Fréttablaðið - 12.04.2017, Síða 15
Benedikt, það er ýmislegt við greinina þína sem birtist í blaðinu á föstudaginn, sem
mér finnst flott eins og til dæmis að
þú tekur á efnisatriðum í stað þess
að hjóla bara í manninn mig, þótt
þú gerir svolítið af því á hárbeittan
og elegant hátt. Þannig sýnirðu
svo ekki verður um villst að þú ert
snöggtum göfugri maður en ég.
Þegar Baldvin Jónsson, tengda-
faðir Bjarna frænda þíns, eigraði
um gangstétt fyrir utan kaffihús
á Skólavörðustígnum á fimmtu-
dagsmorguninn þegar bréf mitt til
Bjarna birtist og hneykslaðist á því
að maður með eins mikla menntun
og ég skrifaði svona grein gleymdist
honum að þótt það sé hægt að taka
mann eins og mig út úr niðurgraf-
inni kjallaraíbúð í Norðurmýrinni
er ekki nokkur möguleiki á því að
ná kjallaraíbúðinni út úr honum.
Meðan ég var prófessor við
Harvard og horfði út um gluggann á
marmarabyggingunni þar sem rann-
sóknarstofan mín var, sá ég gjarnan
glitta í moldarbeðið sem var það
eina sem ég sá út um glugga á Flóka-
götu 12. Nú þegar ég sit í risastórri
villu uppi á Vatnsenda og horfi til
fjalla dregur moldarbeðið stundum
fyrir allt annað útsýni og ég skipa
mér ósjálfrátt í sveit þeirra sem eiga
þess ekki kost að sjá annað út um
gluggana heima hjá sér. Slík eru belli-
brögð líffæris sem er innan höfuð-
skelja minna og þess vegna skrifa ég
svona greinar.
En þótt svörin þín, Benedikt,
við sögunum fjórum sem ég rakti
í bréfinu mínu til Bjarna, en tók
ekki undir, séu um margt skýr og
afdráttarlaus eru þau að vissu leyti
ekki eins gagnleg og ég reikna með
að við báðir vildum. Ástæðurnar eru
eftirfarandi:
Það fylgir því mikill heiður að
vera forsætisráðherra þjóðarinnar
en líka ábyrgð og skyldur ómældar.
Rúllugjaldið sem menn verða að
borga fyrir embættið er meðal ann-
ars að tengsl þeirra við viðskipta-
lífið séu gegnsæ og leiði ekki til
hagsmunaárekstra, raunverulegra
eða ímyndaðra. Þér finnst sjálfsagt
að það sé ósanngjarnt að ætlast til
þess að menn geti forðast ímyndaða
hagsmunaárekstra. Auðvitað er það
ósanngjarnt, en þær kröfur sem eru
gerðar til þess sem vill verða for-
sætisráðherra hljóta alltaf að vera
að vissu leyti ósanngjarnar. Það má
ekki gleymast að það eru ekki sjálf-
sögð mannréttindi að fá að vera for-
sætisráðherra, það eru forréttindi
sem hlotnast fáum. Það er alveg ljóst
að við erum í svolitlum vanda út af
hagsmunaárekstrum Bjarna sem
í augum sumra eru raunverulegir,
annarra ímyndaðir og í þínum sjálf-
sagt fráleitir. Hér eru tvö dæmi:
Þjónusta við ferðamenn er allt
í einu orðin stærsti atvinnuvegur
þjóðarinnar og við erum að reyna að
koma á hana einhvers konar skikki,
því eins og stendur er hún úr bönd-
um. Eigum við að láta ferðamenn
greiða aðgangseyri að landinu?
Eigum við að nota einhvers konar
náttúrupassa? Hvernig eigum við að
skattleggja þennan iðnað þannig að
við höfum efni á að reka hann með
reisn? Hér lendum við í vandræðum,
af því að sagan segir að fjölskylda for-
sætisráðherra eigi hluti í alls konar
fyrirtækjum í ferðamannaiðnaðin-
um. Hvernig göngum við frá málum
þannig að þjóðin hafi enga ástæðu til
þess að ætla að forsætisráðherra hafi
þannig áhrif á ákvarðanir ríkisstjórn-
arinnar í málefnum ferðamanna að
hún efist um það hvaða hagsmuni
hann beri fyrir brjósti.
