðgi. Hag- sældin krefst þess nefnilega að við fjöldaframleiðum neysluvarga frekar en meðvitaðar manneskjur. Fjöldi ungs fólks fórnar því vel- ferð sinni með því að rembast við það óvinnandi verk að fullnægja hégómagirnd sinni og græðgi. En þessi afþreying og meira að segja áróðurinn er síður en svo af hinu vonda. Það er með þetta eins og allt annað, þetta er gott í hófi. Við þurfum kannski ekki að skilja þau umkomulaus eftir í þessum hégómaflaumi og svo finnst mér eins og við mættum gera meira af því að halda að þeim hlutum sem virkilega geta fyllt líf þeirra einhverju innihaldi og gleði sem stendur af sér nýjabrumið. Fátt er bjartara en augun í unglingi sem fundið hefur sína köllun, sína list, sína lífsfyllingu. Því ekki að hjálpa þeim meira með það? Og ef það þarf að slökkva á farsímanum á meðan, þá finnst mér að við ættum að hætta að vera þessar teprur og slökkva. Símafyrirtækin hljóta að lifa það af. Ung fórnarlömb hagsældar 14 0 280 Linds Flexo, 1310144 Fiskikongurinn_KORR , 17-JAN-13 YTTER catarina Sogavegi 3 Höfðabakka 1 KAUPIR 1 KG. FÆRÐ 2 KG. - GAMALDAGS HAKKBOLLUR - FISKIBOLLUR FISKIBOLLUR 2 1FYRIR OPIÐ ALLAN SÓLARHRINGINN Í ICELAND ENGIHJALLA, VESTURBERGI, ARNARBAKKA, GLÆSIBÆ OG STAÐARBERGI

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.