Fréttablaðið - 18.04.2015, Side 96

Fréttablaðið - 18.04.2015, Side 96
18. apríl 2015 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 52TÍMAMÓT „Við viljum finna jákvæða fleti í sam- skiptum þjóðanna og munum standa fyrir fjölbreyttri dagskrá í tilefni af 400 ára minningu Spánverjavíganna,“ segir Ólafur J. Engilbertsson, formað- ur Baskavinafélagsins á Íslandi sem var stofnað árið 2012. Um 40 meðlimir eru í félaginu en tilgangur þess er að rækta samskipti Íslendinga og Baska og efla rannsóknir á tengslum þjóðanna. Árið 1615 átti sér stað voðaatburður á Vestfjörðum þegar rúmlega 30 bask- neskir sjómenn voru myrtir hér á landi. „Hópur Baska kom hér til lands um haustið 1615 eftir að skip þeirra braut á hafís. Þeir fengu bát lánaðan í Jökul- fjörðum til að komast burt sem þeir voru ásakaðir um að hafa stolið. Þetta var á þeim tíma sem sjórán ógnuðu fólki sem og á tíma einangrunarverslunar Dana- konungs,“ segir Ólafur. Mennirnir 32 sem komu á land voru dæmdir réttdræp- ir þar sem þeir voru taldir hættulegir og ásakaðir um stuld. Ari Magnússon sýslumaður og menn hans myrtu menn- ina og aðeins einn sjómannanna lifði af og komst undan. Nöfn mannanna sem létust eru að mestu óþekkt en fjallað var um atburð- inn í þeim tilgangi að réttlæta aðfarirn- ar. Basknesku hvalveiðimönnunum var lýst sem blóðþyrstum sjóræningjum, þjófum og nauðgurum. „Forlagið gefur nú út bók á íslensku, ensku, spænsku og basknesku sem byggir á frásögn Jóns lærða Guðmundssonar. Þar gagnrýnir hann gjörðir Ara Magnússonar og ver Baskana fyrir ásökunum um illt fram- ferði. Vegna þessara skrifa var Jón dæmdur í útlegð,“ segir Ólafur. Til minningar um þennan atburð mun félagið meðal annars standa fyrir tón- leikum í Salnum í Kópavogi á sunnu- daginn. Þar kemur baskneska þjóðlaga- sveitin Oreka TX fram ásamt Steindóri Andersen, Hilmari Erni Hilmarssyni, Páli Guðmundssyni og strengjasveit, en Ólafur segir að þar verði til dæmis spil- að á ævafornt baskneskt hljóðfæri. Í Þjóðarbókhlöðunni mun fara fram ráðstefna þar sem meðal annars verður fjalla um hvalveiði Baska fyrr á öldum og samskiptin við Íslendinga. „Eftir að hvalveiði brást við Nýfundnalandi leit- uðu Baskar hingað og áttu í miklum sam- skiptum við Íslendinga. Til að mynda hefur verið varðveitt orðasafn sem var skrifað um blendingsmál sem varð til í samskiptum þjóðanna,“ segir Ólafur. Bæði innlendir og erlendir fræðimenn munu flytja erindi á ráðstefnunni. Á miðvikudaginn verður síðan afhjúp- aður minnisskjöldur á Hólmavík. „Þar verður farið í vettvangsferð, síðan farið með sjóferðabæn og börn á leikskólanum munu syngja,“ segir Ólafur. Farandsýn- ing mun ferðast um landið í sumar með teikningum Guillermo Zubiaga. - ag Vilja rækta samskipti Íslendinga og Baska Baskavinafélagið á Íslandi stendur fyrir fj ölbreyttri dagskrá til að minnast þess að 400 ár eru frá Spánverjavígunum þar sem baskneskir sjómenn voru myrtir hér á landi. VILJA EFLA RANNSÓKNIR Á TENGSLUM ÞJÓÐANNA Ólafur segir þjóðirnar eiga ríka sögu og að það verði meðal umræðuefna á ráðstefnunni í Þjóðarbókhlöðunni. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Glasgow, eitt elsta og mesta stórhýsi í Reykjavík, brann þennan dag árið 1903. Það stóð við Vesturgötu 5a. Þrjátíu manns bjuggu í húsinu þegar eldur- inn kom upp. Allir björguðust, sumir með naumindum, en allt annað brann inni, utan peninga og skjala breska konsúlsins sem var bjargað með snarræði. Sjö smiðir höfðu verkstæði í húsinu. Bærinn Vigfúsarkot, sem stóð vestan við Glasgow, brann einnig. Glasgow var fjörutíu ára gamalt hús. Það hafði P.L. Henderson byggt á Höltersbæjarlóð og sett þar upp verslunina Glasgow. Hún varð gjaldþrota árið 1862 og allur búðarvarningur var seldur á uppboði. Egill Egilsson kaup- maður eignaðist Glasgow árið 1872. Í húsinu var salur sem rúmaði 200 manns í sæti og þar voru oft haldnar samkomur. Síðar var húsinu breytt og herbergjum fjölgað. Einar Benediktsson skáld átti Glasgow um tíma. ÞETTA GERÐIST: 18. APRÍL 1903 Eitt stærsta hús borgarinnar brennur Útfararþjónusta í 20 ár Hinrik Valsson Svanhildur Eiríksdóttir Gísli G. Guðmundsson Vistvænar íslenskar kistur, krossar og duftker Hinrik: Sími 892 0748 / Gísli: Sími 482 4300 Þjónusta allan sólarhringinn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir, afi og langafi, STEFÁN SKAFTASON fv. yfirlæknir og prófessor, lést á heimili sínu 9. apríl. Útförin fer fram frá Digraneskirkju mánudaginn 20. apríl kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Minningarsjóð líknardeildar og heimahlynningar í Kópavogi eða UNICEF á Íslandi. Maj Skaftason Hauður Helga Stefánsdóttir Hafberg Þórisson Anna Marie Stefánsdóttir Guðni Ragnar Björnsson Jóhann Stefánsson Hanna-Maria Kauppi barnabörn og barnabarnabörn. Útfararþjónusta síðan 1996 Hjartans þakkir fyrir hlýhug og samúð við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar og tengdaföður, VALDIMARS TÓMASSONAR Suðurtúni 19, Álftanesi. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Neskirkju. Guðrún Júlíusdóttir Sólborg Valdimarsdóttir Einar Ingi Valdimarsson Alda Ingibergsdóttir Þórarinn Valdimarsson Veronica Valdimarsson Guðrún Sigríður Loftsdóttir Skarphéðinn Þór Hjartarson stjúpbörn, tengdafaðir, barnabörn og langafadrengur. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og bróðir, VALDIMAR LÁRUS GUÐMUNDSSON húsa- og skipasmiður, frá Skagaströnd, lést laugardaginn 4. apríl síðastliðinn. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju mánudaginn 20. apríl, kl. 13.00. Erla Valdimarsdóttir Atli Gilbert Sigurðsson Erlendur G. Valdimarsson Óskar Valdimarsson Unnur Margrét Unnarsdóttir Silja Þorbjörg Valdimarsdóttir barnabörn og systkini hins látna. Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð, kveðjur og hlýhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, ÓFEIGS PÉTURSSONAR rafvirkja. Svanhvít Ragnarsdóttir Aðalheiður Ófeigsdóttir Guðbjörg Ófeigsdóttir Margrét Ófeigsdóttir Magnús Jóhannsson Jakob Viðar Ófeigsson Elfa Kristinsdóttir afabörn og langafabörn. Bróðir minn, GÍSLI ODDGEIR FRIÐJÓNSSON Norðurbrún 1, Reykjavík, lést á hjartadeild Landspítalans við Hringbraut 4. apríl. Útförin fór fram í kyrrþey 14. apríl. Þórarinn Marteinn Friðjónsson Elskulegur sonur okkar og bróðir, HARALDUR SVEINN EYJÓLFSSON Stigahlíð 10, Reykjavík, lést að morgni 15. apríl. Útför hans verður gerð frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 28. apríl kl. 15.00. Eyjólfur Þ. Haraldsson Guðbjörg Edda Eggertsdóttir Eggert Eyjólfsson Systir okkar, MARGRÉT MAGNÚSDÓTTIR KLAPA (MADDÍ) lést á heimili sínu í Willingboro, New Jersey, í Bandaríkjunum þann 9. mars sl. og fór útförin þar fram með fjölskyldu hennar. Þorsteinn Magnússon, Bjarni Magnússon og fjölskyldur
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.