Fréttablaðið - 17.02.2016, Blaðsíða 27
nokkrir þættir þar sem landið stendur
afar vel. Einn er öryggi einstakling-
anna þar sem Ísland er í fyrsta sæti.
Þar eru til dæmis að baki tölur um
ofbeldisbrot, en líka andlát í umferð-
inni. Umferðarslys eru í tíunda sæti
yfir helstu dánarorsakir í heiminum
og mikið vandamál víða.“ Þegar að
þessum þáttum kemur hefur margt
unnist hér á landi, segir Green.
Þá komi mælingar á notkun upp-
lýsingatækni, frelsi fjölmiðla og þess
háttar þættir mjög vel út. Sömuleiðis
sé Ísland ofarlega á listum í mælingu
á umburðarlyndi landsmanna. „En
niðurstaðan í heilbrigðinu er mjög
áhugaverð. Þar mælum við þætti á
borð við ungbarnadauða og öryggi
mæðra í fæðingu sem eru vandamál
í fátækari löndum. Hér á Íslandi er
myndin flóknari og óvíst að heil-
brigðiskerfið sjálft vegi jafn þungt,
heldur skipti lífsstíllinn meira máli.“
Niðurstaðan í þessum þætti hvað
Ísland varði byggist því ekki endilega
á læknisþjónustunni. „Við sjáum að
lífslíkur eru nokkuð góðar og niður-
staðan er góð þegar kemur að and-
látum vegna sjúkdóma sem ekki
eru smitsjúkdómar. Horft er til þess
hvort fólk deyi snemma af völdum
krabbameina, hjartasjúkdóma og þess
háttar. Og þar spilar heilbrigðiskerfið
inn í að hluta, en líka lífsstíll fólks og
umhverfi.“ Nýting á jarðvarma hér
kunni meira að segja að hjálpa til
með því að draga úr loftmengun. Í
heimaborg Greens, Lundúnum, sé til
Varaði við árið 2006
Stjórnarformaður Social Progress Imperative stofnunarinnar er prófessor
Michael Porter. Hann er einn af áhrifamestu og virtustu hagfræðingum sam-
tímans og hefur fengið fjölda viðurkenninga fyrir rannsóknir sínar og störf.
Hér vakti Porter nokkra athygli þegar hann var gerður að heiðursprófessor
við Háskóla Íslands árið 2006 og notaði þá tækifærið og varaði við þróun
efnahagsmála. „Íslendingar standa vel á mörgum sviðum, en þurfa að gæta
að fjárfestingu innanlands sem ekki stuðlar beint að aukinni framleiðni.
Hérna er allt of mikið af byggingarkrönum,“ sagði hann í erindi sínu í Reykja-
vík í októberbyrjun 2006, en þá kynnti hann líka niðurstöður á rannsókn sinni
á samkeppnishæfni landsins.
Á þeim tíma benti Porter líka á að hér næmi kostnaður af því að halda úti
krónu meiru en ávinningurinn af henni og hvatti til frekari umræðu um fram-
tíðarskipan peningamála. Þá taldi hann íslenska hagkerfið það sveigjanlegt að
ekki þyrfti að koma til sveigjanlegur gjaldmiðill líka. Í heimsókn sinni hingað
2010 var hann hins vegar ekki jafn afgerandi um gjaldmiðilinn. Í viðtali við
Fréttablaðið sagði hann allar tiltækar leiðir í peningamálum hafa sína kosti og
galla, hvort sem það væri krónan sjálf, einhliða upptaka annarrar myntar, eða
upptaka evru með aðild að myntbandalagi Evrópu.
„En mín tilfinning er að Íslendingar séu ekki alveg tilbúnar að gera þetta
upp við sig,“ sagði hann þá og taldi ef til vill enn of skammt liðið frá hruni.
Vísinda- og fræðimenn streyma til landsins
Michael Porter, prófessor við Harvard-háskóla og einn af virtustu hagfræð-
ingum heims. Fréttablaðið/anton
að mynda mikil áhersla lögð á það
hvernig draga megi úr ótímabærum
dauðsföllum vegna loftmengunar.
„En það sem er líka áhugavert við
Ísland er að í heilbrigðismálunum
er líka eitt eða tvö viðvörunarmerki.
Offita er eitt viðfangsefni, sem reynd-
ar mörg lönd eiga við að etja, meira
að segja lönd sem ekki eru meðal
ríkustu þjóðanna. Svo er tíðni sjálfs-
víga að nokkru marki mælikvarði á
geðheilbrigði og þar kann að vera við
vanda að etja. Í heildina er niðurstaða
Íslands því mjög góð þegar kemur
að heilbrigði en myndin er dálítið
blönduð.“
Von er á nokkur hundruð manns
til landsins vegna ráðstefnu Social
Progress Imperative í Hörpu 28.
apríl næstkomandi. Á ráðstefnuna
eru sagðir mæta margir af fremstu
vísinda- og fræðimönnum heims
á sviði samkeppnishæfni þjóða og
stefnumótunar fyrirtækja. Farið
verður yfir frammistöðu Íslands á
SPI-listanum, auk þess sem skoðað
verður hvernig hefur gengið í Kosta
Ríka, hjá Medellín-borg í Kólumbíu, í
Nepal þar sem miklar framfarir hafa
orðið á sviði heilbrigðismála, auk
þess sem farið verður yfir þróunina í
Rúanda, Brasilíu, á Nýja-Sjálandi og í
Baskahéruðum Spánar.
Á meðal þátttakenda er Michael
Porter, prófessor við Harvard
háskóla og heiðursprófessor við
Háskóla Íslands, Matthew Bishop,
ritstjóri alþjóðamála hjá tímaritinu
Economist, Martha Minow, deildar-
forseti lagadeildar Harvard, og
Metta Lindgaard, framkvæmdastjóri
samfélagsnýsköpunar hjá Deloitte
Global, auk Michaels Green sjálfs. Af
hálfu Íslands taka svo þátt Sigmund-
ur Davíð Gunnlaugsson forsætisráð-
herra, Jón Atli Benediktsson, rektor
Háskóla Íslands, Liv Bergþórsdóttir,
forstjóri Nova, og Dagur B. Eggerts-
son, borgarstjóri Reykjavíkur.
Frekari upplýsingar um ráðstefn-
una sjálfa má finna á vefnum www.
socialprogressimpretive.org.
Hér er Gekon samstarfsaðili SPi, en þar á bæ koma meðal annars að málum
eigendur Gekon, Hákon Gunnarsson framkvæmdastjóri og rósbjörg Jónsdóttir
aðstoðarframkvæmdastjóri. Fréttablaðið/Erni
UM
HV
ERFISMERKI
Prentgripur
141 825
Suðurhraun 1
Garðabæ
Sími: 59 50 300
www.isafold.is
Umbúðir • Bækur • Tímarit • Fyrir skrifstofuna • Bæklingar
Fjölpóstur • Kynningarefni • Dagblöð • Stafrænt • Allskonar!
Á meðan við prentum fyrir þig…
markaðurinn 7M I Ð V I K U D A G U R 1 7 . f e b R ú A R 2 0 1 6