Fréttablaðið - 16.06.2017, Page 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —1 4 0 . T Ö L U B L A Ð 1 7 . Á R G A N G U R F Ö S T U D A G U R 1 6 . J Ú N Í 2 0 1 7
FRÍTT
Fréttablaðið í dag
SKOÐUN Þórir Stephensen
skrifar um málfar. 16
SPORT Ótrúlegir fimm dagar
Anitu. 18
MENNING Flugþrá og Farangur úr
fortíðinni á Ólafsfirði. 28
PLÚS 2 SÉRBLÖÐ FÓLK
FYRSTA HEIMILIÐ
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
J I B B Í
J E I
FRÍTT Í BÍÓ
SPARK KL. 15.10
CARS 3 KL. 17.00
vinningar að verðmæti
46.560.000 kr.
276 skattfrjálsir
Dregið 17. júní 2017
Krabbameinsfélagsins
Shappdræi
LÖGREGLUMÁL Búið er að leggja inn
kæru til lögreglu á hendur aflrauna-
manninum Hafþóri Júlíusi Björns-
syni. Á meðal þess sem fram kom í
skýrslutöku hjá lögreglu voru lýs-
ingar af atviki frá fimmtudeginum
8. júní síðastliðnum, sem Frétta-
blaðið greindi frá á laugardag, þar
sem Hafþór hljóp á eftir konu og reif
í hana eftir að hún hafði stokkið út
um glugga á heimili hans. Hafþór
staðfesti þá frásögn í
samtali við Fréttablaðið
í síðustu viku.
Þrjár konur sem
Fréttablaðið hefur
rætt við bera
honum sögu
um ofbeldi,
bæði andlegt
og líkamlegt.
– snæ/ sjá síðu 4
Hafþór kærður
til lögreglu
Hafþór Júlíus
Björnsson
SAMFÉLAG „Mér finnst Skandinavía
vera horfin. Það var mjög vel bókað
í kringum áramótin en þegar ham-
borgarinn er kominn í um 25 evrur
þá sér maður nánast bókanir hverfa af
bókunarsíðunum. Þetta er í kringum
35-40 prósenta fækkun á gestum,“
segir Árni Sigurpálsson, hótelstjóri
á hinu sögufræga Hótel Bjarkalundi.
Júnímánuður hefur farið illa af stað
fyrir ferðaþjónustufyrirtæki á Vest-
fjörðum og er mikið um afbókanir.
Munurinn á júní á milli ára er mikill.
Hrannar Pétursson sem á sæti í stjórn
Íslandsstofu, benti á þetta í þætti á
Hringbraut. Birna Mjöll Atladóttir,
hótelstjóri á Hótel Breiðavík, tekur
undir að gestum hafi fækkað sem og
Soffía Haraldsdóttir, eigandi Hótels
Flókalundar. „Ég held að þetta sé
gengið, lengi vel hélt ég að þetta væri
vegna Baldurs og vildi trúa því en
það getur ekki útskýrt allt. Júní hefur
verið mjög dapur en það glæðist nú
eftir helgi,“ segir Birna en hún er með
þremur færri stöðugildi í ár en á sama
tíma í fyrra. Árni hefur þegar sagt upp
fólki. „Það er ekkert að gera. Ég hef
talað við marga víða um land og það
er sama sagan.
Það hefur alveg komið upp í koll-
inn að skella bara í lás. Ef þetta lagast
ekki þá er enginn rekstrargrund-
völlur. Þá á maður ekki fyrir mán-
aðarlaunum,“ segir Árni sem tók við
rekstrinum á hótelinu árið 2005.
„Vorið er búið að vera kalt en þetta
er áhyggjuefni því gengið er svo kol-
ruglað. Ég tengi þessa fækkun bara
genginu.,“ segir hann.
Soffía Haraldsdóttir hjá Hótel
Flókalundi bendir á að fólk sem hafi
bókað í gegnum bókunarvefi sé dug-
legast að afbóka. „Ísskápsseglar sem
kosta eina evru í Evrópu kosta 15-20
evrur hér. Útlendingar skila honum
bara aftur þegar þeir sjá verðið.“
Hún segir að umferðin sé mikil
en fólk ferðist saman og sé með inn-
kaupapokana úr Bónus. „Það kemur
ekki inn nema til að kaupa sér kaffi-
bolla. Það er mikið af húsbílum núna
á vegunum. Þegar maður bankar á
gluggann þá fara þau bara burt.
Ég held að við séum með fullt af
fólki sem er komið til landsins sem er
ekki til í að borga neitt fyrir það.“ – bb
Ferðamönnum fækkar
mikið á Vestfjörðum
Þrír hótelstjórar á Vestfjörðum eru uggandi yfir stöðunni og segja að gestir séu
allt að 30 prósentum færri en í fyrra. Skandinavíubúar eru horfnir og ferðamenn
kaupa sér ekki lengur mat á veitingastöðum og í sjoppum.
Stuð á fyrsta degi Secret Solstice Margir lögðu leið sína í Laugardalinn til að fara á tónlistarhátíðina Secret Solstice, en fyrsti dagur hátíðarinnar var
í gær. Veðrið var milt eða í kringum tólf gráður og nutu gestir því að hlusta á tónleika úti. Áætlað er að um 20 þúsund manns sæki hátíðina sem nú er
haldin í fjórða sinn. Gestir eru bæði innlendir og erlendir. Á meðal þeirra sem komu fram í gær voru SSSól og Þórunn Antonía. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK