Fréttablaðið - 17.12.2015, Blaðsíða 64
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@365.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
Yndisleg eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
Anna Jeppesen
kennari,
lést þann 15. desember síðastliðinn
á líknardeild LSH í Kópavogi.
Útför verður tilkynnt síðar.
Grímur Leifsson
Emil Grímsson Rikke Elkjær Knudsen
Leifur Grímsson Elsa Hrönn Reynisdóttir
Sigríður Sif Grímsdóttir Árni Arnórsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær fósturmóðir mín,
tengdamóðir, amma og langamma,
Unnur Kristín
Sumarliðadóttir
Hraunbæ 140, Reykjavík,
sem lést á líknardeild Landspítalans
í Kópavogi mánudaginn 7. desember,
verður jarðsungin frá Háteigskirkju föstudaginn
18. desember kl. 15.00.
Sigurgeir Ernst Birna Baldursdóttir
Viktoría Sigurgeirsdóttir Jón I. Jónsteinsson
Unnur K. Sigurgeirsdóttir
Róbert Elí Jónsson Óskírð Jónsdóttir
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Daníel Gestsson
verkfræðingur,
Vallarbraut 3, Seltjarnarnesi,
lést 14. desember á Landspítalanum.
Útförin fer fram frá Seltjarnarneskirkju
þriðjudaginn 29. desember kl. 15.00.
Auður Stella Þórðardóttir
Jón Daníelsson Sigrún Ása Markúsdóttir
Auður Daníelsdóttir Sverrir Sigurðsson
Guðný Sif og Hanna Guðrún Sverrisdætur
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Guðjón E. Jónsson
fv. kennari,
Álfaskeiði 55, Hafnarfirði,
lést á líknardeild Landspítalans í
Kópavogi laugardaginn 12. desember.
Útför hans fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju
mánudaginn 21. desember kl. 11.00.
Alrún Klausen
Hallveig Guðjónsdóttir
Jón Þór Guðjónsson Helga Kristjánsdóttir
Selma Guðjónsdóttir Valdimar Eiríksson
Inga Dís Guðjónsdóttir Steinar Steinarsson
Jónatan Már Guðjónsson
Guðjón Rúnar Guðjónsson Þórey Einarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elsku pabbi okkar, tengdapabbi,
afi og langafi,
Björn J. Guðmundsson
áður til heimilis að Karfavogi 25,
sem lést á Hrafnistu, Reykjavík, þann
9. desember, verður jarðsunginn
frá Lindakirkju, Kópavogi,
mánudaginn 21. desember kl. 13.00.
Margrét Björnsdóttir Einar Hákonarson
Sigrún Björnsdóttir
Guðrún Björnsdóttir Sigurður Á.Sigurðsson
Jón Axel Björnsson Karen Sigurkarlsdóttir
Björn Jóhann Björnsson Vilhelmína Einarsdóttir
Unnur Ýr Björnsdóttir Magnús Bogason
afa- og langafabörn.
Elsku móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma, langalangamma
og systir,
Bjarnfríður G.
Valdimarsdóttir Mehan
f. 17.12.1923,
lést á heimili sínu í Hannastown,
Pennsylvaniu-fylki í Bandaríkjunum þann 10. maí 2015.
Jarðsett var þann 14. maí 2015 frá First Evangelical
Lutheran Church of Greensburg. Minningarathöfn fer fram
í Fossvogskapellu í dag, 17. desember kl. 15.00.
Sigurlína Jóhannesdóttir Donald Ingólfsson
Mary Ann Wilson, Augusta Block, Rosemarie Campbell,
Christine Mehan, barnabörn, barnabarnabörn,
barnabarnabarnabörn, Ingveldur Valdimarsdóttir,
Gróa Valdimarsdóttir
Elskulegur sonur minn og bróðir,
Sverrir Þór Halldórsson
matreiðslumeistari
lést á lungnadeild Landspítalans
föstudaginn 11. desember.
Útför hans fer fram frá Fossvogskapellu
mánudaginn 21. desember kl. 11.
Kolbrún Þorláksdóttir
Einar Þór Rafnsson
Elsku eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
Erla Gróa Guðjónsdóttir
fv. lögreglukona og fulltrúi hjá
sálfræðideild skóla í Reykjavík, síðast
búsett í Torfufelli 20, Reykjavík,
sem lést á Landspítalanum í Reykjavík
7. desember sl., verður jarðsungin frá Fella- og
Hólakirkju föstudaginn 18. desember nk. kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á að styrkja
æskulýðs- og sumarstarf KFUM og KFUK í Vindáshlíð og
Kaldárseli, Hjálparstarf kirkjunnar á Íslandi, Samhjálp og
Mæðrastyrksnefnd.
