Árbók Nemendasambands Samvinnuskólans - 01.06.1974, Blaðsíða 30
anir hjá okkur öllum, en alltaf var líf og fjör og pabbi lét
brandarana f júka óspart. Þrátt fyrir allt annríki var alltaf
tími heima á Hávallagötu til að spjalla um það, sem efst
var á baugi. Það er áreiðanlega mikils virði, að fjölskyldur
geri það.“
Auður: „Mér finnst svo skemmtilegt að hugsa til þess,
þegar pabbi fór með okkur systurnar á sunnudagsmorgn-
um, þegar við vorum litlar, niður að sjó og sýndi okkur
fuglana og fræddi okkur um líf þeirra. Og enn kemur þessi
skemmtilega tilfinning upp í huga minn, þegar ég sé unga
feður ganga í rólegheitum á sunnudagsmorgnum með börn-
in sín og ég hugsa - þetta eru góðir pabbar, sem gefa sér
tíma til að sinna börnum sínum og ræða við þau. Þeir
stinga þeim ekki bara aftur í bílinn sinn eða gefa þeim pen-
ing, svo að þau geti farið í bíó og séu ekki fyrir.“
En þar kom, að þröngbýlið sagði svo til sín, að ekki varð
lengur við unað. Á þeim tíma hafði margt gerst, meðal
annars hafði Jónas haft forgöngu um byggingu héraðs-
skóla víðs vegar um landið, sem bjuggu við rúman húsa-
kost eftir því sem þá var um að ræða. En Samvinnuskólinn
sat við sitt. Jónas segir sjálfur í grein einhvers staðar á
þá leið, að í landsmálum sé ýmislegt, sem ekki þoli bið,
en samvinnuhreyfingin hafi hina rólegu, sígandi þróun. Og
nú skulum við aftur gefa honum orðið í „Samvinnuskól-
inn 30 ára“:
„Þegar her Breta settist að hér á landi vorið 1940, reistu
þeir herbúðir sínar á öllum auðum blettum í bænum og
víða í nágrenninu. Þá fullbyggðist á skömmum tíma sú lóð
á Amarhólstúni, sem fyrr átti að vera járnbrautarstöð.
Bjó þar mikill fjöldi hermanna. Þeir lögðu undir sig hina
hálfgerðu og mannlausu Þjóðleikhúsbyggingu, og stungu
reykpípum út um glugga, þar sem við mátti koma. Lagði
þykkan reykjarmökk úr eldstæðum Breta yfir Sambands-
húsið. Á hverjum morgni höfðu fjölmennir herflokkar
æfingar í portinu bak við húsið. Tók nú að gerast þröng-
býlt í Sambandshúsinu. Hafði Sambandið mjög fært út
kvíar á liðnum árum. Var Landsverzlunin (sem framan af
26