Fréttablaðið - 18.04.2015, Side 10

Fréttablaðið - 18.04.2015, Side 10
18. apríl 2015 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 10 RANNSÓKNIR Tímamótarannsókn Veiðimálastofnunar hefur leitt vís- indin ögn nær því að skilja sjávar- vist laxa, en aldrei áður hefur tek- ist að fylgjast með laxi frá því hann gengur til sjávar að vori og aftur í ána sína sumarið eftir. Sigurður Guðjónsson, forstjóri Veiðimálastofnunar, segir að fram til þessa hafi fiskur verið merktur, siglt með hann út á sjó og heimferð- in verið kortlögð. Eins hafi seiðum verið fylgt til sjávar sem svo hafa tapast og nýlega hafa menn merkt hoplax og fylgst með honum sumar- ið áður en hann gengur aftur í ána. Gönguseiðum var sleppt í Kiða- fellsá í Kjós vorin 2005 og 2006 og voru seiðin merkt með mælimerkj- um sem komið var fyrir í kviðarholi þeirra. Mælimerkin voru framleidd af íslenska hátæknifyrirtækinu Stjörnu-Odda og mældu hita og dýpi á klukkustundar fresti. Fimm laxar endurheimtust úr sleppingunni 2005 og tveir laxar úr sleppingunni 2006. Í ljós kom að laxarnir sem fóru úr Kiðafellsá héldu sig í byrjun sjávar- dvalarinnar fyrir vestan og svo suð- vestan við Ísland. Um haustið fóru laxarnir í austur sunnan við Ísland langleiðina til Færeyja en sneru svo við og dvöldu það sem eftir lifði vetrar suðvestur af Íslandi uns þeir héldu af stað heim á leið í Kiðafellsá. Sigurður segir að komið hafi í ljós að íslenski laxinn dvelji mögulega á ákveðnu belti sem gengur þvert yfir Norður-Atlantshafið frá suð- vestri til norðausturs um Ísland. Eins að hann sýni dæguratferli – laxinn heldur sig dýpra á daginn en á nóttinni en það var ekki vitað fyrr en nú. Seinna árið voru laxarnir sunn- ar en það fyrra. Þetta sýnir að lax dvelur á slóðum þar sem vænta má mikillar fæðu og er við tiltölulega háan sjávarhita sem nauðsynlegur er til hraðs vaxtar. „Hann heldur sig í straumskilum þar sem er gríðarleg framleiðsla á svifdýrum og fiski. Hann er að elta þessi skilyrði en ekki sérstaka staði,“ segir Sigurður. Sigurður segir að þegar vitað er hvar laxinn heldur sig á hverjum tíma sé hægt að skoða betur umhverfisaðstæður á þeim slóðum og finna skýringar á mismunandi góðum vexti og afföll- um laxins milli ára. Þetta sé ekki síst mikilvægt fyrir marga þegar miklar sveiflur eru í veiði í íslensk- um ám, en margar kenningar eru uppi um hvað hefur farið úrskeiðis í sjávardvöl laxins, til dæmis áður en lax gekk í ár í fyrrasumar. svavar@frettabladid.is Kortlögðu sjávardvöl laxa fyrstir allra Veiðimálastofnun hefur fyrst allra náð að kortleggja sjávardvöl laxa í heild sinni. Upplýsingar eru í hendi um atferli laxins sem og ferðir hans í hafinu. Frekari rannsóknir eru nauðsynlegar en tækni Stjörnu-Odda var nýtt við rannsóknina. Á SKURÐARBORÐINU Mælimerki sett inn í laxaseiði áður en því var sleppt í Kiða- fellsá– sjö sneru til baka eftir ár í sjó af 600 alls. MYND/VMST ELDGOS Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í gær aukafjárframlög til þeirra stofnana sem hafa stundað vöktun, mæling- ar og viðbúnað við eldgosinu í Holuhrauni. Aukin fjárframlög nema 448 milljón- um króna árið 2015 auk þess sem