Fréttablaðið - 17.02.2016, Page 8
Óðalsostur hefur verið á borðum landsmanna frá
árinu 1972. Fyrirmynd hans er Jarlsberg, frægasti
ostur Norðmanna. Óðalsostur er mildur með örlítinn
möndlukeim og skarpa, sæta, grösuga tóna. Frábær á
morgunverðarborðið, hádegishlaðborð eða bara einn
og sér.
www.odalsostar.is
ÓÐALSOSTUR
TIGNARLEGUR
96
96
92
1
1
1
n Þjóðvegur 1
n Þjóðvegur 92 og 96 (nýr þjóðvegur 1)
Færsla þjóðvegar 1 deilumál á Austurlandi um áratugaskeið
Fagridalur
Vegurinn ófær í meira
en 9 klst. á sólarhring.
Árið 2015 lokað í 3 daga
Árið 2014 lokað í 3 daga
Árið 2013 lokað í 2 daga
Árið 2012 lokað í 3 daga
Árið 2011 opið allt árið
Árið 2010 lokað í 1 dag
Lokað
daga
Breiðdalsheiði
Árið 2015 lokað í 156 daga
Árið 2014 lokað í 126 daga
Árið 2013 lokað í 136 daga
Árið 2012 lokað í 101 dag
Árið 2011 lokað í 54 daga
Árið 2010 lokað í 48 daga
Lokað
dagur
12
621
Ólöf Nordal innanríkisráðherra
hefur lagt fram þá hugmynd að legu
Hringvegarins á Austurlandi verði
breytt. Hugmynd ráðherra snertir á
deilumáli milli sveitarfélaga í fjórð-
ungnum um áratuga skeið.
Þessa hugmynd lagði innanríkis-
ráðherra fram til kynningar í til-
kynningu á heimasíðu ráðuneytis-
ins á föstudag. Þar segir: „Um langa
hríð hefur verið uppi umræða um
legu Hringvegarins á Austurlandi
og hvort breyta eigi núverandi skil-
greiningu þannig að Hringvegurinn,
þjóðvegur 1, milli Fljótsdalshéraðs
og fjarðanna liggi ekki eins og
nú er um Skriðdal og Breiðdals-
heiði heldur um Norðfjarðarveg
og Suður fjarðaveg. Ólöf Nordal
innanríkisráðherra leggur hér fram
til kynningar þessa hugmynd. Vega-
gerðin ákveður legu Hringvegarins
á þessu svæði jafnt sem á öðrum
svæðum en hann er jafnan skil-
greindur sem aðalleið, það er greið-
færasta leið og þá með sem mestri
vetrarþjónustu. Ákvörðun Vega-
gerðarinnar yrði tekin í samráði við
innanríkisráðherra.“
Um er að ræða þá breytingu að
færa legu þjóðvegar eitt, eins og
hún hefur verið um langan tíma –
frá leiðinni til Fljótsdalshéraðs um
Breiðdalsheiði og Skriðdal. Þess í
stað verði hún um Suðurfirði og um
Fagradal.
Allir sem þekkja til vita að þessi
tiltekna breyting hefur verið
byggðapólitískt álitamál á Austur-
landi um langt árabil. Hagsmunir
Fjarðabyggðar eru augljósir með
því að leiða umferðina að þétt-
býlinu á Suðurfjörðunum í stað
þess að hún fari fram hjá. Rökum
um umferðaröryggi og nýtingu á
nýjum og góðum umferðarmann-
virkjum, eins og Fáskrúðsfjarðar-
göngum og vegum með bundnu
slitlagi, er einnig mjög haldið á lofti.
Mótrökin virðast helst vera þau að
hluti vegarins um firðina standi illa
undir meiri umferð, en ekki verður
litið fram hjá hagsmunum versl-
unar og þjónustu á Egilsstöðum að
fá ferðalanga beint til sín – án við-
komu á Stöðvarfirði, Fáskrúðsfirði
og Reyðarfirði.
Vegagerðin mun hafa unnið fyrir
innanríkisráðherra minnisblað um
helstu rök fyrir því að skilgreina
Hringveginn um Austurland upp á
nýtt. Uppruni plaggsins er tveggja
ára gömul samþykkt á aðalfundi
Sambands sveitarfélaga á Austur-
Ráðherra vill höggva á hnútinn
Innanríkisráðherra hefur lagt fram þá hugmynd að legu Hringvegarins á Austurlandi verði breytt. Farið verði um firði og Fagradal upp
á Hérað í stað gömlu leiðarinnar um Breiðdalsheiði. Á sex árum hefur heiðin verið lokuð í 621 dag en 12 sinnum leiðin um Fagradal.
Reyðarfjörður
Fáskrúðsfjörður
Breiðdalsvík
Stöðvarfjörður
Djúpavogur
Egilsstaðir
Fagridalur
Fáskrúðs-
fjarðargöng
Breiðdalsheiði
Til Akureyrar
Til Reykjavíkur
landi (SSA) um að Vegagerðin
ynni faglegt mat á legu hring-
vegarins á svæðinu, enda er
ríkur vilji sveitarstjórnar-
manna í Fjarðabyggð, og að
nokkru leyti SSA, að málið verði
klárað á annan hvorn veginn –
og þá lagt til hvílu í framhald-
inu. Þá hefur það legið fyrir
lengi að Vegagerðin tekur það
ekki upp hjá sjálfri sér að gera
þessar breytingar án þess að vilji
ráðherra fyrir slíkum breytingum
sé skýr og liggi fyrir.
Hugmyndin er sett fram á vef
ráðuneytisins til að höggva á þann
hnút sem málið hefur verið í. Nú
geti sveitarfélögin fyrir austan og
aðrir hagsmunaaðilar komið með
sín rök og mótrök fyrir að þetta
verði gert. Það sem mun vega
þyngst hjá ráðherra er umferðar-
öryggi, enda vegurinn um
Breiðdalsheiði barn síns
tíma og lokaður stóran hluta
ársins. Vandræði erlendra
ferðamanna eru vel kynnt í
fréttum, sem telja að Hring-
vegurinn – þjóðvegur 1 -
veiti þeim öryggi þar sem
um bestu leiðina hljóti að
vera að ræða.
Það síðasta sem var
skrifað um málið opinber-
lega var opið bréf Sigurðar
Gunnarssonar, sem rekur
ferðaþjónustufyrirtæki á Seyðis-
firði. Bréfið birtist á vef Austur-
fréttar og þar spyr Sigurður hver
sjái sér hag í óbreyttu ástandi og
hvaða rök séu fyrir því að þjóð-
vegur 1 sé um Breiðdalsheiði.
Hann spyr vegna þess að vetrar-
gestir hans koma „dauðþreyttir og
nánast skelkaðir til Seyðisfjarðar“,
eftir að hafa glímt við Breiðdals-
heiði. „Þó svo þetta sé aðeins annað
starfsár fyrirtækis okkar hafa tugir
gesta okkar lent í erfiðleikum við
Breiðdalsheiði á sama tíma og færð
var ágæt um firðina og yfir Fjarðar-
heiði. Þegar þessir gestir koma
heim þá munu þeir ekki ráðleggja
væntanlegum Íslandsförum að fara
austur á land yfir vetrartímann.
Þetta er auðvitað til háborinnar
skammar og veldur ferðaiðnaði á
Austurlandi miklum skaða,“ skrifar
Sigurður.
Eins og sjá má á meðfylgjandi
korti var Breiðdalsheiði lokuð 621
dag árin 2010 til 2015 – eða 103
daga á ári að meðaltali. Lengst 156
daga í fyrra. Á sama tímabili var
leiðin um Fagradal lokuð í tólf daga.
Lengst í þrjá daga.
92 km
um Suðurfirði,
Fáskrúðsfjarðar-
göng og Fagradal.
Bundið slitlag.
82 km
um Breiðdalsheiði,
57 km bundið slitlag
25 km malarvegur
Svavar
Hávarðsson
svavar@frettabladid.is
Breiðdalsvík
→ Egilsstaðir
Öxi
1 7 . F E B r ú a r 2 0 1 6 M I ð V I k u d a g u r8 F r é t t I r ∙ F r é t t a B L a ð I ð