Fréttablaðið - 17.12.2015, Side 90

Fréttablaðið - 17.12.2015, Side 90
„Þessi hugmynd var alltaf að koma aftur og aftur upp, eins og stundum gerist í svona hönnunar- og hug- myndaferli, nema hvað að þessi hélt alltaf áfram að skjóta upp kollinum,“ segir Helga Friðriksdóttir, annar hluti tvíeykisins sem myndar Orrifinn skartgripi, en Verkfæri, fjórða lína þessa vinsæla skartgripamerkis, verð- ur dregin fram í dagsljósið á morgun. „Í fyrra átti seinasta línan okkar, Flétta, hug okkar allan og því ýttum við verkfærunum alltaf til hliðar,“ útskýrir Helga sem segir kornið sem fyllt hafi mælinn hafa verið ævagöm- ul skæri sem Helga hnaut um þegar hún og Orri, voru fyrir vestan að gera upp gamalt hús. „Ég fann þessi eldgömlu hárskeraskæri, sem voru brotin, ryðguð og svo ótrúlega falleg. Ég fór rakleiðis til Orra með þau og sagði við hann að þetta væri ekkert annað en tákn um að láta loks verða af því að sinna þessari hugmynd.“ Úr varð að þau Orri fóru að spek- úlera mikið og velta fyrir sér verkfær- um en vildu hugsa út fyrir rammann og endurhugsa formfasta hugtakið verkfæri aðeins. „Flestir hugsa um hamar eða skrúfjárn þegar talað er um verkfæri, en þau eru svo mörg önnur og eiga sér öll sín sérstöku hlutverk. Við tókum fyrir rakhníf, exi og skæri – sem eru öll með svo falleg form, og blekpenna, því þótt það gleymist stundum er penninn verk- færi og í ofanálag beittasta vopnið,“ bendir Helga á. Fimmta verkfærið sem varð fyrir valinu var lykill: „Hann er svo fallegt og rómantískt verkfæri og mjög táknrænn.“ Vekur athygli að sum Verkfæranna hafa verið skreytt djúprauðum, dropalaga steinum sem eiga að endurs pegla blóð. „Þegar við vorum að velta fyrir okkur boðskap línunnar og hvað við vildum að hún stæði fyrir kom verkalýðsbarátta fyrst upp í hugann. Það hvernig forverar okkar hafa byggt þetta land með berum höndum. Línan er þannig á vissan hátt til heiðurs verkafólkinu og óður til hversdagshetjunnar sem leggur sitt af mörkum með verkfærið að vopni. Það er hægt að minnast blóðs, svita og tára forvera okkar og finna sinn eigin styrk með skartgripi úr Verkfæri,“ segir Helga, sem er í óðaönn við að undirbúa útgáfuhóf línunnar sem fram fer á morgun milli 17.00 og 20.00 í nýrri verslun Orrifinn skartgripa að Skóla- vörðustíg 17a. gudrun@fretta- bladid.is Svipta loks „Ég held þetta sé nítjánda árið okkar, annars erum við ekk- ert góðir að muna svona tölur,“ segir Þorkell Máni P é t u r s s o n útvarpsmað- ur á X-977, sem er einn af skipuleggj- endum hinna árlegu Xmas tónleika sem fram fara í Hlé- garði í Mosfellsbæ í kvöld. Allur ágóðinn af tónleikunum rennur í nýjan tómstundasjóð Rauða krossins sem notaður verður til styrkt- ar börnum flóttafólks. „Við höfum alltaf styrkt gott málefni og ágóðinn rennur óskiptur í tóm- stundasjóðinn til styrktar börnum flóttafólks. Þetta málefni er mjög viðkvæmt um þessar mundir og við viljum að þessir flóttamenn aðlagist samfélaginu og viljum aðstoða þá eins og við getum. Fólk hefur verið duglegt við að styðja flóttamenn á samfélags- miðlun og nú er komið að því að styðja þá í verki þannig að ég býst við að fólk kaupi sér miða,“ segir Máni. Á tónleikunum koma fram nokkrir af vinsælustu tónlistarmönnum þjóð- arinnar en það eru Dimma, Emmsjé Gauti, Júníus Meyvant, Kiriyama Family, Axel Flóvent, Markús & The Diversion Sess ions, Himbrimi, Rythmatik, Kontinuum og VIO sem koma fram. Tónleikarnir fara fram í Hlégarði sem er talið vera eitt glæsilegasta tón- leikahús landsins. „Við ætlum að prófa að vera í Mosó. Þetta er alveg geggjað hús og við viljum líka með þessu draga fólkið úr bænum og látunum og leyfa því að njóta sín í Mosó,“ bætir Máni við. Húsið er opnað kl. 19.30 og hefjast tónleikarnir kl. 20.00. Miðasala fer fram á miði.is og kostar hver miði 977 krónur. gunnarleo@frettabladid.is Vill sjá Emmsjé Gauti ætlar að styðja börn flóttamanna með því að koma fram á tónleikunum í kvöld. fréttablaðið/pjEtur Hinir árlegu Xmas tón- leikar fara fram í kvöld og rennur allur ágóði af tónleikunum í nýjan tóm- stundasjóð til styrktar börn- um flóttafólks. hulunni af Verkfærum Blóðidrifnir skartgripir Orrifinn eru til heiðurs verkafólkinu og óður til hversdags- hetjunnar. „Hvað eru verkfæri?“ spyr Helga Friðriksdóttir annar hluti tvíeykisins. Orri og Helga eru eigendur Orrafinn. Guðrún Ansnes gudrun@frettabladid.is stuðning í verki frosti logason og Máni pétursson, útvarps- menn á X-inu 977. fréttablaðið/stEfán 1 7 . d e s e m b e r 2 0 1 5 F I m m T U d A G U r74 L í F I ð ∙ F r É T T A b L A ð I ð

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.