Fréttablaðið - 18.04.2015, Blaðsíða 104
18. apríl 2015 LAUGARDAGUR| MENNING | 60
Vegakapellur í Póllandi, stafkirkjur
í Noregi og sveitakirkjur á Íslandi
eru myndefni níu ljósmyndara frá
sömu löndum á sýningunni Helgir
staðir. Þetta sérstaka verkefni á
uppruna sinn hjá Þjóðminjasafninu
í Gdansk í Póllandi og hefur staðið
yfir í nokkur ár. Jónas Hallgríms-
son er á meðal þeirra ljósmyndara
sem hafa unnið að þessu skemmti-
lega verkefni á síðustu árum.
„Þetta verkefni hefur verið lengi
í gangi en svo kom ég að þessu
um 2013. Síðan þá hef ég verið að
mynda bæði kirkjur hér á Íslandi
og ýmsa helgistaði í Póllandi. Ég
segi helgistaði vegna þess að það
var minna um að ég væri að mynda
kirkjur í Póllandi. Þetta voru frem-
ur litlir helgistaðir sem marga var
að finna á óvenjulegum stöðum.
Ég myndaði til dæmis einn slíkan
sem stóð rétt við bensínstöð svo
umhverfið var oft ansi sérstakt og
áhugavert. Noregur er líka hluti af
þessu skemmtilega verkefni enda
eru þar margar sérstakar og fal-
legar stafkirkjur og margt fleira
skemmtilegt að sjá.“
Verkefnið hefur það að markmiði
að skoða á hvern hátt kirkjubygg-
ingarlist speglar evrópskar hugsjón-
ir lítilla samfélaga ásamt því að leita
leiða til að vernda menningarhefð.
Það er því forvitnilegt að skoða
hvort ólíkir listamenn frá ólíkum
löndum nálgist viðfangsefnin með
sambærilegum hætti eða ekki.
„Þegar ég spái í það þá er tví-
mælalaust munur á nálguninni.
Það voru Pólverjar að mynda hér
og þeir höfðu aðra nálgun á íslensk-
ar kirkjur en ég – líklega listrænni
þar sem ég mynda þær frekar svona
eins og þær eru þegar komið er að
þeim. Svo þegar ég myndaði helgi-
staðina í Póllandi þá var ég meira í
víðari skotum svo umhverfið fylgdi
með en þeir tóku þrengri myndir
– voru meira í smáatriðunum því
staðsetning var þeim auð vitað ekki
framandi.“
Auk hefðbundinnar ljósmynd-
unar byggir sýningin á margmiðl-
un. Gestir geta skoðað ljósmyndir
og 360° myndir og hlustað á hljóð-
upptökur úr völdum byggingum.
Flestar ljósmyndirnar eru auk þess
settar fram í módelum sem líkjast
kapellum, frjálslega uppsettum í
sýningarsal. Inni í sérsmíðuðu húsi
geta gestir upplifað frið og ró, eins
og í alvöru kirkju.
„Aðalsýningin verður svo í Þjóð-
minjasafninu í Gdansk á næsta ári í
gríðarlega stórum og flottum sal og
það verður gaman að sjá þetta allt í
því rými en fram að því þá er um að
gera að koma í Gerðuberg og njóta
upplifunarinnar.“ magnus@frettabladid.is
Helgir staðir
þriggja landa
Sérstök sýning verður opnuð í Gerðubergi í dag.
Þar er leitast við að gefa fólki færi á að upplifa ólíka
helgistaði í Póllandi, Noregi og á Íslandi.
HELGUR STAÐUR Sérstakur helgistaður í Póllandi. LJÓSMYND ADAM SZUKALA
SVEITAKIRKJA Bænhúsið á Núpsstað. LJÓSMYND JÓNAS HALLGRÍMSSON
LJÓSMYNDARINN Jónas Hallgrímsson
ljósmyndari hefur unnið lengi að verk-
efninu Helgir staðir.
LJÓSMYND JÓNATAN GRÉTARSSON
Verk eftir Snorra Sigfús Birgis-
son verða í aðal hlutverki á 15:15
tónleikum í Norræna húsinu á
morgun.
„Jú, þetta er mikill heiður.
Reyndar finnst mér meira atriði
að það sé gaman. En auðvitað er
ég þakklátur fyrir allt sem er gert
fyrir músíkina mína,“ segir hann
glaðlega.
Verkin eru Dans, tileinkað Noru
Korn blueh (1951-2008), Cantilena,
tileinkað Óskari Ingólfssyni (1954-
2009), útsetningar á 23 íslensk
þjóðlögum og Strengjakvart ett
nr. 3.
Snorri valdi líka verkið Grave
eftir pólska tónskáldið Witold
Lutoslawsky sem hann segir hafa
haft góð áhrif á s.
Flytjendur eru félagar úr Caput-
hópnum. Snorri tekur fram að tón-
leikarnir séu stuttir, tæpur klukku-
tími án hlés. - gun
Portrett af
Snorra
TÓNSKÁLDIÐ „Auðvitað er ég þakklátur
fyrir allt sem er gert fyrir músíkina mína,“
segir Snorri Sigfús. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Lista- og menningar ráð Kópavogs auglýsir eftir
umsókn um eða ábend ingum um bæjar lista mann
Kópavogs. Þeir lista menn koma einir til greina sem
eiga lög heimili í Kópavogi.
Bæjar lista maður Kópavogs skal vera tilbúinn til að
vinna með lista- og menningar ráði og menningar-
stofn unum bæjar ins að því að efla áhuga á list og
list sköpun í Kópa vogi og taka þátt í við burðum
bæjar ins með það að leiðar ljósi.
Lista- og menningar ráð fer yfir um sóknir og gerir
til nefn ingar til eins árs í senn. Styrk upp hæð nemur
einni milljón króna.
Í um sókn inni skulu koma fram ítar legar upp lýs ingar
um náms- og starfs feril við kom andi og hug myndir
um á hvern hátt nýta eigi styrk inn við list sköpun.
Umsókn skal senda fyrir 8. maí á netfangið:
arnaschram@kopavogur.is.
kopavogur.is
PI
PA
R\
TB
W
A
·
S
ÍA
·
1
51
2
53
Kópavogsbær
auglýsir eftir
bæjarlistamanni
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
14
41
58
MENNING