Fréttablaðið - 12.04.2017, Qupperneq 20
Meisturunum létt í Safamýri eftir að tryggja sér oddaleik
Fögnuður Leikmenn Íslandsmeistara Hauka fagna fjögurra marka sigri á spútnikliði Fram í einvígi liðanna í átta liða úrslitum Olís-deildar karla í
handbolta en með sigrinum jöfnuðu Haukar einvígið í 1-1. Oddaleikurinn fer fram á laugardaginn á heimavelli Hauka. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Keflavík - KR 84-86
Keflavík: Amin Khalil Stevens 39/19 fráköst/5
stoðsendingar, Guðmundur Jónsson 22,
Hörður Axel Vilhjálmsson 17/6 fráköst/6 stoð-
sendingar, Reggie Dupree 6
KR: Jón Arnór Stefánsson 16/8 fráköst,
Sigurður Á. Þorvaldsson 14/4 fráköst, Philip
Alawoya 14/7 fráköst, Darri Hilmarsson 13,
Kristófer Acox 10/5 fráköst/3 varin skot, Pavel
Ermolinskij 9/5 fráköst, Brynjar Þór Björnsson
8/5 fráköst, Þórir Þorbjarnarson 2.
KR vann einvígið, 3-1.
Domino’s-deild karla
Undanúrslitaeinvígi - Leikur 4
Fram - Haukar 24-28
Markahæstir: Þorgeir Bjarki Davíðsson 4,
Þorsteinn Gauti Hjálmarsson 4, Valdi-
mar Sigurðsson 3, Guðjón Andri Jónsson
3, Matthías Daðason 3 - Jón Þorbjörn
Jóhannsson 7, Daníel Þór Ingason 4, Tjörvi
Þorgeirsson 4, Elías Már Halldórsson 3.
Staðan í einvíginu er 1-1.
Grótta - FH 20-31
Markahæstir: Finnur Ingi Stefánsson 7/3,
Aron Dagur Pálson 4, Elvar Friðriksson 3, Júlí-
us Þórir Stefánsson 2, Nökkvi Dan Elliðason
2 - Óðinn Þór Ríkharðsson 9, Arnar Freyr
Ársælsson 7, Einar Rafn Eiðsson 5/1, Jóhann
Birgir Ingvasson 4, Ásbjörn Friðriksson 2
FH vann einvígið, 2-0.
Olís-deild karla
Átta liða úrslit, leikir 2
Juventus - Barcelona 3-0
1-0 Paulo Dybala (7.), 2-0 Paulo Dybala (22.),
3-0 Giorgio Chiellini (55.)
Dortmund - Mónakó
Leiknum var frestað vegna sprengjuárásar.
Meistaradeildin í fótbolta
Átta liða úrslit, fyrri leikir
18.30 Bayern - Real Madrid Sport
18.30 Atletico - Leicester Sport 2
20.45 Meistaramörkin Sport
23.00 Lotte Championship Golfst.
18.30 Valur - Hamar Valshöllin
19.30 Selfoss - Aurelding Selfoss
20.30 Valur - ÍBV Valshöllin
Í dag
FÓTBOLTI „Þær völtuðu bara yfir
okkur í seinni hálfleik ef svo má
segja. Við vorum einhvern veginn
á hælunum fannst mér og þær
stútuðu okkur, vægt til orða tekið,“
sagði Margrét Lára Viðarsdóttir,
fyrir liði kvennalandsliðsins í fót-
bolta, við Vísi eftir 4-0 skellinn sem
liðið fékk í vináttuleik á móti Hol-
landi í Doetinchem í gærkvöldi.
Hollenska liðið komst í 1-0 með
skallamarki eftir fast leikatriði en
þar gleymdi Rakel Hönnudóttir sér
við að horfa á boltann með þeim
afleiðingum að EM-gestgjafarnir
komust yfir. Seinni hálfleikurinn
var svo skelfilegur hjá íslenska lið-
inu og mörkin ansi ódýr sem liðið
fékk á sig.
Sprellimörk
Freyr Alexandersson,landsliðs-
þjálfari, var vægast sagt ósáttur
þegar Fréttablaðið ræddi við hann
skömmu eftir leik.
„Fyrsta markið kemur eftir auka-
Dramatíserar ekki 4-0 tapið
Margrét Lára Viðarsdóttir, fyrirliði kvennalandsliðsins í fótbolta, hefur engar áhyggjur af liðinu þrátt fyrir
4-0 skell á móti Hollandi í gær. Hún segir ekkert lið betra en það íslenska að svara svona mótlæti.
