Fréttablaðið - 16.06.2017, Side 30
Að mála er eflaust ódýrasta og einfaldasta leiðin til að fríska upp á heimilið og
gjörbreyta því. Verslanir BYKO
bjóða upp á mikið úrval af gæða
málningu og málningarvörum
fyrir fagfólk jafnt sem heimili, segir
Ágúst Bjarki Jónsson, svæðisstjóri
málningardeildar BYKO í Breidd-
inni.
„Við seljum hágæðamálningu
frá Málningu, sem er íslensk
framleiðsla, og einnig frá norska
framleiðandanum Gjøco. Um leið
bjóðum við upp á öll þau efni sem
þarf til málunar innan- og utan-
húss, s.s. grunna, spartl, málningu,
lökk, gólflökk, viðarvörn, þak-
málningu, bæs, sprey og húsgagna-
olíur.“
Í Breiddinni má líka finna gott
og mikið úrval af vönduðum
málningarverkfærum, segir Ágúst.
„Þar má nefna nauðsynleg verkfæri
á borð við pensla, rúllur, sköft,
bakka, sköfur, yfir- og undir-
breiðslur og svo mætti lengi telja.
Í raun má segja að í verslun okkar
sé einfaldlega allt sem til þarf á
einum stað.“
Framúrskarandi starfsfólk
Í Breiddinni, eins og í öðrum
verslunum BYKO, starfa bæði fag-
lærðir iðnaðarmenn og menn með
mikla reynslu í faginu, að sögn
Ágústs. „Við erum einfaldlega með
framúrskarandi starfsfólk með
langan starfsaldur og við búum því
að mikilli reynslu og þekkingu á
þessu sviði sem við miðlum til við-
skiptavina með faglegri ráðgjöf og
góðri þjónustu.“
Verslunin í Breiddinni hefur
stærstu málningardeild verslana
BYKO og því lagt mikið upp úr
þjónustu, góðu vöruúrvali og góðu
verði, segir Ágúst. „Hér getum við
blandað alla liti. Viðskiptavinir
geta komið með hluti að heiman
sem við getum skotið á með
litaskanna og blandað málningu í
sama lit. Það er ekki óalgengt að fá
hingað inn litríka bangsa til að ná
sama lit fyrir barnaherbergið.“
Í dag er mött málning vinsæl á
veggi segir Ágúst. „Við erum með
mjög góða málningu frá Gjøco sem
heitir ROM Supermatt. Þetta er
mött akrýl vegg- og loftamálning
með gljástig 1. Hún gefur yfirborð-
inu hágæða matta áferð og er mjög
þægileg og auðveld í notkun. Hún
þekur líka frábærlega sem skiptir
miklu máli.“
Laus við leysiefni
Gjøco býður einnig upp á Bliss
innimálningu sem er sérstaklega
þróuð með heilsu viðskiptavina
í fyrirrúmi, að sögn Ágústs. „Hún
er laus við leysiefni og er lyktar-
lítil þar sem uppgufun er lítil sem
engin. Barnshafandi konur,
ofnæmis- og astmasjúklingar og
lítil börn eru einstaklega viðkvæm
fyrir slíkri uppgufun. Því mæla t.d.
astma- og ofnæmissamtök Noregs
(NAAF) með Bliss málningunni
frá Gjøco. Bliss málningin er líka
merkt með Svansmerkinu og
Blóminu, sem er umhverfismerki
ESB.
Á vef BYKO má finna flestar þær
tegundir af málningu og málning-
arfylgihlutum sem verslunin selur
og hægt er að ganga frá kaupum
þar og láta senda vörur heim gegn
vægu gjaldi. „Vefverslun er klárlega
framtíðin í verslun á Íslandi og við
erum að vinna í því að gera enn
betur í þeim málum. Í framtíðinni
á viðskiptavinurinn að geta nálgast
allar þær upplýsingar á vefnum
sem hann getur fengið í dag beint
frá okkur hér á staðnum.“
Nánari upplýsingar má finna á
www.byko.is.
„Við seljum hágæðamálningu frá Málningu, sem er íslensk framleiðsla, og einnig frá norska framleiðandanum Gjøco,“
segir Ágúst Bjarki Jónsson, svæðisstjóri málningardeildar BYKO í Breiddinni. MYNDIR/EYÞÓR
Frískaðu upp á heimilið
Í verslunum BYKO fæst hágæða málning frá Málningu og Gjøco. Þar má einnig finna mikið úrval
af vönduðum málningarverkfærum fyrir fagmenn jafnt sem heimilið. Reynslumiklir starfsmenn
starfa í BYKO sem taka vel á móti viðskiptavinum og leiðbeina með næstu skref.
4 KYNNINGARBLAÐ 1 6 . J Ú N Í 2 0 1 7 F Ö S T U DAG U R