Fréttablaðið - 18.04.2015, Blaðsíða 116
18. apríl 2015 LAUGARDAGUR| LÍFIÐ | 72
BAKÞANKAR
Jóns Sigurðar
Eyjólfssonar
Ekkert starf er mikilvægara í allri veraldarsögunni en skáldskapur. Ég
gæti hugsað mér að búa í heimi þar
sem ekki væru til læknar, kennarar
eða kaupmenn en að búa við til-
veru sem ekkert skáld hefur litað
með órum skáldagyðjunnar, það
væri mér ofviða. Til að taka eitt
lítið dæmi um það hvernig skáldin
gera lífið léttbærara langar mig
að nefna til sögunnar orðið
„gluggatjöld.“ Þegar það
hrekkur upp úr einhverjum
nærri mér sé ég ekki fyrir
mér tuskur þessar sem
fólk setur fyrir glugga sína
heldur fyllist ég póetískum
órum, get jafnvel orðið ást-
fanginn um stundarsakir.
Þetta er allt skáldinu Tóm-
asi Guðmundssyni að kenna
og ljóðinu hans Frá liðnu vori, þar sem
litlar hendur elskunnar bærðu glugga-
tjöldin og svo er hann var orðinn eldri
gekk hann fyrir sama glugga en: En
aldrei framar hvítir armar hreyfa
gluggatjöldin.
ÉG verð kátur við það eitt að sjá prímus,
allt út af Jóni Prímusi í Kristnihald-
inu hans Halldórs Laxness og meira að
segja gjörvallt Snæfellsnesið er hulið
dulúð út af þeirri sömu sögu en ekki
vegna jóganna sem vappa þar á glóandi
kolum og sjá verur frá plánetum úr
nágrenninu. Svona hafa skáldin forritað
mannsandann frá örófi alda uns tilveran
er orðin að þeirri töfraveröld sem hún er
fyrir flesta þá sem aldir eru upp meðal
bókmenntaþjóðar. Sá sem ekki hefur
verið forritaður með þessum hætti væri
vís til að vera ónæmur fyrir fegurð nátt-
úrunnar, rómantík, vinarhótum og öldu-
nið og orð eins og frelsi væru hjóm í
eyrum hans. Hann hellir ekki viskílögg í
glas og setur Miles Davis undir geislann
þegar drunga setur að, sem er kannski
jákvætt út frá heilsusjónarmiði en þeir
sem eru forritaðir vita vel að það er
ágætt að hafa bæði súrt og sætt í hinum
heilaga bikar. Svona hafa skáldin hjálp-
að mér að fylla orð eins og Ísland, Evr-
ópa, hugrekki, frelsi, list og ég djúpri
merkingu sem síðan gefur lífinu gildi.
STUNDUM tala stjórnmálamenn og
afundnir hugsuðir um list eins og að
réttlæta þurfi tilvist hennar með hag-
fræðilegum útreikningum. Á degi
bókarinnar finnur þetta fólk kjörið til-
efni til að líta upp úr Exel-skjölunum
og gleyma sér við það sem mestan hag
gefur.
Mikilvægasta vinna veraldarsögunnar
Simon Cowell sagði í þætti James Corden, The
Late Late Show, á fimmtudag að hann hefði
vitað í nokkrar vikur að Zayn Malik vildi
hætta í strákasveitinni One Direction. „Ég
vissi að þetta myndi gerast, ef ég á að vera
hreinskilinn. Við höfðum talað saman og hann
sagði mér að hann væri ekki hamingjusamur og
vildi hætta. Ég reyndi að biðja hann um að
halda áfram, en hann var búinn að fá nóg
og þegar fólk er búið að ákveða sig þá er
ekki hægt að breyta skoðun þess,“ sagði
Cowell, en Malik yfirgaf bandið á miðju
tónleikaferðalagi þann 25. mars síðastlið-
inn. „Ég viss að strákunum myndi bregða
að heyra þessar fréttir, svo ég reyndi að
gera allt sem í mínu valdi stóð til þess að
láta þeim líða vel.“ Þeir fjórir sem eftir eru
vinna nú að gerð fimmtu plötu sveitarinn-
ar. „Ég er stoltur af þeim og held að þetta
verði besta platan þeirra til þessa,“ sagði
Cowell að lokum. - asi
Vissi að hann ætlaði að hætta
Reyndi að telja Zayn Malik á að halda áfram með One Direction.
STOLTUR Simon Cowell hefur tröllatrú á strákunum í
One Direction.
MALL COP 2 1:50, 3:50, 5:50, 8, 10:10
ÁSTRÍKUR 2D 1:50, 4 - ÍSL TAL
ÁSTRÍKUR 3D 6 - ÍSL TAL
AUSTUR 8, 10
FAST & FURIOUS 7 7, 10
LOKSINS HEIM 2D 1:50, 4 - ÍSL TAL
Tilboð í bíó. Gildir á allar sýningar merktar með rauðu.
KRINGLUNNI
SPARBÍÓ
AKUREYRI
KEFLAVÍK
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
TOTAL FILM
CHICAGO SUN-TIMES
Í
Save the Children á Íslandi