Fréttablaðið - 14.03.2014, Blaðsíða 1
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012
Föstudagur
16
RAGNHEIÐUR UM HELGINAÍslenska óperan Ragnheiður eftir Gunnar Þórðar-
son og Friðrik Erlingsson hefur hlotið frábæra
dóma. Tvær sýningar verða um helgina í Eld-
borgarsal Hörpu. Með aðalhlutverk fer Þóra
Einarsdóttir en Elmar Þór Gilbertsson fer
með hlutverk Daða. Óperan er sýnd kl. 20
laugardag og sunnudag.
M atreiðslumaðurinn Úlfar Finnbjörnsson sér um sjónvarpsþáttinn Eldað með Holta á ÍNN. Þar eldar hann ljúffenga rétti úr Holta-kjúklingi fyrir áhorfendur. Hér færir Úlfar okkur upp-skrift að kjúklinga- og rækjubollusúpa með blönd-
uðu grænmeti og spennandi kryddi. Hægt er að
fylgjast með Úlfari elda þessa girnilegu máltíð í kvöld
klukkan 21.30 á sjónvarpsstöðinni ÍNN. Þættirnir verða
svo endursýndir yfir helgina. Einnig er hægt að horfa á
þá á heimasíðu ÍNN, inntv.is.
ELDAÐ MEÐ HOLTA HOLTA KYNNIR Úlfar Finnbjörnsson er einn færasti kokkur landsins. Hann
sér um sjónvarpsþáttinn Eldað með Holta á ÍNN. Þar fáum við að fylgjast með
honum elda ljúffenga kjúklingarétti úr Holta-kjúklingi.
SKEMMTILEG NÝJUNG
Ferskar kryddjurtir og bragðgóðar sósur ein-kenna þennan rétt.MYND/DANÍEL
KJÚKLINGA- OG RÆKJUBOBLÖ
Eftir fertugt framleiðir líkaminn 50% minna Nitric Oxide. SUPERBEETS örvar Nitric Oxide framleiðslu strax.Betra blóðflæði, allt að 30% æðaútvíkkun,30% meiri súrefnisupptaka, réttur blóðsykur,aukin fitubrennsla, 20% meira þrek orka ogúthald, hraðar bata eftir æfingar.Bætt ris hjá körlum, aukin kynörvun kvenna. Nitric Oxide hefur áhrif á og bætir: Blóðþrýst-ing, k ólesteról, h jarta- æða- og tau kþvagblöð
Betra blóðflæðiBetri líðan - betri heilsa
Lífi ð
14. MARS 2014
FÖSTUDAGUR
Mundi Vondi
fatahönnuður
ÚTIVISTARLÍNA Í
SAMSTARFI VIÐ
66°NORÐUR 2
Eva Dögg og Anna
Sóley í Ampersand
DEILA ÖLLU Í
FATASKÁPUNUM
SÍNUM 4
Auðunn Blöndal
sjónvarpsmaður
GEFUR STUTT-
BUXUR EIÐS
SMÁRA10
2 SÉRBLÖÐ
Lífið | Fólk
Sími: 512 5000
14. mars 2014
62. tölublað 14. árgangur
SKOÐUN Pawel Bartoszek
skrifar um slappa þjónustu
ÁTVR utan borgarinnar. 17
MENNING Schubert-oktett-
inn fluttur á hádegistónleik-
um í Kaldalóni. 26
LÍFIÐ Sviðslistahópurinn
Spegilbrot safnar sjálfsmynd-
um Íslendinga á Instagram. 38
SPORT Frumraun Finns
Freys Stefánssonar þjálfara
KR fer í sögubækurnar. 34
LÍFIÐ
FRÉTTIR
Draumur að veruleika
Tinna Hrafnsdóttir hefur verið
umkringd leiklist meira og minna allt
sitt líf. Í forsíðuviðtali við Lífið segir
hún frá sínu fyrsta leikstjórnarverkefni.
KÖNNUN Samfylkingin og Björt
framtíð fengju níu borgarfulltrúa
af fimmtán yrði gengið til sveit-
arstjórnarkosninga nú og gætu
því haldið óbreyttu meirihluta-
samstarfi eftir kosningar, sam-
kvæmt niðurstöðu nýrrar skoð-
anakönnunar Fréttablaðsins og
Stöðvar 2.
Björt framtíð er stærsti flokk-
urinn í borginni, með stuðning
28,3 prósenta borgarbúa og fimm
borgarfulltrúa, samkvæmt könn-
uninni.
Samfylkingin mælist með
23 prósenta fylgi og Sjálfstæð-
isflokkurinn nánast hnífjafn
með 23,1 prósent. Báðir flokkar
fengju samkvæmt því fjóra borg-
arfulltrúa.
Litlu munar á Vinstri græn-
um, sem eru með stuðning 9,5
prósenta borgarbúa, og Píröt-
um, sem mælast með 9,6 pró-
sent. Flokkarnir næðu báðir inn
einum borgarfulltrúa miðað við
þá niðurstöðu.
Hvorki Framsóknarflokkur-
inn né Dögun myndu ná nægum
stuðningi til að koma manni í
borgarstjórn samkvæmt niður-
stöðunum könnunarinnar. Um 3,7
prósent borgarbúa styðja Fram-
sóknarflokkinn og 1,1 prósent
styðja Dögun.
