Fréttablaðið - 12.04.2017, Side 34
Í þessum mánuði
bættust þrettán
nýir glergámar við þá
sem fyrir eru á höfuð-
borgarsvæðinu.
Elín
Albertsdóttir
elin@365.is
Stórum hluta af því umbúða-gleri sem til fellur á höfuð-borgarsvæðinu er skilað
gegn greiðslu skilagjalds. Áætlað
er að um 1.600 tonn séu til við-
bótar af umbúðagleri í almennu
rusli. Með umbúðagleri er átt við
t.d. sultu- og sósukrukkur, matar-
olíu- og lýsisflöskur, allar aðrar
umbúðir en undan gosi eða víni.
Glerið má hvort sem er vera glært
eða litað en þarf að vera hreint
og ílát tóm. Ekki er ætlast til að
rúðugler fari í grenndargámana,
því má skila á endurvinnslu-
stöðvarnar.
Af hverju er mikilvægt að
flokka gler? Söfnun á gleri er
mikilvægur liður í undirbúningi
að gas- og jarðgerðarstöðinni en
glersöfnun kemur til með að auka
gæði þeirrar moltu sem þar verður
framleidd. Í dag er gler og steinefni
rúmlega fimm prósent af því sem
íbúar höfuðborgarsvæðisins setja
í gráu heimilistunnurnar eða um
átta kíló á hvern íbúa.
Gler nýtist sem fyllingarefni
við framkvæmdir og nýtist þá
með sama hætti og möl. Þannig
má draga úr námugreftri og
áhrifum slíkra framkvæmda á
umhverfið, auk þess sem dregið er
úr kostnaði.
Fjölgun grenndargáma
Í apríl bættust við þrettán nýir
glergámar sem settir hafa verið
víðsvegar í Reykjavík. Einnig
bættist við ný grenndarstöð í
Urriðaholti í Garðabæ þar sem
tekið er við pappír, plasti og gleri.
Endurvinnslustöðvar
Nú eru vorverkin í nánd og
minnum við á að endurvinnslu-
stöðvar SORPU eru opnar til kl.
18.30 alla daga vikunnar og taka
við yfir 30 mismunandi flokkum
til endurvinnslu og endurnýtingar.
Allar upplýsingar um grenndar-
stöðvar og flokkunarmöguleika
er að finna á nýjum flokkunarvef
SORPU á www.flokkid.sorpa.is
Stefnt að aukinni flokkun
Undirbúningur
vegna gas- og
jarðgerðarstöðvar
sem mun rísa í
Álfsnesi árið 2018
er í fullum gangi
og liður í því er
að auka flokkun
úrgangs til endur-
vinnslu og endur-
nýtingar. Grenndargámar sem taka við
flokkuðu rusli.
Séð fram í for-
stofuna þar sem
gömlu skápa-
hurðirnar eru
núna falleg,
dökk rennihurð.
Hurðin setur
mikinn svip á
umhverfið.
Það kennir margra grasa á síðunni hennar Soffíu. Hún segist alltaf hafa haft ástríðu
fyrir alls kyns hlutum, sérstak-
lega gömlum hlutum sem hægt sé
að finna nýtt líf. Soffía hefur auk
þess mjög gott auga fyrir slíkum
hlutum. Þegar hún sér eitthvað
gamalt, til dæmis á nytjamarkaði,
veit hún um leið hvers konar
breytingu er hægt að gera
til að endurskapa
hlutinn.
Það var ein-
mitt á nytja-
markaðnum
Von og
bjargir sem
Soffía sá
skápahurðir
sem hún féll
fyrir. „Mér
finnst svo
skemmti-
legt að nýta
gamalt og
einnig að útbúa
eitthvað sem kostar
ekki mjög mikið. Það
er auðvitað mjög auðvelt að
labba inn í fínu búðirnar og kaupa
sér eitthvað fallegt. En það kostar
mikla peninga,“ segir Soffía. „Ef
maður hugsar út fyrir kassann
getur maður stundum fengið sömu
útgáfu eða jafnvel betri á ódýran
hátt. Mér finnst sérstaklega gaman
að fara á nytjamarkaði og gramsa
svolítið,“ segir hún.
Soffía segist vera hrifin af alls
kyns hlutum. Hún segist ekki vera
mínímalisti. „Ég er safnari í eðli
mínu og hef alltaf verið. Ég var
bara fimmtán ára þegar ég fór að
kíkja á antíkmarkaði og kaupa
hina og þessa hluti. Afi minn,
Jökull Pétursson, var ljóðskáld
og skrifaði vísur á litla miða. Ég
fann tvo kassa af þessum miðum
frá honum og stillti þeim upp í
glerkassa og sýndi á Snapchat. Það
voru rosaleg viðbrögð. Ég vil því
benda fólki á að fara í geymslurnar
hjá ömmu og afa. Þar geta
leynst dýrgripir sem
gaman er að stilla
upp,“ segir Soffía.
Gömlu
skápa-
hurðirnar
sem Soffía
keypti
fyrir lítinn
pening
hjá Von
og bjargir
nýtast núna
sem renni-
hurð fyrir
þvottahúsinu
hjá henni. „Mér
finnst gamlar
hurðir svo fallegar. Við
vorum lengi búin að velta
fyrir okkur hvernig hurð myndi
henta þar sem rýmið er ekki stórt.
Ég málaði skápahurðirnar, við
settum þær saman og keyptum
braut til að setja hurðina upp sem
rennihurð. Ég er mjög ánægð með
hvernig þetta kemur út. Nánar má
sjá hvernig Soffía útbjó hurðina á
síðunni hennar skreytumhus.is.
Skápahurðir urðu rennihurð
Soffía Dögg Garðarsdóttir hefur verið með bloggsíðuna Skreytum hús frá
árinu 2010 og Facebook-síðu með yfir fjörutíu þúsund fylgjendum.
Þarna héngu gömlu skáphurðirnar á
nytjamarkaðnum.
Hurðirnar voru málaðar svartar með
útimálningu.
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 2 . A P R Í L 2 0 1 7 M I ÐV I KU DAG U R