Fréttablaðið - 12.04.2017, Síða 47

Fréttablaðið - 12.04.2017, Síða 47
Ragnheiður Tryggvadóttir heida@365.is Það fer eiginlega ekkert í ruslið hjá okkur nema matarafgang-ar og við notum maíspoka í ruslatunnuna. Við búum í blokk svo við höfum ekki enn þá farið að molta. Við tökum allan pappír frá, plast, gler og málm. Þegar ég kaupi inn fer ég með margnota taupoka og reyni að taka sem minnst af pappír og plasti heim,“ segir Helena Jónsdóttir jógakenn- ari, en hún hafði lengi ætlað sér að flokka allt heimilissorp. Helena og maður hennar, Árni Filippus- son, notuðu svo tækifærið þegar fjölskyldan flutti í stærra húsnæði fyrir þremur árum. Hollt mataræði ýtti henni einnig í þessa átt. „Ég versla mikið í búðum eins og Frú Laugu og Bændur í bænum og hef hugsað um mataræðið alveg frá því ég var tvítug. Mér fannst ekki passa að vera á þeirri línu, kaupa lífrænt og hugsa um dýravelferð en hugsa svo ekki lengra. Hvert fer þetta sem ég er að koma með heim? Hvað gerir það náttúrunni að henda bara öllu í ruslið? Ég vann líka í Jurtaapótekinu í nokkur ár þar sem allt er flokkað. Ég hafði samt ekki komið mér að því að flokka sjálf fyrr en við fluttum og nú fer ég ekki til baka. Þetta er ekkert mál og svo finnst mér þetta líka svo gefandi. Ég hefði auðvitað getað byrjað miklu fyrr,“ segir Helena. Í fjölskyldunni eru fimm manns og eru krakkarnir fjögurra, fimm og átta ára. Helena segir þau hjónin vilja að krakkarnir verði meðvituð um flokkun og endur- vinnslu og þau læri það sem fyrir þeim sé haft. „Það er gaman að hafa þau með í þessu. Við erum með eina stóra skúffu í eldhúsinu sem við notum undir pappír og plast. Þau spyrja út í hvað sé plast og hvað sé pappír en oft getur það vafist fyrir þeim. Við erum líka orðin dálítið pirrandi fjölskylda þegar við bendum gestkomandi krökkum á að eitthvað sem þau ætla að henda sé ekki rusl og sé hægt að endurvinna, en það hefur líka áhrif. Vinafólk okkar fór að flokka í framhaldinu og annað vinafólk, sem býr í einbýli, ætlar líka að fara að flokka, enda frábært að geta verið með tunn- urnar við húsið. Það eru grennd- argámar í nágrenni við okkur en í þá þarf að tína upp úr pokunum, sem getur verið vesen í leiðinlegu veðri. Frá fimm manna fjölskyldu kemur líka mikið og við höfum vanið okkur á að fara einu sinni í viku í Sorpu. Það er ótrúlega mikið plast í umferð utan um salöt og grænmeti, nammi og snakk. Tíu litlir frostpinnar í pakka eru allir pakkaðir í plast! Þá fylgja leikföngum miklar plastumbúðir. Jafnvel þó maður reyni að taka sem minnst heim fylgir alltaf eitthvað.“ Ekkert mál að flokka Helena Jónsdóttir fór að flokka heimilissorpið þegar fjölskyldan flutti í stærra húsnæði. Hjónin leggja áherslu á að krakkarnir læri að flokka. Helena segir þau hjónin leggja áherslu á að börnin læri að flokka á heimilinu. MYND/ÁRNI FILIPPUSSON AÐ FLOKKA TAKK FYRIR Græna tunnan er fyrir plast Þú getur pantað græna tunnu og gert aðrar breytingar á tunnusamsetningu á www.ekkirusl.is, í síma 411 1111 eða á sorphirda@reykjavik.is. Hvernig samsetning hentar þér? Plast er eitt algengasta efnið í umhverfi okkar. Notkun þess eykst í sífellu, en plastefni brotna mjög hægt niður í náttúrunni. Hlutur plasts er um 18% af þyngd blandaðs úrgangs í gráum tunnum en allur sá úrgangur er urðaður. Það þýðir að rúmlega þrjú þúsund tonn af plasti frá Reykjavík voru urðuð í Álfsnesi í fyrra. Græna tunnan er aukin þjónusta við söfnun á plasti sem áður var hægt að skila á grenndar- og endurvinnslustöðvar. Skil á plasti hafa aukist gríðarlega síðan hún var tekin í notkun. Hægt er að efnisendurvinna stóran hluta plasts og brennsla til orkunýtingar er ákjósanlegri valkostur en urðun í þeim tilvikum sem endurvinnsla er ekki fýsileg af einhverjum ástæðum. Reykjavíkurborg býður borgarbúum græna tunnu undir plastið. FÓLK KYNNINGARBLAÐ 7 M I ÐV I KU DAG U R 1 2 . A P R Í L 2 0 1 7

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.