Þetta er víti til
varnaðar því við
höfum ekki einu sinni fengið
svona skell á móti bestu
liðum heims
Margrét Lára
Viðarsdóttir.
spyrnu lengst utan af velli og við
erum bara að horfa á boltann. Þetta
setti svolítið tóninn fyrir það sem
svo gerðist í leiknum. Í framhaldinu
voru mistökin í báðum vítateignum
mörg. Við vorum að fá okkur hálf-
gerð sprellimörk sem við annars
fáum aldrei á okkur,“ sagði Freyr en
Ísland mætir aftur á þennan sama
völl þegar liðið mætir Sviss á EM.
„Það er virkilega góð umgjörð
hérna og völlurinn er flottur. Þegar
við mætum Sviss hérna í sumar
verður þetta blá gryfja. Þá munum
við gráta gleðitárum og ekkert kjaft-
æði.“
Víti til varnaðar
Margrét Lára var vitaskuld ósátt við
tapið enda sjaldgæft að stelpurnar
okkar fái annan eins skell.
„Við vorum eftir á í pressunni og
varnarleikurinn, sem hefur verið
okkar aðalsmerki, var ekki nógu
góður. Við vorum ekki nógu þétt-
ar og hleyptum þeim upp í hornin.
Þær spiluðu frábærlega og við
vorum ekki nægilega góðar. Þetta
er víti til varnaðar því við höfum
ekki einu sinni fengið svona skell
á móti bestu liðum heims sem við
höfum verið að spila við undanfarin
ár. Þetta snýst samt ekki um hvern-
ig maður er sleginn niður heldur
hvernig maður stendur upp og það
er ekkert lið betra í því en okkar lið,“
sagði Margrét Lára sem var ákveðin
til svars aðspurð hvort hún hefði
áhyggjur af stöðu liðsins eftir tapið:
„Nei, ég hef engar áhyggjur af
þessu. Þetta er bara hluti af pró-
gramminu. Þetta getur gerst og
kemur meira að segja fyrir bestu
liðin. Ef maður ætlar að ná árangri
þarf að geta staðið upp og risið aftur
eftir svona áfall. Það er ekkert lið
sem fagnar því meira að fá að sýna
karakter og sýna öllum að við getum
betur. Við vitum allar að við getum
miklu betur.“
Bara léleg frammistaða
Stelpurnar spiluðu nánast full-
kominn leik á móti Slóvakíu fyrir
helgi en í gær var allt að. Er hægt að
útskýra hvað gerðist, kannski and-
lega, á þessum dögum á milli leikja?
„Það gerðist ekkert andlega.
Mórallinn datt ekki niður. Hann er
og hefur alltaf verið frábær. Við töp-
uðum bara illa í dag,“ sagði Margrét
Lára og bætti við að lokum:
„Þetta var bara lélegur leikur. Við
vorum 1-0 undir í fyrri hálfleik en
svo brotnar liðið þegar við fáum á
okkur annað og þriðja markið. Það
þarf ekkert að dramatísera þetta um
of. Frammistaða okkar var bara léleg
í dag. Við vitum allar að við getum
miklu betur og ætlum að sýna það í
næsta leik.“ tomas@365.is
AXEL HEIM Í SKAGAFJÖRÐINN
Tindastóll er nú þegar byrjað
að styrkja sig fyrir
átökin í Dom-
ino´s-deild karla
í körfubolta á
næstu leiktíð
en í gær samdi
það við íslenska
landsliðsmann-
inn Axel Kárason til
tveggja ára. Axel hefur undanfarin
ár spilað í dönsku úrvalsdeildinni
með Svendborg Rabbits en hann
er að læra dýralækninn í Dana-
veldi. Axel var í EM-hópi Íslands
á EM 2015 og er líklegur til að fara
með liðinu til Finnlands í haust.
Þessi 34 ára gamli framherji er að
skora fjögur stig að meðaltali í leik
í dönsku úrvalsdeildinni en hans
helsti styrkleiki er frábær varnar-
leikur.
GUÐRÚN GRÓA SAMDI VIÐ VAL
Valskonur styrktu sig fyrir næstu
leiktíð í Domino´s-deild kvenna í
gær þegar liðið samdi við Guðrúnu
Gróu Þorsteinsdóttur. Hún lék síð-
ast í efstu deild 2013-2014 og varð
þá Íslandsmeistari með Snæfelli.
Hún fór á kostum í úrslitakeppn-
inni það árið og átti risastóran
þátt í titlinum sem Snæfell vann
þrátt fyrir að missa Kanann sinn í
meiðsli. Guðrún er stórkostlegur
varnarmaður sem spilaði síðast
fyrir nýráðinn þjálfara Vals, Darra
Frey Atlason, hjá KR.
1 2 . A P R Í L 2 0 1 7 M I Ð V I K U D A G U R20 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT