Fréttablaðið - 17.02.2016, Page 6
Það var ekki síst út
af fjölmörgum
ábendingum, meðal annars
frá Alþingi Íslendinga, sem
að við hófum endurskoðun á
starfsreglunum
nú.
Sigrún Magnús-
dóttir umhverfis-
ráðherra
Þetta vekur allt
saman grunsemdir
um að það séu sterkir aðilar í
orkugeiranum að þrýsta á
ráðuneyti umhverfismála og
náttúru
verndar.
Svandís Svavars-
dóttir, fyrrverandi
umhverfisráðherra
og þingmaður VG
Jón Grétar Magnússon sýnir ljós-
myndir frá siglingu um Scoresbysund.
Hrafn Jökulsson kynnir starf Hróksins
í Grænlandi fyrir árið 2016.
Kalak heldur myndakvöld i Norrænahúsinu
miðvikudaginn 17. mars kl. 20:00.
Enginn aðgangseyrir,
allir velkomnir.
Stjórnin.
MYNDAKVÖLD KALAK
Á morgun 18. febrúar gefur Íslandspóstur út þrjú frímerki
til að minnast stórafmæla. Alþýðusamband Íslands 100
ára, Ísafjarðarbær 150 ára og Hið íslenska bókmenntafélag
200 ára. Þá kemur út Norðurlandafrímerki tileinkað matar
gerðarlist og fjögur frímerki tileinkuð keramikhönnun.
Fyrstadagsumslög fást á helstu pósthúsum.
Einnig er hægt að panta þau hjá
Frímerkja sölunni. Sími: 580 1050.
Netfang: stamps@stamps.is
Heimasíða: www.stamps.is
facebook.com/icelandicstamps
Safnaðu litlum lis taverkum
StjórnSýSla Landsvirkjun fór
fram á það við umhverfisráðu-
neytið að starfsreglum verkefna-
stjórnar rammaáætlunar yrði
breytt. Samkvæmt drögum að
nýjum reglum verður verkefna-
stjórnin að taka aftur til umræðu
virkjunarkost sem áður hefur verið
settur í vernd ef hann hefur tekið
breytingum.
Taki breytingarnar gildi mætti
leggja fram að nýju alla virkjana-
kosti sem áður hafa verið settir í
verndarflokk lítillega breytta – til
dæmis Norðlingaölduveitu.
Formaður Landverndar, Guð-
mundur Ingi Guðbrandsson, sagði
í grein í Fréttablaðinu í gær: „Verði
drögin að veruleika hefur Lands-
virkjun í raun mótað leikreglur
verkefnisstjórnar í úrvinnslu mála
sem varða beina fjárhagslega hags-
muni fyrirtækisins.“
Sigrún Magnúsdóttir umhverfis-
ráðherra sagði í samtali við RÚV
á sunnudag að það væri fráleitt
að halda því fram að fyrirhug-
aðar breytingar væru gerðar fyrir
Landsvirkjun. „Það var ekki síst út
af fjölmörgum ábendingum, meðal
annars frá Alþingi Íslendinga,
sem að við hófum endurskoðun á
starfsreglunum nú,“ sagði Sigrún.
Samkvæmt svari umhverfisráðu-
neytisins til Landverndar vísaði
Sigrún þar til funda atvinnuvega-
nefndar Alþingis þann 24. sept-
ember síðastliðinn. Fram kom í
svarinu að bæði gestir fundarins
og þingmenn hefðu gert athuga-
semdir við starfsreglurnar. Vert er
að taka það fram að Hörður Arnar-
son, forstjóri Landsvirkjunar, var
gestur á fundinum.
„Þetta vekur allt saman grun-
semdir um að það séu sterkir
aðilar í orkugeiranum að þrýsta á
ráðuneyti umhverfismála og nátt-
úruverndar að breyta reglum í
þágu nýtingar,“ segir Svandís Svav-
Landsvirkjun þrýsti á
um breytingar á reglum
Ef drög að reglum um verkefnisstjórn rammaáætlunar verða að veruleika
verður stjórnin að taka virkjanakosti sem áður voru í verndarflokki til umræðu.
Þrýstingur frá Landsvirkjun virðist hafa valdið breytingunum.
Ferill málsins
22. maí 2015 - Starfsreglur verk-
efnisstjórnar rammaáætlunar
samþykktar
17. ágúst 2015 - Hörður Arnarson,
forstjóri Landsvirkjunar, gengur á
fund umhverfisráðherra og fer fram
á að reglunum verði breytt. Hann
leggur fram ítarlegt bréf þess efnis.
11. janúar 2016 - Umhverfisráðu-
neytið kynnir drög að breytingum
á starfsreglunum til atvinnuvega-
ráðuneytisins og verkefnisstjórnar
rammaáætlunar.
19. janúar 2016 - Atvinnuvegaráðu-
neytið sendir umhverfisráðu-
neytinu tillögur að breytingum á
reglunum.
22. janúar 2015 - Atvinnuvegaráðu-
neytið áframsendir Landsvirkjun
tillögur sínar að breytingum á
reglunum.
28. janúar 2016 - Landsvirkjun
sendir atvinnuvegaráðuneytinu
sínar tillögur um breytingar. Sama
dag sendir atvinnuvegaráðuneytið
viðbótartillögur um breytingar til
umhverfisráðuneytisins sem taka
að mestu til greina tillögur Lands-
virkjunar.
2. febrúar 2016 - Umhverfisráðu-
neytið auglýsir breytingarnar á
vefsíðu ráðuneytisins.
arsdóttir, fyrrverandi umhverfis-
ráðherra og þingmaður VG.
Svandís hefur lagt fram fyrirspurn
á Alþingi til umhverfisráðherra, þar
sem farið er fram á að öll gögn um
feril málsins verði opinberuð og
því svarað hvort athugað hafi verið
hvort breytingin standist lög.
„Það væri saga til næsta bæjar að
nefnd sem starfar samkvæmt lögum
sé sett í þá stöðu á miðju tímabili
sinnar vinnu að breyta sínum starfs-
aðferðum efnislega í þágu einstaka
sjónarmiða og markmiða,“ segir
Svandís. „Þá erum við farin að hverfa
frá því að vinnan sé fagleg og í sam-
ráði við lögin, enda hef ég efasemdir
um að það standist lögin að breyta
reglum efnislega á miðju tímabili.“
snaeros@frettabladid.is
Hryðjuverkin koma ekki í veg fyrir að tónleikarnir klárist
Jesse Hughes, söngvari Eagles of Death Metal, heilsar aðdáendum í París. Hljómsveitin snýr aftur til Parísar til að ljúka tónleikunum sem hún náði aldrei að klára. Hljómsveitin var að
spila á veitingastaðnum Bataclan þegar hryðjuverkamenn réðust á tónleikargesti í nóvember í fyrra. Fréttablaðið/EPa
1 7 . f e b r ú a r 2 0 1 6 M I Ð V I K U D a G U r6 f r é t t I r ∙ f r é t t a b l a Ð I Ð