Fréttablaðið - 12.04.2017, Page 15

Fréttablaðið - 12.04.2017, Page 15
Benedikt, það er ýmislegt við greinina þína sem birtist í blaðinu á föstudaginn, sem mér finnst flott eins og til dæmis að þú tekur á efnisatriðum í stað þess að hjóla bara í manninn mig, þótt þú gerir svolítið af því á hárbeittan og elegant hátt. Þannig sýnirðu svo ekki verður um villst að þú ert snöggtum göfugri maður en ég. Þegar Baldvin Jónsson, tengda- faðir Bjarna frænda þíns, eigraði um gangstétt fyrir utan kaffihús á Skólavörðustígnum á fimmtu- dagsmorguninn þegar bréf mitt til Bjarna birtist og hneykslaðist á því að maður með eins mikla menntun og ég skrifaði svona grein gleymdist honum að þótt það sé hægt að taka mann eins og mig út úr niðurgraf- inni kjallaraíbúð í Norðurmýrinni er ekki nokkur möguleiki á því að ná kjallaraíbúðinni út úr honum. Meðan ég var prófessor við Harvard og horfði út um gluggann á marmarabyggingunni þar sem rann- sóknarstofan mín var, sá ég gjarnan glitta í moldarbeðið sem var það eina sem ég sá út um glugga á Flóka- götu 12. Nú þegar ég sit í risastórri villu uppi á Vatnsenda og horfi til fjalla dregur moldarbeðið stundum fyrir allt annað útsýni og ég skipa mér ósjálfrátt í sveit þeirra sem eiga þess ekki kost að sjá annað út um gluggana heima hjá sér. Slík eru belli- brögð líffæris sem er innan höfuð- skelja minna og þess vegna skrifa ég svona greinar. En þótt svörin þín, Benedikt, við sögunum fjórum sem ég rakti í bréfinu mínu til Bjarna, en tók ekki undir, séu um margt skýr og afdráttarlaus eru þau að vissu leyti ekki eins gagnleg og ég reikna með að við báðir vildum. Ástæðurnar eru eftirfarandi: Það fylgir því mikill heiður að vera forsætisráðherra þjóðarinnar en líka ábyrgð og skyldur ómældar. Rúllugjaldið sem menn verða að borga fyrir embættið er meðal ann- ars að tengsl þeirra við viðskipta- lífið séu gegnsæ og leiði ekki til hagsmunaárekstra, raunverulegra eða ímyndaðra. Þér finnst sjálfsagt að það sé ósanngjarnt að ætlast til þess að menn geti forðast ímyndaða hagsmunaárekstra. Auðvitað er það ósanngjarnt, en þær kröfur sem eru gerðar til þess sem vill verða for- sætisráðherra hljóta alltaf að vera að vissu leyti ósanngjarnar. Það má ekki gleymast að það eru ekki sjálf- sögð mannréttindi að fá að vera for- sætisráðherra, það eru forréttindi sem hlotnast fáum. Það er alveg ljóst að við erum í svolitlum vanda út af hagsmunaárekstrum Bjarna sem í augum sumra eru raunverulegir, annarra ímyndaðir og í þínum sjálf- sagt fráleitir. Hér eru tvö dæmi: Þjónusta við ferðamenn er allt í einu orðin stærsti atvinnuvegur þjóðarinnar og við erum að reyna að koma á hana einhvers konar skikki, því eins og stendur er hún úr bönd- um. Eigum við að láta ferðamenn greiða aðgangseyri að landinu? Eigum við að nota einhvers konar náttúrupassa? Hvernig eigum við að skattleggja þennan iðnað þannig að við höfum efni á að reka hann með reisn? Hér lendum við í vandræðum, af því að sagan segir að fjölskylda for- sætisráðherra eigi hluti í alls konar fyrirtækjum í ferðamannaiðnaðin- um. Hvernig göngum við frá málum þannig að þjóðin hafi enga ástæðu til þess að ætla að forsætisráðherra hafi þannig áhrif á ákvarðanir ríkisstjórn- arinnar í málefnum ferðamanna að hún efist um það hvaða hagsmuni hann beri fyrir brjósti. Eignarhald fjölskyldunnar í þeirri klíník í Ármúla sem langar til þess að verða sjúkrahús er líka óheppi- legt þegar menn velta fyrir sér tregðu ríkisins til þess