Fréttablaðið - 16.06.2017, Blaðsíða 26
Plaköt Rak-
elar eru til
sýnis í rúmgóðri
versluninni.
Ýmis dýr og
persónur úr Star
Wars myndum
sjást oft á plak-
ötum Rakelar.
Ég er mikill dýra-
vinur og hefur það
verið einn helsti inn-
blástur í verkum mínum
Starri Freyr
Jónsson
starri@365.is
Rakel Ólafsdóttir (t.h.) hannar skemmtileg plaköt sem hún selur í versluninni SKER sem hún og systir hennar
Rebekka opnuðu nýlega á Langholtsvegi. Þar selur Rebekka eigin línu af húðvörum. MYNDIR/ERNIR
Vef- og auglýsingahönnuður-inn Rakel Ólafsdóttir hefur teiknað og málað frá því hún
man eftir sér og elskar að vinna í
höndunum. Fyrir tveimur árum var
hún meðlimur í hönnunarhópi sem
tók að sér ýmiss konar margmiðl-
unarverkefni og tók meðal annars
þátt í pop up-markaði fyrir jólin
2015. Plaköt eftir Rakel vöktu þar
mikla athygli og í kjölfarið opnaði
hún vefverslunina Sker.is þar sem
hún selur plakötin sín.
Nýlega opnaði hún ásamt systur
sinni, Rebekku Ólafsdóttur, verslun
á Langholtsvegi undir sama nafni en
þar selja þær bæði hönnun Rakelar
og húðvörur systur hennar undir
nafninu RÓ naturals. „Við syst-
urnar höfum tekið að okkur ýmis
skapandi verkefni saman í gegnum
tíðina og hefur draumur okkar alltaf
verið að opna litla verslun. Hér
seljum við vörur okkar; hönnun
mína og húðvörur Rebekku, en
vörur hennar eru handunnar úr 100
prósent náttúrulegum hráefnum.
Þær innihalda því engin óþarfa
aukaefni eins og alkóhól, paraben
eða önnur rotvarnarefni. Ég kom
einmitt að útliti húðvaranna og
markaðsmálum í tengslum við þær
ásamt systur minni.“
Kolféll fyrir vatnslitum
Vegna mikilla anna undanfarin ár
var það ekki fyrr en í fæðingarorlofi
Rakelar fyrir þremur árum sem
hún byrjaði að teikna aftur eftir
langa pásu og kolféll hún þá fyrir
vatnslitum. „Ég er mikill dýravinur
og hefur það verið einn helsti inn-
blástur í verkum mínum eins og sjá
má á nýlegum verkum. Sterkasti og
eflaust þekktasti stíll minn er krot-
stíllinn og má þar nefna Star Wars
myndirnar sem seldar voru á fyrr-
nefndum pop up-markaði 2015.“
Krotstíllinn var ríkjandi í
verkjum hennar til að byrja með
og hefur hún mjög gaman af því að
vinna með þann stíl enn þá. Ásamt
því að teikna og mála plaköt hefur
hún einnig hannað ýmis grafísk
verk. „Yfirleitt hanna ég í settum
þar sem verkin tengjast hvert öðru
eða eru unnin í sama stíl og er hug-
myndavinnan byggð á því. Það er
mismunandi hvernig verkin eru
unnin en byrjunin er hugmynda-
vinna, þar næst skissur og að lokum
er málað, teiknað eða unnið í tölvu.“
Barnahorn og kaffi
Rekstur verslunarinnar hefur geng-
ið vonum framar fyrstu vikurnar að
sögn Rakelar og er stefnan að auka
vöruúrvalið jafnt og þétt og taka
inn nýja íslenska hönnuði. „Við
erum m.a. farnar að selja vörur frá
töskuhönnuðinum Klementinu og
fleiri bætast vonandi fljótlega við.“
Umhverfismál skipta þær miklu
máli eins og sjá má á umbúðum og
öðrum pakkningum í versluninni.
„Allar vörur RÓ naturals eru í
glerumbúðum og er viðskipta-
vinum gefinn kostur á að skila
inn tómum krukkum og flöskum í
skiptum fyrir 15 prósenta afslátt af
næstu vöru.“
Systurnar eru fjölskyldufólk og
því er að sjálfsögðu barnahorn í
versluninni og alltaf heitt á könn-
unni að sögn Rakelar. „Vinnuað-
Þar sem töfrarnir gerast
Við gerð plakata sinna sækir Rakel
Ólafsdóttir helst innblástur til dýra
enda mikill dýravinur. Star Wars
myndir hennar hafa þó helst vakið
athygli en þær byggja á krotstílnum.
Nýlega opnaði hún verslunina SKER
á Langholtsvegi í Reykjavík ásamt
systur sinni sem framleiðir húðvörur
úr 100% náttúrulegum efnum.
staða okkar er baka til þar sem
töfrarnir gerast en þar er aðstaða
til að blanda húðvörurnar og sinna
verktakavinnu í auglýsingagerð
ásamt annarri markaðsvinnu.“
Nánari upplýsingar um hönnun og
vörur þeirra Rakelar og Rebekku má
finna á www.sker.is og á Facebook
(SKER og RÓ naturals).
365.is Sími 1817
333 krá dag*
Tryggðu
þér áskrift
*9.990.- á mánuði.
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 6 . J Ú N Í 2 0 1 7 F Ö S T U DAG U R