Fréttablaðið - 12.04.2017, Blaðsíða 2
Með verðmæti í innkaupakerru
„Almenningur hefur krafist og barist fyrir róttækum samfélagsbótum frá hruni en ekki fengið,“ segir Gunnar Smári Egilsson sem boðað hefur
stofnun Sósíalistaflokks Íslands á verkalýðsdaginn 1. maí. Mikil umræða hefur verið um fátækt í samfélaginu undanfarna mánuði en auðæfum
heimsins er misskipt. Sumir líða ekki skort meðan aðrir safna dósum og nota innkaupakerrur á annan veg en flestir. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Veður
Útlit er fyrir norðan 5 til 10 metra á
sekúndu með snjóéljum, en þurrt og
bjart veður suðvestantil á landinu.
Hiti frá vægu frosti í innsveitum fyrir
norðan, upp í 7 stiga hita syðst.
SJÁ SÍÐU 28
P Á S K A E G G
með piparfylltum lakkrís
SAMFÉLAG Ungir samkynhneigðir
karlar bera ábyrgð á 88 prósent til-
fella sárasóttar á síðasta ári og yfir 70
prósent lekandatilfella. Á árinu 2016
greindust 86 tilfelli af sárasótt, sem
er nánast tvöföldun frá fyrri árum.
Af þeim sem greinast yngri en 25 ára
eru karlar flestir í aldurshópnum
20–24 ára. Undanfarinn áratug hafa
einn til sjö greinst með sárasótt hér
á landi.
Þetta kemur meðal annars fram í
svari Óttars Proppé heilbrigðisráð-
herra við fyrirspurn Eyglóar Harðar-
dóttur um tíðni kynsjúkdóma hjá
börnum og ungmennum síðustu tíu
ár.
Þórólfur Guðnason sóttvarna-
læknir segir að fjölgun sé einnig í
HIV-hópnum en slíkt var ekki tekið
fyrir í fyrirspurninni. „Þessi aukning
varð sérstaklega áberandi á síðasta
ári. Það virðist vera að lekandi og
sárasótt séu sýkingar sem sjást aðal-
lega hjá karlmönnum sem stunda
kynlíf með öðrum karlmönnum.
HIV-aukningin er dreifð jafnar því
þar má finna sprautufíkla, gagnkyn-
hneigða en líka þá sem stunda kynlíf
með öðrum karlmönnum.“
Þórólfur segir að það sé erfitt að
ákveða af hverju þessar tölur rjúki
svona upp innan eins hóps. „Þetta
kann að stafa af því að hér áður fyrr
voru menn mjög hræddir við HIV.
Svo kom góð meðferð til að halda
þeim sjúkdómi niðri þótt það sé ekki
kominn lækning. Það virðist vera
að menn hafi fagnað of fljótt og þá
blossa upp hinir kynsjúkdómarnir
sem voru áður í algjöru lágmarki.“
Heilbrigðisráðherra skipaði starfs-
hóp í mars til að reyna að stemma
stigu við útbreiðslu kynsjúkdóma
og HIV og er Þórólfur í honum. „Við
ætlum að eiga samtal við marga aðila
um hvað er til ráða og hvað er hægt
að gera því það er ljóst að það þarf að
gera eitthvað.“
Helga Baldvinsdóttir Bjargar-
dóttir, framkvæmdastjóri Sam-
takanna '78, segir að samtökin séu
áhyggjufull vegna þessara tíðinda.
„Í ársskýrslu okkar kom fram að þrír
af sjö lykilhópum sem fá HIV eru
hinsegin og við vitum að samkyn-
hneigðir eru í sérstökum áhættu-
hóp. Það þarf að tækla þetta í sam-
hengi við fordóma. Þetta er stærri
vandi en að þeir séu ekki að passa
sig. Það er enn skömm hjá þeim sem
passa ekki í kassann.
