Fréttablaðið - 18.04.2015, Blaðsíða 110
18. apríl 2015 LAUGARDAGUR| LÍFIÐ | 66
Í vikunni spurðist út að Ólafur Darri Ólafsson leikari myndi vinna með leikstjóranum heims-
fræga, Steven Spielberg, í kvik-
mynd sem tekin verður upp í Van-
couver í Kanada á næstunni. Þetta
er enn ein rósin í hnappagat leikar-
ans, sem fær sífellt stærri hlutverk
í erlendum kvikmyndum og sjón-
varpsþáttum.
„Ég hef verið svo heppinn
að fá að vinna með mjög góðu
fólki allan minn feril,“ segir
Ólafur Darri í samtali við
Fréttablaðið. Leikarinn
getur lítið tjáð sig um
hið nýja verkefni. „Ég
hlakka auðvitað mikið
til þess að vinna með
Spielberg,“ segir hann.
Ólafur Darri hefur nú
komið fram í fjölda af
þáttum og kvikmyndum
erlendis. Hann lék til
að mynda í þáttun-
um True Detective,
sem fengu einróma
lof gagnrýnenda.
Einnig kom hann
fram í hinum
vinsælu þáttum
Banshee. „Mér
finnst ég hafa verið
heppinn; oft verið
réttur maður á rétt-
um stað einhvern
veginn. Bæði í kvik-
myndum og í leik-
húsi. Ég hef fengið
að vinna með fólki
sem ég hef lengi vel
litið upp til og er þakk-
látur fyrir það.“
Vill geta lagt eitthvað
af mörkum
Þegar Ólafur Darri er
spurður hvort honum
þyki ekki sérstakt
að sjá sjálfan sig á hvíta tjaldinu
innan um stórleikara hugsar hann
sig aðeins um. „Mér hefur í raun
alltaf fundist það, alveg frá því
að ég byrjaði að leika. En maður
velur sér einhverja starfsgrein, eða
hún velur mann, eftir því hvernig
maður horfir á það. Og þetta er
eitt sem fylgir því að vera leikari,“
útskýrir Ólafur Darri.
Hann segist nálgast öll verkefni,
sama hversu stór eða smá þau eru,
með sama hugarfarinu. „Einn eldri
leikari kenndi mér frábæra lexíu
sem hefur alltaf nýst mér. Hún
er sú að reyna að velja verkefnin
sín eftir því hvort manni finnist
maður geta lagt eitthvað af mörk-
um. Getur maður gert verkefnið
betra? Getur maður hjálpað til við
að segja þá sögu sem áhorfandinn
á að upplifa?“ Ólafur segir að svona
hugsunarháttur hjálpi leikaranum
að útiloka stærð verkefnisins og að
nálgast starf sitt af æðruleysi.
Erfitt að vera frá fjölskyldunni
Ólafur Darri er í sambandi með
Lovísu Ósk Gunnarsdóttur dans-
ara. Saman eiga þau tvær ungar
dætur. Ólafur segir að það sé erf-
itt að vera frá fjölskyldunni vikum
saman, sem gjarnan er fylgifisk-
ur leikarastarfsins. „Já, það getur
oft verið rosalega erfitt. Til dæmis
hef ég verið á Siglufirði bróður-
part vetrar, við tökur á Ófærð.
Þetta er einn helsti ókosturinn
við starfið, að vera svona lengi frá
fjölskyldunni.“
Ólafur Darri hefur tekið þátt í
mörgum verkefnum sem áhorfend-
ur geta séð á næstunni. Hann leik-
ur einnig í kvikmyndinni The Last
Witch Hunter, með stórleikurunum
Vin Diesel og Elijah Wood, sem er
væntanleg í haust. Kvikmyndin
Austur er frumsýnd um helgina
en þar fer Ólafur Darri með stórt
hlutverk. Einnig er hann í þáttum
Baltasars Kormáks, sem bera titil-
inn Ófærð og verða sýndir á RÚV
auk þess sem sýningarréttur hefur
verið seldur víða um Evrópu.
Velur verkefnin ef hann telur sig
geta lagt eitthvað af mörkum
Leikarinn Ólafur Darri Ólafsson heldur áfram að gera það gott í kvikmyndaheiminum. Hann mun leika í
kvikmynd í leikstjórn Stevens Spielberg sem verður sýnd á næsta ári. Fréttablaðið fer yfi r feril leikarans.
FRUMSÝND Í HAUST Ólafur Darri Ólafsson og Vin Diesel við tökur á myndinni the Last Witch Hunter.
Kjartan Atli
Kjartansson
kjartanatli@365.is
LÍFIÐ
VERK SEM VAKIÐ HAFA HEIMSATHYGLI
2012
2013
2014
2015
2016
SECRET LIFE OF
WALTER MITTY 2013
Kvikmynd
í leik-
stjórn Bens
Stiller. Hluti
myndar-
innar var
tekinn upp
hér á landi.
Aðrir
leikarar Ben
Stiller, Kristen Wiig, Jon Daly.
7,4
TRUE DETECTIVE
2014
Sjónvarpsþáttaröð skrifuð
af Nic Pizzolatto.
Aðrir leikarar: Matthew
McConaughey, Woody Harrel-
son, Michelle Monaghan.
Ólafur Darri lék í einum þætti.
9,3
CONTRABAND 2012
Kvikmynd
í leikstjórn
Baltasars
Kormáks.
Aðrir
leikarar
Mark Wahl-
berg, Kate
Beckinsale,
Ben Foster.
6,5
A WALK AMONG THE
TOMBSTONES 2014
Kvikmynd
í leikstjórn
Scotts
Frank.
Aðrir leik-
arar: Liam
Neeson, Dan
Stevens, Dav-
id Harbour.
6,5
THE LAST WITCH
HUNTER 2015
Kvikmynd í leikstjórn
Brecks Eisner.
Aðrir leikarar: Vin Diesel,
Rose Leslie, Elijah Wood.
Kemur í bíó 23. október.
BFG 2016
Kvikmynd
í leikstjórn
Stevens
Spielberg
Aðrir
leikarar:
Rebecca
Hall, Mark
Rylance,
Jemaine Clement, Bill Hader.
Myndin er byggð á sögu
eftir Roald Dahl og er fyrsta
myndin sem Spielberg leik-
stýrir fyrir Disney.
Ólafur Darri leikur risa í
myndinni.
BANSHEE 2014
Sjónvarps-
þættir skrif-
aðir af Dav id
Schickler og
Jonathan
Tropper.
Aðrir leik-
arar: Antony
Starr, Ivana
Milicevic.
8,4