Fréttablaðið - 17.12.2015, Side 84
Hljómsveitin Skálmöld kom á dögunum heim eftir tæplega mánaðar langt tónleikaferðalag um Evrópu en sveitin
lék á átján tónleikum í tíu löndum.
„Austur ríki, Þýskaland, Danmörk,
Noregur, Svíþjóð, Finnland, Eistland,
Lettland, Litháen og Pólland voru við
komustaðirnir. Við höfðum spilað
áður í flestum þessara landa en vorum
að fara í fyrsta sinn til Finnlands og
Eystrasaltslandanna. Það er alltaf
ákveðin stemning og spenningur að
leika í fyrsta sinn í hverju landi. Það gaf
túrnum ákveðna vigt,“ segir Björgvin
Sigurðsson, einn gítarleikari og einn
söngvari Skálmaldar.
Systkinin saman á túr
Liðsskipan sveitarinnar í tónleikaferð
inni var örlítið öðruvísi en venjan er því
Helga Ragnarsdóttir, systir Snæbjörns
bassaleikara sveitarinnar og Baldurs
sem er einn af gítarleikurum og söngv
urum sveitarinnar, lék með Skálmöld á
túrnum. Hún lék á hljómborð og leysti
þar með Gunnar Ben, hljómborðsleik
ara sveitarinnar, af á tónleikaferðinni.
Hvernig var Helga að fíla rokkara
lífernið? „Þetta gekk allt bara ljóm
andi vel. Sumir höfðu meira að segja
orð á því að það væri bara alls ekki
jafn óþolandi að hafa okkur öll þrjú
systkinin saman og þeir höfðu búist
við. Satt best að segja var þetta alveg
nákvæmlega eins og ég bjóst við. Ég
hef túrað áður í ýmsu samhengi og
það er óttalega lítill munur, hvort
sem um ræðir metaltúr eða indí
túr. Svo eru metalaðdáendur upp til
hópa ofsalegar dúllur svo þetta var
bara eins og ég er vön. Síðan þekki ég
til Skálmaldarstrákanna allra og vissi
hverju ég hafði játað,“ segir Helga.
Hún hefur komið víða við og hefur
meðal annars spilað með hljóm
sveitinni Rökkurró og starfað með
leikhópnum Lottu en í báðum verk
efnum hefur hún ferðast talsvert.
Í fyrsta sinn aðalnúmerið erlendis
Skálmöld var þó ekki ein á ferð því
sveitin var að túra með svissnesku rokk
hljómsveitinni Eluveitie. Í tónleikaferð
inni kom þó upp tveggja daga pása þar
sem Eluveitie spilaði á tónleikahátíðum
þar sem Skálmöld var ekki að spila en
okkar menn tóku þá til sinna ráða.
„Eluveitie spiluðu á einhverjum festi
völum sem höfðu verið bókuð löngu
fyrir túrinn og við því ekki inni í þeim
pakka. Við ákváðum þá í samstarfi við
bókunarskrifstofuna okkar í Evrópu að
bretta upp ermarnar og ráðast á einn
síðasta hjallann sem við áttum eftir og
spila í fyrsta sinn sem aðalnúmer utan
Íslands. Það var gríðarlega gaman að fá
loksins að spila „alvöru“ tónleika í fullri
lengd á okkar forsendum fyrir fólk sem
var komið til að sjá okkur og engan
annan, stemmingin verður pínu önnur.
Sem upphitunarband verður maður
að vera í bardagaham og leggja af stað
með markmiðið að vinna heilan sal af
fólki sem veit ekkert um þig og er alveg
sama og þú gefur engin grið fyrr en allir
eru með, en þegar þú veist að fólkið er
komið til að sjá þig getur maður leyft sér
að slaka meira á, skemmta sér aðeins
meira og taka aðeins meiri sénsa. Í
báðum tilfellum er bannað að vera
aumingi og bannað að sökka en nálg
unin er aðeins önnur. Ég er hins vegar
ekki viss um að neinn finni muninn
Systirin leysti af með Skálmöld
Hljómsveitin Skálmöld lauk nýverið við tónleikaferð um Evrópu. Sveitin lék á átján tónleikum í tíu löndum.
Liðsmenn Skálmaldar finna fyrir auknum vinsældum erlendis og segjast alltaf vera
að sjá fleiri einstaklinga í Skálmaldar-bolum.
Jens var bílstjóri í ferðinni en hann
er hér með grifflur sem Anna Snæ-
björnsdóttir, sem er móðir Snæbjörns,
Baldurs og Helgu, prjónaði. Ansi margir
þungarokkarar á Íslandi eiga grifflur
eftir Önnu.
Mikil systkinaást var á túrnum eins og sjá má á þeim Helgu og Baldri Ragnars-
börnum.
Skálmöld kom fram á átján tónleikum í tíu löndum í Evrópu. Mynd/JAgodA SzyMAńSkA
Við ákVáðum þá í
SamStarfi Við
bókunarSkrifStofuna
okkar í EVrópu að brEtta
upp Ermarnar og ráðaSt á
Einn SíðaSta hjallann SEm
Við áttum Eftir og Spila í
fyrSta Sinn SEm aðal-
númEr utan íSlandS.
Jón Geir Jóhannsson trommuleikari
nema við,“ útskýrir Jón Geir Jóhanns
son trommuleikari sveitarinnar. Þetta
er þriðja tónleikaferðin sem Skálmöld
fer í með Eluveitie en sveitirnar hafa nú
spilað saman á yfir 70 tónleikum.
Tónleikastaðirnir á ferðalaginu tóku
flestir á bilinu 500 til 800 manns, stærsti
staðurinn tók 1.500 manns og minnsti
300 manns. „Tónleikastaðirnir þar sem
við héldum okkar eigin tónleika voru
mun minni, tóku 100 manns hvor eða
svo. Það kom skemmtilega á óvart að
við fengum það marga á hvora tveggja
tónleikana og við spiluðum eins og
englar. Þetta voru sennilega heitustu
gigg sem ég hef spilað og gleymast
seint,“ bætir Baldur við.
Hafa róast í djamminu
Djamm og almenn gleði fylgir oft tón
leikaferðalögum hjá hljómsveitum en
hvort voru liðsmenn Skálmaldar eða
Eluveitie duglegri í djamminu? „Eluv
eitieliðar eru fleiri en við og hafa því
klárlega djammað mun meira. En þetta
var líka rólegasti túrinn okkar, djamm
lega séð, til þessa, við erum hugsanlega
flestir að róast eitthvað en auðvitað eru
menn eitthvað að djamma, mismikið
auðvitað en það er klárlega alltaf gleði
og gaman hjá okkur. Hljóðkerfið í rút
unni fékk alveg að finna fyrir því á þessu
ferðalagi,“ segir Þráinn Árni Baldvins
son, einn af gítarleikurum sveitarinnar.
Íslensku rokkararnir ferðuðust um á
glæsilegri rútu á ferðalagi sínu og segir
Snæbjörn að ágætlega hafi farið um
menn. „Á þessum lengri túrum erum
við alltaf með Nightliner, sem sagt rútu
með kojum sem við sofum í meðan
við ferðumst milli borga. Að ætla sér
að pakka eftir hvert einasta gigg, halda
á hótel, leggja sig í örfáa tíma og sitja
svo uppréttur í bíl í marga klukkutíma
hvern einasta dag er óraunhæft. Við
höfum áður deilt stórum Nightliner
með böndum sem við túrum með en
undanfarið höfum við dílað við fyrir
tæki í Prag sem leigir okkur minni bíla.
Þetta er breyttir kálfar með níu kojum,
smá setustofu, ísskáp og neyðarklósetti.
Þröngt og sveitt en hefur reynst okkur
óskaplega vel. Að auki eru bílstjórarnir
sem fyrir þá vinna algerir snillingar,
bæði stórskemmtilegir menn sem og
frábærir ökumenn. Það hjálpar til við að
halda geðheilsunni í lagi að treysta þeim
sem keyrir meðan þú skröltir óbundinn
í kojunni þinni þegar bíllinn skellur ofan
í enn eina holuna á einhverjum sveita
vegi í Póllandi,“ segir Snæbjörn.
Menn voru duglegir að kaupa sér
vínylplötur á tónleikaferðinni og var bíl
stjórinn, Jens, duglegur að vísa mönnum
veginn að næstu plötubúð á viðkomu
stöðunum. „Þegar ég lít til baka þá er
Jensenatorinn stór og mikilvægur þátt
ur. Hann skildi reglulega eftir miða fyrir
mig með upplýsingum um plötubúðir í
þeim borgum sem við lékum í. Við Jens
náðum vel saman í plötusöfnuninni og
Baldur kom sterkur inn! Vinsældirnar
aukast erlendis,“ segir Þráinn. Jens,
Baldur og Þráinn keyptu sér yfir fimmtíu
vínylplötur á túrnum.
Skálmöld hefur undanfarin ár verið
ein vinsælasta rokkhljómsveit landsins
en hefur einnig aukið vinsældir sínar
erlendis. „Við fundum mikinn mun
í þetta skiptið, við sjáum miklu fleiri
Skálmaldarboli á ferðum okkar, fólk
er meðvitaðra um tilvist bandsins og
allt á blússandi siglingu. Það sem eigin
lega stendur upp úr eftir þennan túr er
hversu vel gengur,“ segir Snæbjörn.
Nú þegar Skálmöld er komin heim
aftur, hvað er þá fram undan hjá sveit
inni? „Árið er búið að vera ofboðslegt
og ýmislegt í farvatninu fyrir það næsta.
Nákvæmlega núna er þó ekki margt
sem við getum sagt frá, fyrir utan það
að við ætlum okkur að gefa út plötu,
sennilega seint næsta haust. Við erum
í óðaönn að bóka næsta ár og útlit fyrir
að útlandaferðunum eigi eftir að fjölga
frekar en hitt.“ gunnarleo@frettabladid.is
Þú finnur teppi sem hentar
þínu heimili hjá okkur. www.persia.is
Parki ehf. • Dalvegi 10-14 • www.parki.is • sími: 595 0570
1 7 . d e s e m b e r 2 0 1 5 F I m m T U d A G U r68 L í F I ð ∙ F r É T T A b L A ð I ð