Við höfum áhyggjur af þessu og
pössum að hjá Samtökunum erum
við með ókeypis smokka, leið-
beiningar um hvert sé hægt að fara
í skoðun og við viljum auka umræð-
una um kynheilbrigði.“ Hún bætti
við að samtökin væru ekki hluti af
starfshóp heilbrigðisráðherra.
benediktboas@365.is
Starfshóp til að stoppa
kynsjúkdómafaraldur
Mikil aukning hefur orðið á kynsjúkdómunum HIV, lekanda og sárasótt meðal
ungra samkynhneigðra karlmanna undanfarin ár. Starfshópur hefur verið settur
á laggirnar til að stemma stigu við faraldrinum og Samtökin '78 hafa áhyggjur.
Samtökin '78 lýsa yfir áhyggjum af stöðunni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Þórólfur
Guðnason
sóttvarnalæknir
86
greindust með lekanda í
fyrra. Smit tengist samkyn-
hneigð í yfir 70% tilfella.
FERÐAÞJÓNUSTA Hvalaskoðunarfyrir-
tækið Gentle Giants er í miklum vand-
ræðum með að koma bátum sínum í
slipp fyrir komandi vertíð en helsti
keppinautur þeirra hefur meinað þeim
aðgang að slippnum á Húsavík. Þetta
segir Stefán Guðmundsson, forstjóri
Gentle Giants.
Fyrirtæki í eigu Norðursiglingar
á slippinn á Húsavík. Norðursigling
og Gentle Giants eru stór fyrirtæki í
hvalaskoðun frá Húsavík sem veltir
milljörðum á hverju ári.
Hvalaskoðunarfyrirtækin tvö hafa á
síðustu árum eldað grátt silfur. Hefur
Gentle Giants til að mynda kvartað til
Neytendastofu varðandi markaðsher-
ferð Norðursiglingar um kolefnishlut-
lausa hvalaskoðun og hefur Norður-
sigling kvartað undan bátum Gentle
Giants á Skjálfandaflóa og sakað þá
um hávaða og brussuskap.
„Það er alveg klárt að þeir eru með
þessu að hefna sín á okkur fyrir það eitt
að hafa kvartað undan framsetningu
þeirra á því að vera kolefnishlutlausir.
Það er alveg augljóst,“ segir Stefán.
Guðbjartur Ellert Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Norðursiglingar, harð-
neitar þessu að verið sé að hefna fyrir
ákveðnar gjörðir. Hins vegar sé það
rétt að fyrirtækið hafi gefið það út að
ekki væri hægt að lofa þeim inn í slipp-
inn fyrir þessa vertíð.
„Við erum ekki í stríði við nokkurn
mann enda hvernig ættum við að þurfa
þess á meðan fjögur fyrirtæki eiga
fullt í fangi með að þjónusta alla þá
ferðamenn sem koma hingað í hvala-
skoðun.“ – sa
Meina keppinaut
sínum aðgang að
slipp á Húsavík
Gentle Giants gæti orðið af tekjum
við að komast ekki í slipp fyrir ver-
tíðarbyrjun. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
LÖGREGLUMÁL Rannsókn stendur yfir
á atviki þar sem ökumaður á svartri
Opel Astra bifreið elti tvö fimmtán
ára ungmenni á göngustíg í Laugardal
á mánudag. Samkvæmt upplýsingum
frá Jóhanni Karli Þórissyni, aðstoðar-
yfirlögregluþjóni hjá lögreglunni á
höfuðborgarsvæðinu, stendur til að
óska upplýsinga úr eftirlitsmynda-
vélum af svæðinu til að komast til
botns í málinu. Enginn hefur verið
handtekinn og lögreglan hefur ekki
komist á snoðir um um hvaða bíl er
að ræða. – snæ
Óska eftir
upptökum
Guðjóni og Sylvíu var illa brugðið í
Laugardalnum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
1 2 . A P R Í L 2 0 1 7 M I Ð V I K U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð