Fréttablaðið - 17.02.2016, Blaðsíða 32
11.2.2016
Það er mat ráðherra að umræða undan-
farinna vikna vegna sölu Landsbankans á
hlut sínum í Borgun sé til þess fallin að skaða bank-
ann. Því sé nauðsynlegt áður en lengra er haldið í
því ferli að hvaðeina er máli skiptir og varðar
sölu Landsbankans á Borgun verði upplýst og
málið afgreitt með þeim hætti að traust til
bankans og stjórnenda hans verði tryggt.
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra.
Markaðurinn
Miðvikudagur 17. febrúar 2016fylgirit fréttablaðsins um Viðskipti og fjármál |
Íslenska úrvalsvísitalan
1.787,05 10,09
(0,56%)
Viðskiptavefur Vísis
@VisirVidskiptiwww.visir.is
Hlutabréfamarkaðir víðsvegar um
heiminn hafa verið sveiflukenndir
frá byrjun árs og hefur gengi sumra
hlutabréfa lækkað verulega. Í Íran
hafa hlutabréf hins vegar rokið upp.
Hlutabréf í Teheran hafa hækkað um
22 prósent frá því að viðskiptaþving-
unum var aflétt og um 25,6 prósent
það sem af er ári.
25,6
prósent Hækkun á bréfum
Stjórnar -
maðurinn
@stjornarmadur
Steinþór Pálsson fór á dögunum
yfir sölu Landsbankans á þriðjungs
hlutnum í Borgun. Það má færa
rök fyrir því að Landsbankinn hafi
selt hlut sinn á einungis fjórðungi
markaðsvirðis samkvæmt nýlegu
verðmati. Bankinn hafi því orðið af
fjórum til sex milljörðum króna.
Steinþór telur að stjórnendur
Borgunar beri sök á hvernig fór. Þeir
hafi hreinlega leynt tilvist valréttar
Borgunar vegna sameiningar Visa
Europe og Visa International.
Fyrir alla sem hafa staðið í kaupum
eða sölu á fyrirtækjum eru skýringar
Steinþórs í besta falli hjákátlegar.
Landsbankinn er risastór aðili á
markaði sem hefur á að skipa her
starfsmanna, og sérfræðinga. Þar er
næg þekking og mannafli til að fram
kvæma áreiðanleikakönnun eins og
tíðkast í viðskiptum sem þessum.
Fram hefur komið í máli forsvars
manna Borgunar að opnað hafi verið
gagnaherbergi þar sem lágu allar
grundvallarupplýsingar um rekstur
inn, samninga og annað. Samkvæmt
Borgun lá valréttarsamningurinn þar
inni. Landsbankamenn höfðu fullan
aðgang að þessum gögnum.
Í því samhengi er merkilegt til þess
að hugsa að Landsbankinn hafi ekki
gert fyrirvara um tekjur af valréttin
um í samningi um söluna. Það verður
enn forvitnilegra í því ljósi að slíkur
fyrirvari var gerður við sölu Lands
bankans á hlut sínum í Valitor.
Í besta falli hafa lögfræðingar Lands
bankans gert skyssu, en við áreiðan
leikakannanir er það þeirra hlutverk
(og annarra ráðgjafa) að gera ráð fyrir
öllu mögulegu og ómögulegu. Í ljósi
tilvistar valréttarins (sem þeir hefðu
átt að rekast á í gagnaherberginu) og
fyrirmyndarinnar úr Valitorsölunni
sætir þetta beinlínis furðu.
Steinþór nefnir einnig að Lands
bankinn hafi leitað upplýsinga um
valréttinn hjá Visa Europe. Þar var
Krísuvíkurleiðin farin, enda auð
veldara að spyrja forsvarsmenn
Borgunar sömu spurningar. Ólíklegt
er líka að Visa Europe hafi undir
nokkrum kringumstæðum mátt gefa
nokkrar upplýsingar um valréttinn
til annarra en þeirra sem beina aðild
áttu að samningnum. Samningurinn
var milli Borgunar og Visa – Lands
bankinn átti þar engan hlut að máli.
Steinþór þarf að standa við stóru
orðin. Ef bankinn var blekktur þarf
að fylgja því eftir hjá þar til bærum
yfirvöldum eða fyrir dómstólum.
Af atvikum að dæma er líklegra að
Landsbankamenn hafi ekki haft
vaðið fyrir neðan sig. Tap bankans á
því nemur nokkrum milljörðum sem
annars hefðu skilað sér í ríkiskassann
með beinum eða óbeinum hætti.
Einhver verður að axla ábyrgð á
þessum starfsháttum.
Farsakennt
i-t.isOpið virka daga frá 9 til 18laugardaga 11 til 15Ármúla 31 - Sími 588 7332
Gæði, úrval
og gott verð!
Speglaskápar með ljósi
verð frá 20.400
Sturtuklefar úr
hertu öryggisgleri
með 16 hjólum,
sturtustangarsetti,
og heilum horn-
lista. Sturtubotn
með lausri svuntu
og vatnslás.
WC í vegg/gólf með mjúkloku
verð 31.519 Salerniskálar með setu
margar gerðir, verð frá 16.900
Innrétting með handlaug
45 x 31 cm. verð 26.690
Handklæðaofnar
verð frá 11.671
Salerni frá
Ceramics gala
30 ár á Íslandi
Baðherbergisdagar!
Glæsilegt úrval
blöndunartækja
verð frá 8.900
Sturtuhorn án botns
Verð frá 30.500
Sturtuhorn með botni
Verð frá 35.100
Sturtuhorn rúnað
Verð frá 30.500
Verð frá 45.300
Sturtuvængir
Verð frá 29.600
Mikið úrval baðinnréttinga
með postulínshandlaug
Stærð frá 45 til 120 cm.
Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgar-
svæðinu hefur hækkað um 8,5 pró-
sent á síðasta ári samkvæmt tölum
frá Þjóðskrá. Vísitalan var 451,4 stig
í janúar 2016 (janúar 1994=100) og
hækkaði um 0,6 prósent frá fyrri
mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækk-
aði vísitalan um 2,3 prósent, og síð-
astliðna 6 mánuði um 4,4 prósent.
8,5
prósent Hækkun á ÍbúðaVerði