Kristján Búason
Jóna Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir Rúnar Vilhjálmsson
Búi Kristjánsson Sif Sigfúsdóttir
Guðjón Kristjánsson Ragnheiður H. Arnardóttir
Erlendur Kristjánsson Elín Anna Bjarnadóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
„Ég mun fagna þessu með fjölskyld-
unni; systkinum, eiginkonu og börn-
um. Þannig ætla ég að halda upp á
afmælið,“ segir Kristján Sigurjónsson
útvarpsmaður, sem er sextugur í dag.
Kristján hefur starfað við útvarp meira
og minna síðan 1983 og þekkja líklega
flestir landsmenn rödd hans, en hann
les gjarnan fréttir á Ríkisútvarpinu.
„Við hjónin munum svo fara til
Tenerife í janúar, sem verður ótrúlega
ljúft,“ bætir hann við.
Síðustu rúmu þrjá áratugina hefur
Kristján starfað hjá Ríkisútvarpinu.
„Ég byrjaði á Rás 2, þegar rásin byrjaði.
Síðar færði ég mig yfir í dægurmál og
dagskrárgerð. 1987 færði ég mig svo
norður, vann á svæðisútvarpinu. Þar
var gaman að vera, ég var þar í ein
þrettán ár og flutti svo suður og hóf
störf á fréttastofunni.“
Kristján sinnir vaktstjórn frétta
og er fréttalesari. „Þegar ég horfi yfir
ferilinn þá stendur kannski helst upp
úr hvað þetta hefur verið ofsalega
gaman. Þetta er búið að vera skemmti-
legur tími, starfið er fjölbreytt, bæði
fréttamennskan og dagskrárgerðin.
Þetta er eiginlega „draumadjobbið“,“
segir hann.
Í fjölmiðlaheiminum tíðkast það
gjarnan að menn reyni fyrir sér á mis-
munandi miðlum. En Kristján hefur
haldið sig við útvarpið allan þennan
tíma. „Vissulega hef ég gert stöku inn-
slög í sjónvarpið og einhverjar sjón-
varpsfréttir. Ég er nú talinn þolinmóð-
ur maður og rólegur. En ég hef ekki
þolinmæðina í sjónvarpsvinnsluna,“
segir hann og hlær. Kristján heldur
áfram: „Ég hreifst strax af útvarpinu
sem miðli. Maður er sjálfstæður, því
maður getur séð um vinnsluna að
svo miklu leyti. Þannig verður maður
örugglega frjálsari í útvarpinu en sjón-
varpinu, en ég segi þetta auðvitað með
þeim fyrirvara að ég hef ekki kafað
jafn djúpt ofan í sjónvarpsmálin.“
En hvað er það þá sem einkennir
góðan útvarpsmann? „Fyrst og fremst
að vera eðlilegur og samkvæmur sjálf-
um sér. Maður þarf að hafa einhverja
blöndu af vandvirkni og kæruleysi. Ég
tek vinnuna mína alvarlega en sjálfan
mig ekki of hátíðlega. Ég held að það
sé mikilvægt.“ kjartanatli@frettabladid.is
Fagnar með fjölskyldunni
Útvarpsmaðurinn Kristján Sigurjónsson er sextugur í dag. Hann fer yfir rúmlega þriggja
áratuga feril sinn í samtali við Fréttablaðið.
Hér er Kristján Sigurjónsson ásamt eiginkonu sinni, Áslaugu Óttarsdóttur, við gamla mennta-
skólann þeirra beggja – Menntaskólann við Tjörnina.
Merkisatburðir
283 Gajus verður páfi.
1263 Magnús lagabætir tekur við konungdómi í Noregi eftir lát
Hákonar gamla.
1538 Páll 3. páfi bannfærir Hinrik 8. Englandskonung.
1875 Fyrsta löggjöf um ljósmæður gengur í gildi.
1903 Orville Wright flýgur það sem almennt er talið fyrsta raun-
verulega flugið með flugvél.
1961 Indland ræðst inn í Góa.
1970 Hafrannsóknaskipið Bjarni Sæmundsson kemur til landsins.
1975 Heimsminjaskrá UNESCO tekur gildi þegar 20 ríki undirrita
hana.
1 7 . d e s e m b e r 2 0 1 5 F I m m T U d A G U r48 T í m A m ó T ∙ F r É T T A b L A ð I ð
tímamót