Fréttablaðið - 17.12.2015, Síða 20
Nordiphotos/AFp
Það er gerlegt að ná þeim mark-
miðum sem Parísarsamkomulagið
rammar inn – minnkun á losun
gróðurhúsalofttegunda svo halda
megi hlýnun lofthjúpsins innan
við tvær gráður. En það verður
andskotanum erfiðara. Nú þegar
eru verkfærin handbær á Íslandi
til að draga verulega úr losun og
það hratt.
stórátak
„Til að setja 1,5 gráðu markið í
samhengi er rétt að athuga að
hlýnun jarðar er frá upphafi iðn-
byltingar nú þegar nærri því að vera
ein gráða. Ef öll losun yrði stöðvuð
samstundis myndi jörðin samt
halda áfram að hlýna næstu áratugi
og hlýnunin að lokum verða 1,2-1,3
gráður, miðað við tímann fyrir iðn-
byltingu. Það þarf því mjög mikið
átak til þess að hlýnun fari ekki yfir
1,5 gráður,“ segir Halldór Björnsson,
sérfræðingur á Veðurstofu Íslands,
um eina meginniðurstöðu Lofts-
lagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna
í París sem lauk 12. desember.
Halldór segir það einnig vekja
athygli að loforð Kaupmanna-
hafnarfundarins frá 2009 um 100
milljarða dollara sjóð til að berjast
við afleiðingar loftslagsbreytinga er
aftur að finna í loftslagssamningn-
um, en erfiðlega hefur þó gengið
að fjármagna þann sjóð frá þeim
tíma. Þá sé í samkomulaginu grein
[grein 4.1] sem segi að þátttakend-
ur, eða þjóðirnar 195, muni reyna
að sjá til þess að á hnattræna vísu
nái losun gróðurhúsalofttegunda
hámarki eins fljótt og auðið er, þó
þróunar löndin fái vissan slaka um
að hámark losunar verði náð síðar
en í þróuðum löndum.
4 sviðsmyndir
Í þessu samhengi rifjar Halldór
það upp að þegar milliríkjanefnd
Sameinuðu þjóðanna um lofts-
lagsbreytingar (IPCC) gaf út mats-
skýrslu árið 2013 var lagt mat
á fjórar ólíkar sviðsmyndir um
þróun losunar á jörðinni á þess-
ari öld. Hlýnun jarðar var reiknuð
fyrir hverja sviðsmynd.
„Einungis í einni þeirra reynd-
ust minna en 66% líkur á því
að hlýnun færi yfir 1,5 gráður. Í
öllum öðrum sviðsmyndum hlýn-
aði meira. Þessar sviðsmyndir eru
auðvitað ekkert annað en „sögur“
um losun, mannfjöldaþróun, efna-
hagsþróun og svo framvegis – þær
eru ekki spár í sama skilningi og
til dæmis veðurspár. Þær eiga hins
vegar ekki að vera óraunsæjar, og
byggt á þeim forsendum má segja
að það markmið að halda hlýnun
innan við 1,5 til tvær gráður sé
gerlegt – en það verður ekki auð-
velt og samkomulagið leggur ekki
miklar línur um hvernig markinu
skuli náð. Parísarsamkomulaginu
má því líkja við það að aðilar hafi
samþykkt staðsetningu á korti
sem skuli stefnt á, en ekki ákveðið
hvaða leið eigi að fara,“ segir Hall-
dór.
Endir olíualdarinnar
Halldór telur ljóst að ef hið metn-
aðarfulla samkomulag gengur
eftir, og ef ekki kemur til einhver
mjög öflug tækni til þess að binda
kolefni í andrúmslofti, þá marki
Parísarsamkomulagið endi olíu-
aldarinnar. Ekki þurfi annað en
að vísa til fyrrnefndrar greinar 4.1
um að á hnattræna vísu nái losun
gróðurhúsalofttegunda hámarki
eins fljótt og auðið er.
„Til þess að losun nái hámarki
þarf nefnilega að draga verulega
úr bruna jarðefnaeldsneytis og þar
með skipta yfir í aðra orkugjafa,
Andskotanum erfiðara verkefni
Íslendingar hafa það sem til þarf til að draga verulega úr losun gróðurhúsalofttegunda, og það hratt. Án tæknibyltingar þýða markmið
Parísarsamkomulagsins endi olíualdarinnar. Kolefnisjöfnuður gæti verið raunhæft markmið Íslands og ætti að vera keppikeflið.
