Fréttablaðið - 17.12.2015, Síða 48
Fólk|tíska
er ekki
minimalísk
„Ég viðurkenni fús-
lega að vera ekki
partur af hinum
mínímalíska lífsstíl
þó ég glöð myndi
vilja og á það því
miður til að kaupa
mér frekar nokkrar
ódýrari flíkur held-
ur en eina dýra og
klassíska.“
spáir þú mikið í tísku? Já, já, ég elti
samt ekkert alla tískustrauma og
sumt skil ég ekki og þá líður mér smá
vandræðalega. Til dæmis skil ég ekki
þessa blessuðu normcore-tísku, af
hverju ætti ég að vilja klæða mig eins
og George Costanza í Seinfeld?
Hvernig myndir þú lýsa þínum stíl?
Hann er síbreytilegur en alltaf smá
rokkaður og mjög ópraktískur. Ég finn
sérstaklega fyrir þessu ópraktíska
núna með átta vikna dóttir mína á
brjósti. Hef oftar en einu sinni áttað
mig á því í margmenni, t.d. í veislu
eða á kaffihúsi að eina leiðin til að ná
að vippa út brjóstinu og gefa barninu
sé hreinlega að fara alveg úr kjólnum
mínum og sitja þannig eftir á upp-
háum aðhaldssokkabuxum og ólekk-
erum gjafahaldara einum klæða.
Hvernig klæðir þú þig hversdags?
Rifnar svartar gallabuxur eru staðal-
búnaður þessa dagana, biker-jakki,
flennistór trefill og í mesta slabbinu
reyni ég að skilja hælaskóna eftir
heima (er að reyna að hætta að vera
svona ópraktísk, sko) og klæðist töff-
aralegum gúmmístígvélum úr Ilse
Jacobsen.
Hvernig klæðir þú þig spari? Númer
eitt, tvö og þrjú eru aðhaldssokka-
buxur, helst sem ná upp að handar-
krika. Svo kjóll sem hentar illa til
brjóstagjafa eða pallíettujakki sem
flækist í hárinu á dóttur minni. Ég
er í alvörunni að reyna að vinna í að
eignast praktískari spariföt!
Hvar kaupir þú fötin þín? Ætli 90% af
fataskápnum mínum séu ekki vintage-
föt úr Spúútnik eða Nostalgíu þar
sem ég starfaði í fjölda ára í bland við
flíkur úr Zöru og Topshop.
eyðir þú miklu í föt? Sko. Ég er
vandræðalega nísk á að kaupa mér
dýrar flíkur en viðurkenni fúslega að
vera ekki partur af hinum mínímal-
íska lífsstíl þó ég glöð myndi vilja
og á það því miður til að kaupa mér
frekar nokkrar ódýrari flíkur heldur
en eina dýra og klassíska.
Hver er uppáhaldsflíkin þín? Rifnu
gallabuxurnar, 80 den aðhaldssokka-
buxurnar, hlébarðapelsinn minn úr
Nostalgíu og fringe-rúskinnsjakkinn
úr Spúútnik slást um þann titil.
Uppáhaldshönnuður? Vivienne
Westwood – alltaf.
Bestu kaupin? Flennistóri Zörutref-
illinn minn sem knúsar mig í desem-
berkuldanum.
Verstu kaupin? Sjitt. Ég held ég
sé búin að gera svo oft slæm kaup
svona klukkan kortér í sex á laugar-
degi þegar mér hefur fundist mig
bráðvanta nýja flík fyrir partí kvölds-
ins að ég er búin að blokkera minn-
inguna um þau allra verstu.
Hverju verður bætt við fataskápinn
næst? Praktískri hnepptri skyrtu sem
hentar vel til brjóstagjafa. Djók. Það
verður pottþétt einhver ópraktískur
hátíðarsamfestingur með tólf tölum í
bakið sem ég þarf aðstoð við að kom-
ast í og úr til að pissa.
Hver er helsti veikleiki þinn þegar
kemur að tísku og útliti? Yfirhafnir og
þá aðallega flottir leðurjakkar.
notar þú fylgihluti? Já, alveg
grimmt. Sérstaklega Stellu McCartney
sólgleraugun með styrkleika svo ég
sjái lengra en metra fram fyrir mig.
Langar að vera með þau alltaf. Allan
daginn. Líka á nóttinni.
Áttu þér tískufyrirmynd? Ég meina
það svo innilega þegar ég segi
mamma mín, Svala Ólafsdóttir og
pabbi minn, Sigurður Hall. Þau eru
alltaf smart og kúl og ég vona að ég
verði jafn kúl og þau eftir þrjátíu ár!
Getur þú sagt mér dálítið um sjálfa
þig og hvað er fram undan hjá þér?
Ég er þessa dagana spennt að njóta
jólanna í fæðingarorlofi með Mekkín
dóttur minni og Árna manninum mín-
um en þess á milli starfa ég sem list-
rænn stjórnandi og teikna skrímsli,
furðuverur og hljóðfæri fyrir Mussi-
land, tónlistar- og ævintýratölvu-
leik fyrir börn sem kemur út í byrjun
næsta árs. Þeir sem vilja kynna sér
leikinn betur geta farið inn á mussi-
land.com.
rokkUð en ósköp
ópraktísk
spUrt&sVarað Grafíski hönnuðurinn Krista Hall heldur upp á rifnar galla-
buxur, hlébarðapels, rúskinnsjakka og þykkar aðhaldssokkabuxur sem ná
upp í handarkrika. Hún segist sérlega ópraktísk í fatavali og vinni í því að
koma sér upp þægilegri spariflíkum. Það gangi þó fremur illa.
töff mamma krista með dóttur sína Mekkín. Mynd/Anton Brink
NÝBÝLAVEGI 20 SÍMI 554-5022
kinahofid.is
8 rétta
hlaðborð
í hádeginu
TILBOÐ
KR. 1.790.-
OPIÐ KL. 11:00-14:00
Hlaðborðið er alla virka daga,
ekki um helgar.