Fréttablaðið - 16.06.2017, Síða 36
Ungt fólk að hefja búskap, og sem hefur ekki úr miklu plássi að spila, á sérstaklega
mikið í okkur,“ segir Birna Magnea
Bogadóttir, sölustjóri IKEA. „IKEA
hefur alltaf lagt áherslu á að bjóða
upp á vel hannaðan gæðahúsbún-
að sem hentar þessum hópi. Við
leyfum okkur að kalla okkur sér-
fræðinga í smærri vistarverum þar
sem þarf að nýta hvern blett sem
best.“ Birna nefnir eldhúsið sem
dæmi; þar sé oft ekki mikið pláss,
en í IKEA fáist úrval af borðum og
stólum sem hægt sé að fella saman
og spara þannig pláss þegar þörf
krefji. Eins fáist smærri baðinnrétt-
ingar sem taki lítið pláss en nýtist
mjög vel. „Svo eru ýmis atriði sem
er gott að hafa í huga á smærri
heimilum eins og að nota nett hús-
gögn, sem er jafnvel hægt að fella
saman, og nýta veggplássið vel. Það
getur til dæmis munað heilmiklu
að láta hillur og skápa ná alveg
upp í loft eða koma hirslum fyrir
undir rúmum og skápum,“ útskýrir
Birna.
Lýsing sem breytir vinnu-
rými í borðstofu á auga-
bragði
Birna segir ekki óalgengt að sjá
fólk með málbandið í versluninni
þegar verið er að finna stærri hús-
muni sem þurfi að koma fyrir í litlu
rými. „Svo þegar nauðsynlegustu
húsgögnin eru komin, þá er gaman
að leika sér svolítið; skreyta með
lýsingu og veggskrauti og leyfa
litum og vefnaðarvöru að setja
punktinn yfir i-ið.“ Birna segir nýja
möguleika í lýsingu hjálpa til við
að gera meira úr litlu rými. „IKEA
ljósastýring er frábær nýjung hjá
okkur. Ljósastýringarkerfi hafa
hingað til verið í dýrari kantinum
og þannig ekki verið á færi margra
þeirra sem eru að flytja að heiman.
Við getum boðið þessar vörur á
áður óséðu verði en með þeim
færðu fjarstýrða lýsingu og getur
skapað réttu stemninguna við
hvert tilefni, til dæmis meiri og
kaldari birtu fyrir vinnutörnina og
skipta svo yfir í hlýrri og dempaðri
birtu þegar tekið er á móti gestum.
Þannig má í raun fá meira út úr
takmörkuðu rými.“
Snjöll hönnun á
heimsmælikvarða
„IKEA hefur gert mikið af því
undanfarin misseri að vinna með
þekktum hönnuðum að nýjum
línum sem fást í takmarkaðan tíma
og þær höfða sterkt til unga fólks-
ins,“ að sögn Birnu. Þær séu oft
svolítið djarfari en almennt gerist
hjá fyrirtækinu og þeim hafi verið
vel tekið af þeim hópi viðskipta-
vina sem hefur auga fyrir hönnun.
„Snjallar smáhirslur hafa líka verið
vinsælar. Nýja EKET línan er dæmi
um það, enda á góðu verði og hill-
urnar fást í nokkrum stærðum og
litum. Þeim má svo raða saman
eftir smekk og aðstæðum.“ Svo
megi ekki gleyma því að ungt fólk
búi oft á stúdentagörðum eða í
leiguhúsnæði þar sem ekki megi
bora í veggi eða breyta miklu.
„Fyrir slíkar aðstæður eigum
við mikið úrval af frístandandi
hirslum sem krefjast ekki mikilla
framkvæmda en gefa nóg pláss
fyrir allt sem gott er að geta geymt
úr augsýn.“
Ungt fólk meðvitaðra um
umhverfisvernd
Úrvalið af smávöru virðist enda-
laust í IKEA; skreytingar, speglar,
kassar og smáhirslur, vefnaðarvara
og annað sem gerir heimilið nota-
legt og persónulegt. „Í raun er hægt
að ganga hér inn og fá nánast allt
í einni ferð. Allt frá innréttingum
og heimilistækjum til púða og
pottablóma. Það er meira að segja
hægt að kaupa í matinn á leiðinni
út,“ segir Birna brosandi. „Þegar
kemur að hópi yngri viðskipta-
vina, þá tökum við líka eftir því
að hann hefur mikinn áhuga á að
gera heimilið notalegt og er mjög
meðvitaður. Ungu fólki í dag er
virkilega umhugað um samfélags-
mál og það hefur til dæmis mun
sterkari skoðanir á umhverfis-
vernd en margir sem eldri eru.
Það er góðs viti, og við getum stolt
sinnt þessum hópi með öflugri
samfélagsábyrgð og vörum sem
teljast umhverfisvænar, bæði hvað
framleiðslu og notagildi varðar.“ Í
því samhengi megi nefna sjálf-
bærari bómull, sem framleidd er
á umhverfisvænni hátt, LED perur
sem spari orku og svo auðvitað
flokkunarfötur og ílát sem einfaldi
endurvinnslu á heimilinu. „Það
er óhætt að segja að við leggjum
okkur fram um að sinna ungu fólki
vel í versluninni. Þar eru upp-
sett heimili sem gefa hugmyndir
um hvernig hægt er að koma sér
fyrir þar sem pláss er af skornum
skammti, vöruúrvalið er hannað
með það í huga og það ættu allir
sem eru að innrétta fyrsta heimilið
að finna snjallar hugmyndir hjá
okkur,“ segir Birna að lokum.
IKEA hefur alltaf
lagt áherslu á að
bjóða upp á vel hannað-
an gæðahúsbúnað sem
hentar þessum hópi. Við
leyfum okkur að kalla
okkur sérfræðinga í
smærri vistarverum þar
sem þarf að nýta hvern
blett sem best.
Birna Magnea Bogadóttir
EKET veggskáp-
ar eru fallegar
og notadrjúgar
hirslur sem
fást í ýmsum
stærðum og
litum. Þeim
má raða upp á
nánast óteljandi
vegu.
Baðinnréttingar
IKEA eru hann-
aðar fyrir jafnvel
smæstu bað-
herbergi. Hér er
plássið nýtt vel
fyrir hirslur sem
geyma allt frá
eyrnapinnum til
handklæða.
Nett eldhús sem tekur ekki marga fermetra. KUNGSBACKA hurðir og skúffuframhliðar eru úr
endurunnum viði og endurunnum plastflöskum. Í einni hurð eru 25 hálfs lítra flöskur.
Til að nýta plássið sem best er gott að hafa nóg af hirslum og fullnýta plássið, til dæmis undir rúminu.
Birna Magnea Bogadóttir, sölustjóri
IKEA.
Sérfræðingar í smærri rýmum
Það er stórt
skref að flytja að
heiman og stofna
sitt fyrsta heimili.
Þótt það sé afar
ánægjulegt skref
þá er það líka
krefjandi verkefni.
Ungt fólk á sínu
fyrsta heimili þarf
að vera útsjónar-
samt, bæði hvað
pláss og peninga
varðar, en útkom-
an þarf ekki að
vera neitt minna
en glæsileg.
10 KYNNINGARBLAÐ 1 6 . J Ú N Í 2 0 1 7 F Ö S T U DAG U R