Fréttablaðið - 17.02.2016, Page 38
Á hádegistónleikum Chalumeaux-
tríósins og Hönnu Dóru Sturlu-
dóttur messósóprans í Hátíðasal
Háskóla Íslands í dag verður frum-
flutt verk eftir Jónas Tómasson tón-
skáld.
„Ég tel mig geta sagt að efnisskráin
sé áhugaverð og skemmtileg,“ segir
Ármann Helgason, einn þeirra sem
mynda Chalumeaux-tríóið. Hinir
eru Kjartan Óskarsson og Sigurður
Ingvi Snorrason. „Við þremenning-
arnir byrjum á að mynda þríhyrning
í salnum meðan við flytjum Mörsug,
verkið hans Hjálmars H. Ragnarsson-
ar, og sameinumst svo á sviðinu þar
sem Hanna Dóra bætist í hópinn,“
lýsir Ármann. Hann segir andstæður
ríkja í hinu nýja tónverki Jónasar
við Maríuversið Alma Redemptoris
Mater, og þar verði styttri klarínett-
urnar notaðar. „Við erum með allar
gerðir af klarínettum, heilmiklar
pípulagnir,“ segir Ármann glaðlega
og lofar litríkum tónum.
Auk fyrrgreindra verka eftir
Ísfirðingana Hjálmar og Jónas flyt-
ur hópurinn verkið Trio trionfante
eftir Pál P. Pálsson sem var sérstak-
lega samið fyrir Chalumeaux-tríóið
2002, einnig fjögur kóralforspil eftir
Johann Sebastian Bach og Vöggu-
vísur kattarins eftir Igor Stravinsky,
verk sem byggist á þjóðlögum úr
safni rússnesks þjóðlagasafnara.
Það er oftast sungið á rússnesku en
verður nú á þýsku.
Tónleikarnir hefjast klukkan
12.30 í dag í Hátíðasal háskólans.
Enginn aðgangseyrir er að þeim og
allir eru velkomnir. gun@frettabladid.is
H E I L S U R Ú M
A
R
G
H
!!!
0
90
21
6
#6
REKKJAN KYNNIR
ROYAL AVIANA
KYNNINGARVERÐ
Stærð: 153x200 cm.
Með botn: 115.080 kr.
Án botns: 73.486 kr.
Listmálarinn Steingrímur Eyfjörð
er að fá sér kaffi í Gamma í Garða-
stræti 37 og lætur sér hvergi bregða
þegar ég birtist þótt hann sé nýbú-
inn að spyrja ljósmyndarann hve-
nær hún komi þessi „stelpa“ til að
taka viðtalið. (Ekki furða þó ljós-
myndarinn væri með skelmislegt
glott þegar við mættumst í dyr-
unum!)
Myndir Steingríms taka sig vel
út á dimmbláum veggjum. „Ég valdi
þennan lit. Þetta er liturinn henn-
ar Kali sem er gyðja sköpunar og
eyðingar og veit víst allt áður en
það verður til,“ útskýrir listamað-
urinn og bendir á dökkbláa styttu
á hillu.
Verkin voru flest gerð fyrir
Momentum, norræna myndlist-
artvíæringinn sem haldinn var í
Moss í Noregi á síðasta ári að sögn
Steingríms. Þar var þemað Tunnel
Vision. Hann líkir myndefninu
við nútíma þjóðsögur. „Þessi verk
byggja á alþýðumenningu, vissu
sviði sem ekki er sannað vísinda-
lega en er þó raunverulegt, eins og
draumar og ýmislegt dularfullt og
utan við það skýranlega,“ skýrir
hann. „Það er svo margt sem vísind-
in hafna en er þó erfitt að véfengja.“
Ég er litlu nær en reyni að bera
mig mannalega. Hann gefst upp.
„Listamenn búa til listaverk. Síðan
er til fólk sem fer í langskólanám
sérstaklega til að segja til um hvað
listaverkin eru. Listamaðurinn er
kannski ekki sá besti til að útskýra
það sjálfur. Það er svo oft sem hann
gerir eitthvað ómeðvitað. Ég held
ég vinni þannig, þó alltaf sé einhver
ætlun með öllu.“
Sýningin Guli eyrnalokkurinn
verður opnuð á morgun, fimmtu-
dag, klukkan 17. gun@frettabladid.is
Þessi verk
byggja á
alþýðu
menningu
Nútíma þjóðsögur og ým-
iss konar hjávísindi eru
viðfangsefni Steingríms
Eyfjörð myndlistar-
manns á sýningunni Gula
eyrnalokknum sem hann
opnar í Gallery Gamma,
Garðastræti 37,
á morgun.
„Þetta er orkuverk. Það smitar frá sér orku þegar fólk kemur nálægt því,“ fullyrðir listamaðurinn Steingrímur um gulu
myndina. Minna verkið birtir meðal annars app inn á safn gamalla lækningaminja í Los Angeles þar sem margt er á mörkum
hins vísindalega. FréttAbLAðið/Pjetur
Byrjum á að mynda þríhyrning í salnum
Hanna Dóra í góðum félagsskap þeirra Kjartans, Ármanns og Sigurðar ingva sem
mynda Chalumeaux-tríóið.
Um Steingrím Eyfjörð
Steingrímur á að baki fjögurra
áratuga feril í myndlist og hefur
sýnt víða um heim. Hann var einn
af listamönnunum sem störfuðu
í Galleríi Suðurgötu 7 á áttunda
áratugnum og hefur verið virkur
þátttakandi í íslensku listalífi æ
síðan. Árið 2006 hélt Listasafn
Íslands yfirlitssýningu á verkum
hans og árið 2007 var hann
fulltrúi Íslands á tvíæringnum í
Feneyjum.
FÖSTUDAGURINN 19. FEB. KL 20:00 UPPSELT
FÖSTUDAGURINN 11. MARS KL 20:00 LOKASÝNINGAR
LAUGARDAGURINN 12. MARS KL 20:00 LOKASÝNINGAR
„Ég hef ekki hlegid svona mikið síðan
ég skildi vid manninn minn.”
1 7 . f e b r ú a r 2 0 1 6 M I Ð V I K U D a G U r22 M e n n I n G ∙ f r É T T a b L a Ð I Ð
mEnning