ónýtt- ar fjárheimildir að upphæð 100 milljónir frá árinu 2014 verða nýttar. Ríkisstjórn- in hefur því veitt stofnunum sem vinna að aðgerðum í kringum eldsumbrotin alls 1,1 milljarð króna frá því að eldgosið hófst í fyrra. „Það starf sem eftirlits- og viðbragðs- aðilar hafa unnið til þessa hefur verið sér- lega farsælt. Þó að mesta hættan virðist liðin hjá er nauðsynlegt að standa vaktina áfram og tryggja fyllsta öryggi á svæðinu, sérstaklega yfir ferðamannatímann. Einn- ig er mikilvægt að efla það vísindastarf sem náttúruhamfarir sem þessar kalla á,“ sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson for- sætisráðherra. Tillaga um aukin fjárframlög kom frá samráðshópi ráðuneytisstjóra um við- brögð við náttúruvá. Hópurinn telur að þó að gosinu sé lokið sé mikilvægt að stofn- anir haldi áfram vöktun og mælingum við hraunið. - srs Ríkisstjórnin hefur veitt meira en milljarð í stofnanir vegna eldgossins í Holuhrauni: Aukaframlög samþykkt vegna eldgossins ELDSUMBROT Forsætisráðherra segir viðbragðsstörf hafa verið farsæl. MYND/ MAGNÚS TUMI GUÐMUNDSSON Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is Ryksuguúrval Kletthálsi Reykjavík Reykjanesbæ 6.990,- Spandy heimilisryksugan • 1600W • afar hljóðlát • mikill sogkraftur > 18KPA • margnota pokiDrive ryksuga í bílskúrinn • 1200W • 20 lítra • sogkraftur > 16KPA • fjöldi fylgihluta 7.590,- Model-LD801 Cyclon ryksuga Kraftmikil 9.990,- AÐALFUNDUR Félags íslenskrasímamanna Aðalfundur Félags íslenskra símamanna 2014 verður haldinn að Stórhöfða 31 1.hæð (gengið inn að neðan- verðu) miðvikudaginn 22.apríl kl. 18.10 Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf: a. Skýrsla stjórnar b. Reikningar félagsins c. Kosningar 2. Kosning fulltrúa á þing RSÍ 3. Önnur mál Stjórn Félags ísl. símamanna Fæst í apótekum, heilsubúðum og stórmörkuðum www.gengurvel.is BELLAVISTA náttúrulegt efni fyrir augun, ríkt af lúteini og bláberjum NÁTTBLINDA Save the Children á Íslandi Hann heldur sig í straum- skilum þar sem er gríðarleg framleiðsla á svifdýrum og fiski. Sigurður Guðjónsson, forstjóri Veiðimálastofnunar. STJÓRNSÝSLA Skipulags- og byggingar- fulltrúi í Hafnarfirði hefur gefið Hafnar- fjarðarbæ og Golfklúbbnum Keili fjögurra vikna frest til að skila inn uppdráttum að golfskemmu í Steinholti eða fjarlægja húsið. Keilir á 20 prósent í skemmunni og Hafnarfjarðarbær 80 prósent. Húsið var upphaflega byggt 1982 undir háhyrninga Sædýrasafnsins. Í því er nú púttaðstaða og afgreiðsla fyrir starfsemi Keilis. Réttum uppdráttum að skemmunni hefur aldrei verið skilað inn þrátt fyrir eftirgangsmuni byggingarfulltrúa sem hefur því aldrei gefið út byggingarleyfi og er nú loks búinn að missa þolinmæðina. „Verði ekki brugðist við erindinu innan fjögurra vikna mun skipulags- og bygg- ingarfulltrúi leggja dagsektir á eigendur, 20.000 krónur, frá og með 1. júní 2015,“ segir byggingarfulltrúinn. - gar Byggingarfulltrúinn í Hafnarfirði gefur bænum fjögurra vikna lokafrest: Skili uppdrætti eða rífi golfhús PÚTTSKEMMA KEILIS Þar sem áður voru háhyrningar eru nú kylfingar að pútta. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.