að fjármagna almennilega Landspítalann og aðra þætti hins ríkisrekna heilbrigðis- kerfis. Menn velta því fyrir sér hvort sú tregða geri rekstrarumhverfi klín- íkurinnar betra. Bjarni Benediktsson fæddist inn í þennan heim hokinn af kostum sem við viljum að prýði leiðtoga okkar og ég dreg hvorki í efa heiðarleika hans né góðan vilja og það hvarflar ekki að mér að ásaka hann um að mis- nota aðstöðu sína viljandi til þess að hlúa að viðskiptum fjölskyldunnar. Það fara hins vegar illa saman mikil umsvif fjölskyldu hans í viðskiptum og sá stíll að tjá sig ekki um þau og verða pirraður út af þeim áhyggjum sem þau valda í samfélaginu. Ekki hjálpar heldur dugnaður fjölskyld- unnar. Það olli til dæmis Bjarna töluverðu pólitísku tjóni þegar faðir þinn þáði boðið um að taka þátt í kaupunum á Borgun. Hvers vegna heldurðu að honum hafi verið boðin þátttaka í þessum viðskiptum? Það var góður díll fyrir hann en það má leiða að því rök að með honum hafi hann hvorki sýnt Bjarna mikla tillits- semi né embætti fjármálaráðherra þá virðingu sem það á skilið. Mér skilst að þegar vinir og sam- starfsmenn Bjarna hafi bent honum á vandann sem er rakinn hér að ofan segi hann réttilega að hann geti ekki bannað ættingjum sínum að stunda viðskipti. Rétt er það og ekki er víst að það myndi þjóna samfélaginu vel að þeir gerðust allir kúabændur norður í Eyjafirði. Það má vel vera að það eina sem sé hægt að gera í þessu sé að ræða vandann og reyna að sannfæra þjóðina um að bæði eftir- litsstofnanir og fjölskyldan séu sér meðvitandi um hann og geri allt sem í þeirra valdi standi til þess að koma í veg fyrir að hann valdi tjóni. Fyrsta skrefið í þá átt er að viðurkenna að vandinn sé til staðar. Það hefur hins vegar reynst svo erfitt fyrir fjölskyldu þína að það minnir um margt á Ant- ons heilkennið. Antons heilkenni heitir það þegar menn verða fyrir skemmd í þeim hluta heilabarkar- ins sem sér um sjón og verða fyrir vikið blindir en afneita blindunni og ganga á veggi og fyrir björg. Kannski við ættum að kalla það Engeyjarheil- kenni þegar menn sjá ekki hvernig viðskipti þeirra vekja grunsemdir um hagsmunaárekstra sem allir aðrir sjá en þeir. En nú er ég að reyna að vera fyndinn og fullt eins líklegt að mér hafi mistekist. Rúllugjald Opið bréf til Benedikts Einarssonar Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Bjarni Benediktsson fæddist inn í þennan heim hokinn af kostum sem við viljum að prýði leiðtoga okkar og ég dreg hvorki í efa heiðar- leika hans né góðan vilja og það hvarflar ekki að mér að ásaka hann um að mis- nota aðstöðu sína viljandi til þess að hlúa að viðskiptum fjölskyldunnar. Það fara hins vegar illa saman mikil umsvif fjölskyldu hans í við- skiptum og sá stíll að tjá sig ekki um þau og verða pirr- aður út af þeim áhyggjum sem þau valda í samfélaginu. HEKLA · Laugavegi 170-174 / Audi.is Straumhvörf Audi A3 e-tron sameinar tvo heima 50 kílómetra drægni* á raforkunni einni saman dugar í flestar ferðir en með skilvirkri samþættingu rafdrifs og sparneytinnar bensínvélar er samanlögð heildardrægni Audi A3 e-tron allt að 940 km. Hann var valinn besti rafbíll ársins 2015 af What Car? og er með fimm stjörnur í árekstrar- og öryggisprófunum hjá Euro NCAP. Nú á frábæru verði frá 4.190.000 kr. *S kv . N ED C st að lin um S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 15M I Ð V I K U D A G U R 1 2 . A P R Í L 2 0 1 7

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.