- bj / sjá síðu 4
Könnun sýnir sterkan
meirihluta í borginni
Björt framtíð og Samfylkingin fá öruggan meirihluta í Reykjavík samkvæmt könn-
un Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Sjálfstæðisflokkurinn mælist með fjóra borgarfull-
trúa en Framsókn nær ekki inn manni. Vinstri græn og Píratar með sama fylgi.
Kosningar 29.5.2010
Könnun 12.3.2014
*Bauð fram undir merkjum Besta flokksins í
kosningunum árið 2010.
Heimild: Könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 þann
12. mars 2014.
6
5
4
3
2
1
0
*
6
5 5
4 4
3
1 1 1
Fjöldi borgarfulltrúa
Sun.16. mars kl.13:30
MAN. UTD.-LIVERPOOL
Sun.16. mars kl.16:00
TOTTENHAM-ARSENAL
Í opinni dagskrá á dominoshelgin.is
Nú er opio allan
sólarhringinn
í Engihjalla
ENGIR FORDÓMAR Í ÓSI Pollapönkarar sungu fordómana burt í gær við mikinn fögnuð krakkanna í leikskólanum Ósi.
Tilefnið var kynning á líkamsvirðingarbókinni Kroppurinn er kraftaverk. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Bolungarvík -2° NA 6
Akureyri 1° NA 6
Egilsstaðir 2° NV 3
Kirkjubæjarkl. 4° NV 3
Reykjavík 4° NA 2
Hiti breytist lítið Vindur verður fremur
hægur, yfirleitt norðlæg átt og 3-8 m/s.
Stöku él við norðurströndina en annars
fremur skýjan en úrkomulítið. 4
UTANRÍKISMÁL Ísland stendur
frammi fyrir nýrri og harðari
milliríkjadeilu við Evrópusam-
bandið, Noreg og Færeyjar eftir
að þjóðirnar gerðu með sér sam-
komulag til fimm ára um makríl-
veiðar.
Ljóst er að mótaðilar í makríl-
deilunni teygðu sig langt til að
semja um veiðar í stofninum án
vitundar íslenskra stjórnvalda.
Þingmenn stjórnarandstöðunn-
ar segja ríkisstjórnina hafa verið
fíflaða.
Þung orð féllu í garð allra land-
anna á Alþingi í gær og ekki síst
Færeyinga. Í þingræðu við upp-
haf þingfundar í gær sagði Bjarni
Benediktsson fjármálaráðherra
framkomu ríkjanna forkastanlega
og það krefðist harðra viðbragða
stjórnvalda.
Gunnar Bragi Sveinsson utan-
ríkisráðherra kallaði fulltrúa allra
þjóðanna til fundar í gær og kom
mótmælum íslenskra stjórnvalda
formlega á framfæri. - shá / sjá síðu 8
Ný og harðari milliríkjadeila eftir makrílsamning ESB, Noregs og Færeyja:
Segja stjórnvöld höfð að fífli
➜ Þung orð féllu á Alþingi í
gær í garð Noregs, Færeyja
og Evrópusambandsins.
TÓNLIST Ásgeir Trausti er á tón-
leikaferðalagi um Bandarík-
in. Hann kom fram á South By
South west-hátíðinni í Austin í
Texas skammt
frá þeim stað
þar sem hræði-
legt slys varð
sem kostaði
tvær manneskj-
ur lífið.
„Eftir að við
kláruðum tón-
leikana okkar
var okkur boðið á staðinn þar
sem slysið átti sér stað en við
afþökkuðum það boð því við
vorum svo þreyttir. Hálftíma
síðar fréttum við af þessu skelfi-
lega slysi,“ segir Ásgeir Trausti.
„Við rétt sluppum í raun og þarna
var greinilega mikið af fólki. Við
erum í sjokki yfir þessu.“
- glp / sjá síðu 38
Ásgeir slapp fyrir horn:
Í sjokki yfir
dauðaslysi
CIA njósnar um þingmenn For-
maður bandarískrar þingnefndar
segir CIA hafa njósnað um þing-
menn. 6
Endurgreiðsla kemur til greina
Seðlabankastjóri segir að til greina
komi að endurgreiða málskostnað
sinn vegna málaferla. 6
Fjárhagsaðstoð og hlutastarf
Markmiðið er að fækka fólki sem fær
beinar fjárhagsbætur frá Hafnarfjarð-
arbæ um helming. Í staðinn býðst því
hlutastarf. 12
ÁSGEIR TRAUSTI
SKÓLAMÁL Boðað hefur verið
til fundar í kjaradeilu kennara
klukkan tíu í dag. Fundað hefur
verið stíft alla daga vikunnar, en í
gærkvöld var viðræðum hætt um
klukkan sjö.
„Staðan hefur
skýrst nokkuð,“
sagði Ólafur H.
Sigurjónsson,
formaður Félags
stjórnenda í
framhaldsskól-
um, þegar Frétta-
blaðið ræddi við
hann í gærkvöld.
„Ég er ekki alveg jafn svartsýnn og
ég var um miðbik vikunnar.“
Hann sagði þó ómögulegt að spá
fyrir um framhaldið. Enn gæti
brugðið til beggja vona.
Í gær hafi verið farið yfir minn-
isblað með þeim atriðum, sem báðir
aðilar voru sammála um að brýnt
væri að fara yfir. „Þetta eru mál
sem voru ófrágengin og eru erfið,“
segir Ólafur. - gb
Síðasti kennsludagurinn:
Kennarar ekki
eins svartsýnir
ÓLAFUR H.
SIGURJÓNSSON