Eignarhald fjölskyldunnar í þeirri
klíník í Ármúla sem langar til þess
að verða sjúkrahús er líka óheppi-
legt þegar menn velta fyrir sér
tregðu ríkisins til þess að fjármagna
almennilega Landspítalann og aðra
þætti hins ríkisrekna heilbrigðis-
kerfis. Menn velta því fyrir sér hvort
sú tregða geri rekstrarumhverfi klín-
íkurinnar betra.
Bjarni Benediktsson fæddist inn í
þennan heim hokinn af kostum sem
við viljum að prýði leiðtoga okkar og
ég dreg hvorki í efa heiðarleika hans
né góðan vilja og það hvarflar ekki
að mér að ásaka hann um að mis-
nota aðstöðu sína viljandi til þess að
hlúa að viðskiptum fjölskyldunnar.
Það fara hins vegar illa saman mikil
umsvif fjölskyldu hans í viðskiptum
og sá stíll að tjá sig ekki um þau og
verða pirraður út af þeim áhyggjum
sem þau valda í samfélaginu. Ekki
hjálpar heldur dugnaður fjölskyld-
unnar. Það olli til dæmis Bjarna
töluverðu pólitísku tjóni þegar faðir
þinn þáði boðið um að taka þátt í
kaupunum á Borgun. Hvers vegna
heldurðu að honum hafi verið boðin
þátttaka í þessum viðskiptum? Það
var góður díll fyrir hann en það má
leiða að því rök að með honum hafi
hann hvorki sýnt Bjarna mikla tillits-
semi né embætti fjármálaráðherra
þá virðingu sem það á skilið.
Mér skilst að þegar vinir og sam-
starfsmenn Bjarna hafi bent honum
á vandann sem er rakinn hér að ofan
segi hann réttilega að hann geti ekki
bannað ættingjum sínum að stunda
viðskipti. Rétt er það og ekki er víst
að það myndi þjóna samfélaginu
vel að þeir gerðust allir kúabændur
norður í Eyjafirði. Það má vel vera að
það eina sem sé hægt að gera í þessu
sé að ræða vandann og reyna að
sannfæra þjóðina um að bæði eftir-
litsstofnanir og fjölskyldan séu sér
meðvitandi um hann og geri allt sem
í þeirra valdi standi til þess að koma
í veg fyrir að hann valdi tjóni. Fyrsta
skrefið í þá átt er að viðurkenna að
vandinn sé til staðar. Það hefur hins
vegar reynst svo erfitt fyrir fjölskyldu
þína að það minnir um margt á Ant-
ons heilkennið. Antons heilkenni
heitir það þegar menn verða fyrir
skemmd í þeim hluta heilabarkar-
ins sem sér um sjón og verða fyrir
vikið blindir en afneita blindunni og
ganga á veggi og fyrir björg. Kannski
við ættum að kalla það Engeyjarheil-
kenni þegar menn sjá ekki hvernig
viðskipti þeirra vekja grunsemdir
um hagsmunaárekstra sem allir aðrir
sjá en þeir. En nú er ég að reyna að
vera fyndinn og fullt eins líklegt að
mér hafi mistekist.
Rúllugjald
Opið bréf til Benedikts Einarssonar
Kári Stefánsson
forstjóri
Íslenskrar
erfðagreiningar
Bjarni Benediktsson fæddist
inn í þennan heim hokinn
af kostum sem við viljum
að prýði leiðtoga okkar og
ég dreg hvorki í efa heiðar-
leika hans né góðan vilja og
það hvarflar ekki að mér
að ásaka hann um að mis-
nota aðstöðu sína viljandi til
þess að hlúa að viðskiptum
fjölskyldunnar. Það fara
hins vegar illa saman mikil
umsvif fjölskyldu hans í við-
skiptum og sá stíll að tjá sig
ekki um þau og verða pirr-
aður út af þeim áhyggjum
sem þau valda í samfélaginu.
HEKLA · Laugavegi 170-174 / Audi.is
Straumhvörf
Audi A3 e-tron sameinar tvo heima
50 kílómetra drægni* á raforkunni einni saman dugar í flestar ferðir
en með skilvirkri samþættingu rafdrifs og sparneytinnar bensínvélar
er samanlögð heildardrægni Audi A3 e-tron allt að 940 km.
Hann var valinn besti rafbíll ársins 2015 af What Car? og er með
fimm stjörnur í árekstrar- og öryggisprófunum hjá Euro NCAP.
Nú á frábæru verði frá
4.190.000 kr.
*S
kv
. N
ED
C
st
að
lin
um
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 15M I Ð V I K U D A G U R 1 2 . A P R Í L 2 0 1 7