Fréttablaðið - 12.04.2017, Blaðsíða 54
Markaðsvirði Haga gæti aukist um
allt að 5,8 milljarða króna ef sala
áfengis verður gefin frjáls. Þetta
kemur fram í nýju verðmati fyrir-
tækjagreiningar Arion banka á versl-
unarfyrirtækinu sem Markaðurinn
hefur undir höndum. Þar ráðleggur
bankinn fjárfestum að kaupa bréf í
Högum enda séu þau virði 58 króna
á hlut eða 20 prósentum hærra en
dagslokagengi félagsins í gær.
Verðmati Arion banka var dreift
fyrir viku og breyttist virðismats-
gengi hans á Högum tiltölulega lítið
frá síðustu útgáfu í desember þegar
bankinn mat bréfin á 59 krónur á
hlut. Í nýja matinu er bent á þætti
sem breytt geta afkomuhorfum
Haga og þar á meðal frumvarp um
breytingu á lögum um verslun með
áfengi og tóbak. Óljóst er hvert fram-
hald málsins verður og benda starfs-
menn bankans á að Hagar hafa ekki
dregið dul á áhuga sinn á að hefja
sölu áfengis í búðum. Hækkun á
markaðsvirði verslunarfyrirtækis-
ins ef frumvarpið verði að lögum
miði við að Hagar fái ákveðna hlut-
deild í rekstrarhagnaði Vínbúðar-
innar til samræmis við áætlaða
markaðshlutdeild á dagvörumark-
aði og að teknu tilliti til mögulegrar
fjárfestingar sem kynni að þurfa að
koma til.
Í verðmatinu er aftur á móti ekki
gert ráð fyrir breytingum á fyrir-
komulagi með sölu áfengis hér á
landi. Þar er einnig bent á að rúmur
mánuður er í opnun Costco hér á
landi og telur bankinn að skamm-
tímaáhrifin af komu bandaríska
verslunarrisans á rekstur Haga verði
enn meiri en spáð var í eldra verð-
matinu.
„Búðin mun vafalítið vera mikið
í fréttum til að byrja með, enda
miðað við áhuga landsmanna á að
gerast korthafar hjá versluninni má
fastlega gera ráð fyrir að opnunin
Verðmæti Haga geti aukist um
5,8 milljarða fari áfengi í búðir
Fyrirtækjagreining Arion banka segir markaðsverðmæti Haga geta aukist um 5,8 milljarða króna ef áfengi
fer í búðir. Ráðleggur fjárfestum að kaupa í Högum enda sé virði bréfanna 58 krónur á hlut. Skammtíma
áhrifin af komu Costco hingað til lands verði enn meiri en bankinn spáði í desember síðastliðnum.
Verðmat Arion inniheldur kaup Haga á Lyfju sem nú eru til meðferðar hjá Samkeppniseftirlitinu.
Vala Dröfn Jóhannsdóttir, mark-
aðsstjóri hjá Vistor, er nýkjörin
stjórnar formaður Frumtaka,
samtaka frumlyfjaframleiðenda
á Íslandi. Vala er 44 ára og býr í
Hafnar firði ásamt eiginmanni
sínum, Gísla Þorsteinssyni, mark-
aðsstjóra Nýherja, og börnum.
Hún er sameindalíffræðingur að
mennt en hefur einnig lokið námi
í alþjóðaviðskiptum og markaðs-
fræði. Vala hefur starfað í fimmtán
ár hjá Vistor hf., lyfjaheildsölu í
Garðabæ; fyrst sem sölufulltrúi og
svo markaðsstjóri fyrir lyfjafyrir-
tækin Novartis og Alcon.
Hvað hefur komið þér mest á óvart
það sem af er ári? Þrátt fyrir stór lof-
orð nýrrar ríkisstjórnar um að setja
heilbrigðismál á oddinn, erum við
komin aftur í þá stöðu að ekkert
fjármagn er í fjárlögum fyrir inn-
leiðingu nýrra lyfja á árinu. Í febrúar
á þessu ári var lofað að úr þessu yrði
bætt, en enn bólar ekkert á þessu
viðbótarfjármagni.
Hvaða app notarðu mest? Face-
book og Snapchat, en nota líka
mikið öpp með afþreyingarefni svo
sem Netflix til að horfa á þætti og
kvikmyndir.
Hvað gerir þú í frístundum þínum?
Ég nýti frítímann helst til að vera
með fjölskyldu og vinum. Mér finnst
líka ekkert betra en að slaka á í heita
pottinum á pallinum heima hjá mér
eftir annasaman dag.
Hvernig heldur þú þér í formi?
Ég byrjaði aðeins að hlaupa með
hlaupahópi FH síðasta sumar og
ætla að byrja á því aftur í vor. Yfir
vetrartímann er ég hins vegar ekki
mikið fyrir að vera úti, enda er ég
óttalegt stofublóm. Það má því segja
að hlaupaformið sé háð árstíðum.
