Fréttablaðið - 16.06.2017, Síða 40
Spagettípitsa með
mozzarella og basilíku
Botn:
300 g spagettí, soðið
2 egg
1 dl parmesanostur
Salt og pipar
Ólífuolía
Setjið spagettí, egg og nýrifinn
parmesanost í skál og blandið
vel saman. Kryddið til með salti
og pipar. Dreifið spagettíinu á
pappírsklædda ofnplötu og bakið
í ofni við 200°C í 5 mínútur. Þegar
sá tími er liðinn er pitsan tekin út
úr ofninum og kæld rétt á meðan
sósan og annað meðlæti er undir-
búið og svo fer pitsan aftur inn í
ofn í smá stund.
Tómat- og basilíkusósa
1 msk. ólífuolía
1 hvítlauksrif
½ laukur
1 hvítlauksrif
350 g saxaðir tómatar í dós eða
passata
1 kjúklingateningur
1 msk. smátt söxuð basilíka
Salt og pipar
Hitið olíu á pönnu, saxið niður
hvítlauk og lauk og steikið upp
úr olíunni í smástund þar til
laukurinn er orðinn mjúkur.
Bætið söxuðum tómötum út á
pönnuna ásamt hálfum kjúklinga-
teningi, saxið niður basilíku og
bætið henni saman við. Hrærið
vel í sósunni og kryddið til með
salti og pipar. Leyfið sósunni að
malla í nokkrar mínútur. Smyrjið
spagettíbotninn með tómat- og
basilíkusósunni.
Skerið niður mozzarellaost og
dreifið yfir sósuna, kryddið
gjarnan pitsuna með salti og pipar.
Bakið í ofni við 200°C í 15 mínútur
eða þar til botninn er orðinn
gullinbrúnn.
Þegar pitsan er klár er gott að skera
niður ferskt kál, til dæmis kletta-
salat, og dreifa yfir pitsuna ásamt
því að rífa niður parmesanost og
dreifa yfir. Berið strax fram.
Steikarloka með chili
bernaise sósu
Baguette-brauð
Nautakjöt, má vera hvaða biti sem
er (eldaður)
Sveppir
Laukur
Hvítlauksrif
Smjör
Klettasalat
Bernaise sósa – uppskrift til hliðar
Hitið ofninn í 200°C.
Skerið sveppi og lauk, steikið upp
úr smjöri á pönnu þar til laukurinn
er orðinn mjúkur í gegn. Geymið
til hliðar á meðan þið undirbúið
brauðið.
Skerið baguette-brauð í tvennt
og hitið í ofni í smástund þar til
brauðið er gullinbrúnt. Smyrjið
bernaise-sósu á botninn á bag-
uette-brauðinu, leggið salatblöð
yfir bernaise-sósuna, skerið niður
nautakjöt og leggið ofan á ásamt
steiktum sveppum og lauk. Í lokin
setjið þið væna skeið eða skeiðar
af bernaise-sósunni yfir og leggið
lokið á baguette-brauðinu yfir.
Berið strax fram og njótið.
Chili bernaise sósa
5 stk. eggjarauður
250 g smjör
1 msk. bernaise essence
2 tsk. fáfnisgras, smátt saxað (2-3
tsk.)
½ rautt chilialdin
Salt og nýmalaður pipar
Þeytið eggjarauður yfir vatnsbaði
og bætið smjörinu smám saman
við, þetta er svolítil handavinna
en er vel þess virði. Ef skálin er of
heit takið þið hana úr vatnsbaðinu
og kælið en haldið alltaf áfram að
hræra. Það er mjög mikilvægt að
skálin sé ekki of heit því annars
eldast eggjarauðurnar. Saxið niður
ferskt fáfnisgras og rautt chilialdin,
setjið út í sósuna og bragðbætið
einnig með bernaise essence, salti
og pipar.
Þegar pitsan er klár
er gott að skera
niður ferskt kál, til dæmis
klettasalat, og dreifa yfir
pitsuna ásamt því að rífa
niður parmesanost og
dreifa yfir.
Spagettípítsla með mozzarella og basiliku.
Steikarloka með chili bernaise sósu.
Ljúffeng baka með kartöflum, beikoni og eggjum.
Pitsa, loka og baka hjá Evu
Eva Laufey töfraði fram kræsingar í þættinum Í eldhúsi Evu á Stöð 2 í gær.
Á matseðlinum voru spagettípitsa, steikarloka og morgunverðarbaka.
Í eldhúsi Evu
Eva Laufey
Hermannsdóttir
1 msk. ólífuolía
¼ blaðlaukur, smátt skorinn
150 g kurlað beikon
1 rauð paprika, smátt skorin
1 hvítlauksrif, marið
4 bökunarkartöflur, skornar í
teninga
Salt og nýmalaður pipar
10 kirsuberjatómatar
4 – 5 egg fersk
Steinselja
Parmesanostur
Hitið ofninn í 180°C. Hitið olíu
á pönnu og steikið laukinn við
vægan hita þar til laukurinn verður
mjúkur. Bætið beikonkurlinu,
paprikunni og hvítlauknum út
á pönnuna og steikið í nokkrar
mínútur. Bætið kartöfluteningum
saman við og kryddið með salti
og pipar. Setjið blönduna í eldfast
mót þegar kartöflurnar eru eldaðar
í gegn. Skerið niður kirsuberja-
tómata og dreifið yfir. Brjótið eggin
yfir og bakið við 180°C í um 10
mínútur eða þar til eggin eru full-
elduð. Þegar kartöflubakan kemur
út úr ofninum er gott að saxa niður
ferska steinselju og strá yfir réttinn
ásamt því að rífa duglega niður af
parmesanosti og dreifa yfir.
Morgunverðarbaka með kartöflum og beikoni
Síðumúla 6 | 108 Reykjavík | 560 4802
verslun.sibs.is | Finndu okkur á fb
EKKI HINDRANIR, HELDUR ÁSKORANIR
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 6 . J Ú N Í 2 0 1 7 F Ö S T U DAG U R