Fréttablaðið - 18.04.2015, Blaðsíða 68
| ATVINNA |
Sviðsstjóri
akstursþjónustu
Strætó
Strætó bs. og framkvæmdaráð um úrbæt-
ur á ferðaþjónustu fyrir fatlað fólk auglýsa
eftir stjórnanda til að veita ferðaþjónustunni
forstöðu. Ferðaþjónustan er rekin samkvæmt
samningum við sveitarfélög á höfuðborgar-
svæðinu.
Hlutverk sviðsstjórans er að sjá um og bera
ábyrgð á faglegum og fjárhagslegum rekstri
ferðaþjónustunnar. Sviðsstjórinn ber ábyrgð á
ferðaþjónustunni og framkvæmd þjónustunn-
ar. Hann starfar í umboði framkvæmdaráðs
ferðaþjónustu fatlaðra innan Strætó bs., en
framkvæmdaráðið er að endurskipuleggja og
móta starfsemina og reksturinn.
Helstu verkefni
• Ábyrgð á rekstri og þjónustu ferðaþjón-
ustunnar.
• Dagleg skipulagning ferðaþjónustu fatlaðs
fólks, sem þjónar tæplega 2.000 notendum
á höfuðborgarsvæðinu.
• Ábyrgð á samningum við verktaka sem
sinna akstursþjónustu, en reksturinn byggir
á þjónustu tæplega 18 verktaka sem eru
með um 100 bifreiðar í rekstri fyrir ferða-
þjónustuna.
• Rekstur og þróun upplýsingakerfis sem
nýtt er fyrir ferðaþjónustuna.
• Samskipti við velferðarsvið sveitarfélaga á
höfuðborgarsvæðinu sem bera ábyrgð á
fyrirkomulagi þjónustunnar, þjónustustigi
og verðlagningu.
• Gerð fjárhagsáætlana og uppgjörs ferða-
þjónustunnar bæði gagnvart notendum,
akstursaðilum og sveitarfélögum.
Menntun og hæfniskröfur
• Háskólagráða sem nýtist í starfi.
• Árangursrík reynsla af stjórnun.
• Leiðtogahæfni og liðsheildarhugsun.
• Styrkur í mannlegum samskiptum
og þjónustulund.
• Sjálfstæði í vinnubrögðum.
• Reynsla af verkefnastjórnun, gæða stjórnun
og rekstri upplýsingakerfa.
Um ferðaþjónustu fatlaðs fólks
Þjónustan byggir á leiðbeinandi reglum velferðarráðuneytisins fyrir sveitarfélög um ferðaþjónustu fyrir fatlað fólk frá
24. janúar 2012. Reglurnar taka mið af þeim alþjóðlegu skuldbindingum sem íslensk stjórnvöld hafa gengist undir,
einkum samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Í 20. gr. samningsins kemur fram að aðildarríkin skuli
gera árangursríkar ráðstafanir til þess að tryggja að einstaklingum sé gert kleift að fara allra sinna ferða og tryggja
sjálfstæði fatlaðs fólks í þeim efnum, eftir því sem frekast er unnt, meðal annars með því að greiða fyrir því að fatlað
fólk geti farið allra sinna ferða með þeim hætti sem og þegar því hentar og gegn viðráðanlegu gjaldi.
Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Capacent,
www.capacent.is.
Fatlað fólk er hvatt til að sækja um starfið. Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og
kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðum umsóknar og fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni
viðkomandi í starfið. Nánari upplýsingar veita Helga Jónsdóttir (helga.jonsdottir@capacent.is) og Þóra
Pétursdóttir (thora.petursdottir@capacent.is) hjá Capacent ráðningum.
Við óskum eftir í fullt starf:
Faglærðum bifvélavirkja / vélvirkja eða ófaglærðum manni
vönum viðgerðum vörubíla og vinnuvéla. Viðkomandi þarf
að hafa rafsuðukunnáttu og geta unnið sjálfstætt, vera
reglusamur og eiga gott með mannleg samskipti.
Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Frekari upplýsingar veitir Guðmundur í síma 899-6810.
Umsóknir skulu sendar á mummi@vvehf.is.
Waldorfskólinn Lækjarbotnum og
Waldorflleikskólinn Ylur í
Lækjarbotnum
óska eftir leikskóla- og grunnskólakennara til starfa
næsta haust. Kynni af Waldorfuppeldisfræði eru æskileg.
Í Lækjarbotnum er boðið upp á samfellt skólastig 2-16 ára
barna og byggir starfið á uppeldisfræði Rudolf Steiner.
Jöfn áhersla er lögð á verklegt, listrænt og bóklegt nám.
Í skólanum eru um 80 börn við leik og störf.
Skólinn er staðsettur 10 km austur af Árbæ í fallegum dal
með ævintýralegu umhverfi.
Umsóknarfrestur er til 1. júní og öllum
umsóknum verður svarað eftir þann tíma.
Umsóknir og fyrirspurnir sendist á
waldorf@simnet.is (grunnskóli) og
ylur@simnet.is (leikskóli)
18. apríl 2015 LAUGARDAGUR18