Svavar
Hávarðsson
svavar@frettabladid.is
sem sagt endurnýjanlega orku á
formi vatns, vinds, jarðhita eða
sólarljóss. Þó þetta þýði að horfið
verði frá jarðefnaeldsneyti er mikil-
vægt að hafa í huga að umskiptin
munu taka tíma. Þrátt fyrir að síð-
ustu ár hafi mikill vöxtur einkennt
bæði vindorku- og enn frekar sólar-
orkugeirann þá mun líklega taka
áratugi fyrir endurnýjanlega orku
að ná að leysa jarðefnaeldsneytið
alfarið af hólmi.“
Eina afleiðingu þessa segir Hall-
dór vera þá að óháð því hvort ný
bindingartækni kemur fram, sé
ljóst að til þess að tryggja að losun
nái hámarki sem fyrst þurfi lík-
lega strax að beita hefðbundnari
aðferðum við að binda kolefni og
farga því. Þekktar hefðbundnar
aðferðir eru endurheimt jarð-
gæða með landgræðslu, stöðvun
eyðimerkurmyndunar, ræktun og
endurheimt skóga. Þessar aðferðir
eru þekktar og reynslan sýnir að
þær virka.
tækifæri fyrir Ísland
„Fyrir Ísland þá býður þessi samn-
ingur upp á ákveðin tækifæri.
Losun okkar er að hluta í evrópsku
viðskiptakerfi um losunarheimild-
ir, og sérstaklega stóriðjan, en um
60% eru utan þess og þar ættum
við fyrst að skoða samdrátt. Við
höfum ýmsa kosti til að draga úr
losun, t.d. með því að auka raf-
væðingu í samgöngum, mikil tæki-
færi til þess að draga úr losun með
endurheimt votlendis, með því
að beita landgræðslu til þess að
stöðva gróðureyðingu og endur-
heimta ræktarland, og með því að
beita skógrækt markvisst. Ekkert
af þessu er nýtt, skógrækt og land-
græðsla hvíla á traustum grunni,
(við rekum m.a. Landgræðsluskóla
Sameinuðu þjóðanna) og rafvæð-
ing bílaflotans er þegar komin á
rekspöl,“ segir Halldór.
Kolefnisjafnað Ísland
Halldór telur að með því að leggja
aukinn kraft í þá kosti sem þegar
eru fyrir hendi ætti að vera mögu-
legt fyrir Íslendinga að draga veru-
lega úr losun hratt og hugsanlega
ná að kolefnisjafna landið.
„Það væri ánægjulegt markmið
að stefna á að verða fyrst þjóða til
að ná kolefnisjöfnuði. Reynslan frá
baráttunni við ósóneyðandi efni
sýnir að sú þekking og lausnir sem
fyrirtæki þróa til að mæta kröfum
um takmarkanir á losun getur
orðið söluvara á erlendri grund.
Við gætum án efa leikið þann leik
aftur og gert loftslagsvænar lausnir
að útflutningsvöru, eins og má
segja að fyrirtæki séu þegar farin
að gera með jarðhitann.“
Áhrif loftslagsbreytinga
á Ísland án aðgerða
l Jöklar munu hopa enn frekar,
og eftir öld eða tvær munu
aðeins finnast hér fjallajöklar.
l Afrennsli jökuláa mun því
breytast mikið og tækifæri til
raforkuvinnslu aukast um 20%
um tíma, ef raforkukerfi verða
hönnuð til þess að nýta það
vatn sem til fellur.
l Landið mun grænka með
hlýnun; skógarmörk færast ofar
og sjálfsprottnir skógar verða
algengari.
l Afrakstur ræktarlands verður
meiri.
l Samsetning flökkustofna fugla
og fiska mun breytast hér á
landi; fuglar leita til landsins
á meðan aðrir víkja sem kjósa
kaldara loftslag. Gengd síldar,
loðnu og makríls er þekkt
dæmi og breytingar halda
áfram.
l Hækkun sjávarborðs og landris
af völdum bráðnunar jökla eru
stærðir sem verða staðreynd
en erfitt að ráða í hvað munu
þýða.
2°C
þröskuldur
sem mannkyn
má ekki við að
fara yfir
Parísarsamkomu-
laginu má því líkja
við það að aðilar hafi
samþykkt staðsetningu á
korti sem skuli stefnt á, en
ekki ákveðið hvaða leið
eigi að fara.
Það væri ánægju-
legt markmið að
stefna á að verða fyrst
þjóða til að ná kolefnis-
jöfnuði.
Halldór Björnsson,
sérfræðingur á
Veðurstofu Íslands
1 7 . d e s e m b e r 2 0 1 5 F I m m T U d A G U r20 F r é T T I r ∙ F r é T T A b L A ð I ð