Árbók Nemendasambands Samvinnuskólans - 01.06.1977, Page 139
Valdimar bað fólk um að taka ekki dagblöð upp á her-
bergi með sér og áminnti það um góða umgengni. Einnig
las hann bréf frá Stúdentaráði Háskólans.
Jón Kristinsson var næstur á dagskrá og gerði grein
fyrir störfum nefndar þeirrar, er ræddi um styrk til Sam-
vinnuskólans. Höfðu þeir rætt við skólastjóra um þetta
mál og ætluðu að kanna málið frekar í Reykjavík.
Þá kom Björgúlfur upp og ræddi um hvort fengið yrði
sjónvarp hér á staðinn. Taldi hann eðlilegt að það kæmi.
Sagði hann að fréttir í því veittu meiri yfirsýn og að
margir fræðslu- og umræðuþættir og fleira væri mjög
æskilegur þáttur í þjóðfélaginu. Var bæklingi dreift um
salinn um þetta mál, en fundarstjóri áleit það óleyfilegt og
stöðvaði dreifinguna. Að lokum bar Björgúlfur fram til-
lögu þess efnis að farið yrði fram á við skólayfirvöldin,
að fá sjónvarp til afnota fyrir nemendur.
Baldur sté næstur í pontu og mótmælti tillögu Björg-
úlfs. Sagði hann að reglugerð hefði verið sett á fyrir nokkr-
um árum, um að nemendur mættu ekki vera á herbergj-
um sínum frá kl. 8—10 á kvöldin vegna mikillar deyfðar
í félagslífi skólans. Taldi að ef farið yrði fram á að sjón-
varp kæmi myndi skólastjóri beita þessari reglu aftur.
Einnig að oft hefði verið rætt um að flytja skólann til
Reykjavíkur og yrði það gert ef öll félagsstarfsemi félli
niður. SlS myndi ekki vilja halda skólanum gangandi hér,
ef það gerðist. Skoraði hann á alla þá, sem vildu efla fé-
lagslíf og félagsþroska skólans að vera gegn sjónvarpi.
Ragnheiður Gunnarsdóttir lét einnig í sér heyra og mót-
mælti hún sjónvarpinu kröftuglega. Spurði hún fundar-
menn, hvort þeir vildu fórna félagslífinu og félagsþrosk-
anum fyrir sjónvarp. Sagðist hún vera sannfærð um að
hún hefði ekki kynnst neinum hér, því ekki hefði sjón-
varp dreift feimninni.
Jörundur Ragnarsson kom næstur upp og skýrði frá
því, hvernig sjónvarpsmálið hefði hafist og taldi það ekki
hafa verið með lýðræðislegu móti. Fannst honum dag-
blöðin álíka góð fræðsla og sjónvarp og að klúbbaformenn
135