Fréttablaðið - 16.06.2017, Síða 58
„Það er búið að vera stórkostlegt að
fylgjast með þessum breytingum
undanfarin tvö ár. Ég hef verið á hlið-
arlínunni en samt fylgst vel með og
get fullyrt að það hefur aldrei verið
jafnmikil fjölbreytni í tískuheimin-
um þegar kemur að fyrirsætuvali og
jákvæðri vakningu gagnvart ólíkum
líkamsgerðum eins og núna,“ segir
fyrirsætan Inga Eiríksdóttir í viðtali í
nýjasta tölublaði Glamour sem kom
út í vikunni.
Inga prýðir forsíðu 26. tölublaðs
Glamour í gullfallegum myndaþætti
sem var gerður af úrvals íslensku
teymi. Ljós-
myndari var Kári
Sverriss, stílisti
Ellen Lofts
og förðun og
hár í höndum
Guðbjargar
Huldísar. Fyrir
tveimur árum
leiddi Inga byltingu í fyrirsætu-
heiminum ásamt kollegum sínum
í Alda Women, þar sem þær beittu
sér fyrir vakningu gagnvart bættri
líkamsímynd í tískuheiminum. Ber-
rassaðar á húsþökum í New York í
myndatöku
hjá Silju
Magg hófu
þær vitundar-
vakningu út
um allan heim.
„Fleiri hópar,
svipaðir og
Alda-hópurinn,
hafa verið að
poppa upp úti um allt og fá athygli.
Það að hafa meiri fjölbreytni er nú
orðið meira norm,“ segir Inga meðal
annars í viðtalinu við Glamour sem
er komið í allar helstu verslanir.
Stórkostlegar breytingar í tískuheiminum
Stuttermabolir
Farðu inn á Glamour.is og fáðu daglegar
fréttir úr heimi hönnunar, lífsstíls og tísku.
Facebook Instagram Twitter
GLAMOUR
Kjólar eru að koma aftur sterkir inn eftir dágott tímabil þar sem
buxur hafa tröllriðið öllu. Það er fátt jafn sumarlegt og léttur
blómakjóll á góðviðrisdegi en hvernig getum við klætt okkur í kjól
án þess að vera of fín dagsdaglega? Svarið er að smella sér í stutt-
ermabol undir. Góður stuttermabolur undir fína silkikjólinn eða
létta blómakjólinn gerir heildarútkomuna strax hversdagslegri.
Fáum innblástur frá þessum smekklegu konum hér.
Hvítur bolur er
skyldueign fyrir
sumarið!
Notum striga-
skóna við kjól-
inn. Þægindin
í fyrirrúmi.
NORDICPHOTOS/
GETTY
Það gefur silki-
kjólum töffara-
legt yfirbragð að
smella sér í hljóm-
sveitarbolinn
undir. NORDIC-
PHOTOS/GETTY
1 6 . J Ú N Í 2 0 1 7 F Ö S T U D A G U R38 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð