Fréttablaðið - 19.12.2015, Blaðsíða 130
Veturinn í stóru leik-húsum höfuðborgar-innar fór heldur brösu-lega af stað. Þörf er á miklu meiri metnaði og alúð að hálfu stóru
leikhúsanna tveggja þegar kemur
að nýjum íslenskum leikverkum.
Þjóðleikhúsið frumsýndi tvö ný
verk sem hvorugt var nægilega
vel unnið en Sókrates í Borgar-
leikhúsinu stóð algjörlega undir
væntingum. Í hjarta Hróa hattar
var endurgerð á eldra verki og leik-
gerðir upp úr bókmenntaverkum
eru allt annars eðlis en virðast hafa
ákveðinn forgang, sérstaklega í
Þjóðleikhúsinu. Þetta verður að
laga. Þó skal nefna að Borgarleik-
húsið stendur fyrir vinnusmiðju
leikskálda með vorinu og sam-
kvæmt heimildum er Jón Atli
Jónasson að vinna nýtt verk fyrir
Þjóðleikhúsið.
Karlar um karla
Þjóðleikhússtjóri, Ari Matthíasson,
hefur nú þegar tilkynnt þrjú ný
verkefni fyrir komandi leikár en
búið er að fjárfesta í Gott fólk eftir
Val Grettisson, Vertu úlfur: Wargus
esto eftir Héðin Unnsteinsson
og nú síðast Mamma klikk! eftir
Gunnar Helgason. Þrjár leikgerðir
eftir bókum karlkynshöfunda. Í
Þjóðleikhúsinu mátti finna eitt
stakt leikverk eða leikgerð eftir
konu fyrir jól, en það var hið ágæta
samvinnuverkefni með Edda Pro-
ductions 4:48 Psychosis eftir Söruh
Kane, þar mátti einnig finna kven-
kyns þýðanda sem og í Hleyptu
þeim rétta inn. Þar með er talningu
lokið, á öllu leikárinu, líka því
næsta eins og staðan er núna.
Nýju leikritin Flóð eftir Björn
Thors og Hrafnhildi Hagalín og
Auglýsing ársins eftir Tyrfing
Tyrfingsson verða sýnd í Borgar-
leikhúsinu á nýju ári. Í Tjarnarbíói
má síðan sjá Old Bessastaðir eftir
Sölku Guðmundsdóttur og Gripa-
húsið eftir Bjartmar Þórðarsson.
Útvarpsleikhúsið hefur stutt dyggi-
lega við ný íslensk leikrit en Viðar
Eggertsson lét nýlega af störfum
sem útvarpsleikhússtjóri eftir átta
ár í starfi og Þorgerður E. Sigurðar-
dóttir hefur nú tekið við, einungis
önnur konan sem gegnir starfinu.
Grín og Píla Pína
MAK og Leikfélag Akureyrar
virðast vera að einbeita sér meira
að tónleikahaldi frekar heldur
en leiksýningum. Þetta er grín,
án djóks eftir Halldór Halldórs-
son og Sögu Garðarsdóttur, sem
einnig léku aðalhlutverkin, var
þó fínasta tilraun til að blanda
saman uppistandi og leikhúsi en
hópurinn sýndi fyrir fullu húsi fyrir
norðan og einu sinni í Hörpunni.
Býr Íslendingur hér? kom og fór
en Grýla skemmti börnunum yfir
jólin. Trúðasýningin Helgi magri
byggð á verki Matthíasar Jochums-
sonar verður sýnd með vorinu og
allar deildir MAK sameinast í fyrsta
skipti til að sýna Pílu Pínu. Jón Páll
Eyjólfsson er auðvitað að stíga sín
fyrstu skref sem leikhússtjóri en
þess væri óskandi að dagskráin
væri þéttari og fjölbreyttari. Þá ber
líka að nefna sérstaklega starfsemi
bæði Frystiklefans á Rifi og Act
Alone á Suðureyri sem standa fyrir
öflugu starfi á landsbyggðinni.
Dans og Tjarnarbíó
Síðastliðin misseri hefur hefð
skapast fyrir því að LÓKAL og
Reykjavík Dance Festival, sem
starfa nú saman, hefji sviðslista-
vertíðina og var dagskráin í ár
fjölbreytt. Dansflóran er í miklum
blóma og þá sérstaklega í formi
sjálfstæðra sýninga. The Valley eftir
Rósu Ómarsdóttur og Ingu Huld
Hákonardóttur var virkilega áhuga-
vert og skartaði gríðarlega metn-
aðarfullri hljóðmynd eftir Svein-
björn Thorarensen, betur þekktur
sem Hermigervill. Reykjavík Dance
Festival hefur verið að gera góða
hluti og er flottur vettvangur fyrir
tilraunaverk, þó að gæðin fari
stundum fyrir ofan garð og neðan.
Svipaða sögu má segja um LÓKAL
Betur má ef duga skal í íslensku leikhúsi
Nú þegar árinu fer að ljúka er vert að skoða fyrri helming sviðslistaársins, meta
stöðuna og horfa til nýrra verkefna á komandi ári. Sigríður Jónsdóttir, gagnrýnandi
Fréttablaðsins, reifar hér stöðuna í íslensku leikhúslífi.
Saga Garðarsdóttir og Halldór Halldórsson í Þetta er grín, án djóks hjá LA.
og Tjarnarbíó en bæði eru gríðar-
lega mikilvæg sjálfstæðu senunni.
Íslenski dansflokkurinn virðist hafa
fengið nýjan kraft með ráðningu
Ernu Ómarsdóttur og verður
spennandi að sjá þróun flokksins.
Blessuð börnin
Lítið fór fyrir frumsýningum á nýjum
verkum fyrir börn í Reykjavík, en
þær sýningar sem voru í boði voru
nær eingöngu endursýningar frá
fyrri leikárum. Þetta er mikil synd og
nauðsynlegt að sinna þessum sviðs-
listaflokki miklu betur. Þó má nefna
að hin vel heppnaða Í hjarta Hróa
hattar hentar vel fyrir eldri börn
og Umhverfis jörðina á 80 dögum
verður frumsýnd á nýju ári í Þjóðleik-
húsinu sem og Made in Children í
Borgarleikhúsinu. Íslenski dansflokk-
urinn bryddar upp á danssýningu
fyrir börn í janúar með nafninu Óður
og Flexa halda afmæli.
Leikarar og sýningar
Þegar upp er staðið er Halldóra
Geirharðsdóttir enn þá fremst
á meðal jafningja á sviðinu en
hún var virkilega góð sem Írena
í Mávinum, lævís og bráðfyndin.
Að sama skapi sýndi Björn Thors
afskaplega góðan og yfirvegaðan
mótleik í sömu sýningu sem yfir-
lætisfulli rithöfundurinn B.T. og í
Þjóðleikhúsinu stal Björn Hlynur
Haraldsson senunni í annars ójafnri
Heimkomu. Innkoma Pálma
Gestssonar í gervi Gylfa Ægissonar
í Spaugstofusýningunni Yfir til þín
og Halldór Halldórsson í hlutverki
ónefnds einræðisherra í Þetta er
grín, án djóks eiga heiðurinn af
bestu hlátursköstum haustsins.
Sýningar í leikstjórn Mörtu
Nordal eru ávallt eftirtektarverðar
en heimildasýningin Nazanin var
mikilvægt innlegg í samtímaum-
ræðuna varðandi flóttafólk. En sam-
starf Yönu Ross og leikmyndahönn-
uðarins Zane Pihlström var í öðrum
klassa; Mávurinn var metnaðarfull
sýning þar sem aðstandendur voru
óhræddir við að taka áhættu og
uppskáru eftir því. Gott samstarf
var einnig áberandi í sýningunni
Sókrates sem var tilraunakennd og
hjartnæm en líka virkilega vel leik-
stýrt af Rafael Bianciotto og Bergi
Þór Ingólfssyni. Tónlist Kristjönu
Stefánsdóttur var líka einstaklega
skemmtileg. Af nýlegra sviðslista-
fólki sem vert er að fylgjast með eru
Sigurður Þór Óskarsson og Þuríður
Blær Jóhannsdóttir efst á blaði.
Vorsöngleikirnir eru í vinnslu
þessa dagana en Mamma Mia! er
eftir breskri forskrift sem hefur
þjónað Borgarleikhúsi vel hingað
til, bæði Mary Poppins og Billy
Elliot voru af svipuðu sauðahúsi.
Þjóðleikhúsið stólar á Djöflaeyjuna
eftir Einar Kárason, þó að enginn
handritshöfundur hafi verið stað-
festur þá mun Bragi Valdimar Skúla-
son úr Baggalút skrifa söngtexta.
Í byrjun desembermánaðar stóð
Borgarleikhúsið, í samvinnu við
Rauða krossinn og sýnt í beinni
útsendingu á RÚV, að atburði undir
nafninu Opnum okkur þar sem
málefni flóttafólks voru til umræðu.
Haft var eftir Kristínu Eysteinsdótt-
ur borgarleikhússtjóra: „Við erum
alltaf að skoða í leikhúsinu hvernig
við getum brugðist við því sem er að
gerast í samfélaginu.“ Spyrja má af
hverju Þjóðleikhúsið stendur ekki
að svipuðum verkefnum í krafti
sínu sem leikhús þjóðarinnar en
umræður þeirra eftir 6. sýningu í
húsinu eru skref í rétta átt.
Bjart fram undan
Nóvemberlægðina mátti ekki ein-
ungis finna utandyra heldur einnig í
leikhúsunum þar sem flest hús létu
sér áframhaldandi sýningar nægja
og miklu púðri eytt í að koma jóla-
sýningunum á svið. Er ekki kominn
tími til að endurskoða skipulagið
örlítið?
Á milli jóla og nýs árs færist
kraftur í leikinn þegar Sporvagninn
Girnd eftir Tennessee Williams í
leikstjórn Stefáns Baldurssonar og
Njála í nýrri leikgerð Mikaels Torfa-
sonar og Þorleifs Arnar Arnarssonar,
sem einnig leikstýrir, munu berjast
um áhorfendur í stóru húsunum.
Þegar öllu er á botninn hvolft
verður fyrri helmingur leikársins
að teljast til ákveðinna vonbrigða
þó að nokkrar skínandi sýningar
á borð við Sókrates, Mávinn og
Í hjarta Hróa hattar standi upp
úr. Það verður spennandi að sjá
hvað nýja árið ber í skauti sér
en vonandi verður metnaður og
frumleiki í fyrirrúmi.
Sigríður Jónsdóttir
Trúðasýningin Sókrates í Borgarleikhúsinu stóð undir væntingum og vel það. Tilraunakennd, hjartnæm , skemmtileg og virkilega vel heppnuð sýning.
Björn Hlynur, hér lengst til vinstri, fór á kostum í Heimkomunni eftir Pinter.
Það Verður SpeNN-
aNdi að SJá hVað
NýJa árið ber í Skauti Sér eN
VoNaNdi Verður metNaður og
Frumleiki í Fyrirrúmi.
1 9 . d e s e m b e r 2 0 1 5 L A U G A r d A G U r94 m e n n i n G ∙ F r É T T A b L A ð i ð