Hvernig tónlist hlustar þú á? Ég
hlusta yfirleitt á vinsælustu tón-
listina hverju sinni í útvarpinu, en
ég hef líka mjög gaman af alls konar
heimstónlist.
Ertu í þínu draumastarfi?Já,
algjörlega. Í mínu starfi sameinast
mín helstu áhugamál, sem eru heil-
brigðismál, vísindi og samskipti
við fólk. Vinnan er mjög fjölbreytt
og engir tveir dagar eins. Svo er líka
svo skemmtilegt að vinna hjá Vistor
enda hef ég verið þar í fimmtán ár.
Hlaupaform stofublómsins er háð árstíðum
Svipmynd
Vala Dröfn Jóhannsdóttir
Ein algengustu mistök fjárfesta eru að elta ávöxtunartölur. Benjamin Graham, lærifaðir
Warrens Buffett, ræðir um þetta í
bókinni The Intelligent Investor
og kallar þann sem hagar sér með
þessum hætti Hr. Markað.
Sagan segir ekki endilega
til um framhaldið
Hr. Markaður er hrifinn af því sem
hefur hækkað í verði en vill losa sig
við eignir sem hafa lækkað. Fyrir
þessum verðbreytingum geta verið
góðar ástæður og sennilega hafa
þær ekkert um framtíðina að segja
en samt virðist honum líða betur
þegar hann hegðar sér með þessum
hætti. Þar sem hlutabréf sveiflast
reglulega talsvert í verði er ekki
óalgengt að Hr. Markaður kaupi eða
selji nálægt þeim tímapunkti sem
verðið breytir um stefnu. Raunar
segist Buffett leitast eftir því að eiga
viðskipti við Hr. Markað, sem vill
alltaf kaupa bréfin af honum dýrt
og selja ódýrt.
Því miður ræðst hegðun fjárfesta
oft af sögulegum gögnum fremur
en væntingum um framtíðina. Í
daglegu tali er jafnvel talað um að
verðbólgan „sé 1,9%“, krónan „sé
að styrkjast“ og hlutabréf jafnvel „í
frjálsu falli“. Réttara væri að segja að
verðbólgan hafi verið 1,9% síðustu
12 mánuði, krónan hafi styrkst og
hlutabréf hafi lækkað í verði.
Þetta villandi orðalag getur
valdið því að fjárfestar gefa sér að
hreyfingar síðustu daga eða vikna
séu varanleg stefna og taki ákvarð-
anir út frá því.
Frjálsa fallið búið
þegar fréttin berst?
Til gamans tók ég saman sjö síðustu
fréttir íslenskra fjölmiðla um að
hlutabréf fyrirtækja væru „í frjálsu
falli“. Að meðaltali var mesta lækk-
un dagsins, frá lokagengi síðasta
viðskiptadags, 19,3%, sem vissu-
lega er umtalsverð lækkun. En var
fallið frjálst?
Þegar litið er á gengið viku eftir
að fréttin var skrifuð höfðu hluta-
bréfin að meðaltali hækkað um
1,6% og um 5,5% sé miðað við 30
daga.
Úrtakið er kannski full lítið til að
kalla mætti fréttir sem þessar kaup-
tækifæri en þar sem Hr. Markaður
leynist víða væri ekki úr vegi að
endurskoða orðalagið.
Björn Berg. Gunnarsson, fræðslu-
stjóri VÍB.
Í frjálsu
falli?
Björn Berg. Gunnarsson, fræðslu-
stjóri VÍB.
Mér finnst líka
ekkert betra en að
slaka á í heita pottinum á
pallinum heima hjá mér eftir
annasaman dag.
56
milljarðar er það sem mark-
aðsverðmæti Haga nam við
lokun markaða í gær
Því miður ræðst
hegðun fjárfesta oft
af sögulegum gögnum
fremur en væntingum um
framtíðina.
Vala Dröfn Jóhannsdóttir, markaðsstjóri Vistor.
Finnur Árnason,
forstjóri Haga.
verði eins og stökkbreytt samanlögð
opnun Lindex og Dunkin’ Donuts.
Að okkar mati er því rétt að fara með
enn varfærnari forsendur inn í 2017-
18 rekstrarárið og höfum við lækkað
bæði forsendur um tekjuvöxt og
brúttóframlegð enn frekar frá síð-
asta mati,“ segir í verðmati Arion
banka og þar bent á að Hagar hafi
aftur á móti fækkað óhagstæðum
leigufermetrum um 4.200 fermetra
frá síðasta mati.
haraldur@frettabladid.is
1 2 . A P R Í L 2 0 1 7 M I Ð V I K U D A G U R8 MARKAÐURINN