Fréttablaðið - 19.12.2015, Blaðsíða 8
– fyrst og fremst ódýr!
18%
afsláttur v
2,9
kg
*GILDIR
Á MEÐAN
BIRGÐIR
ENDAST
Fylgstu með
Jóladagatali Krónunnar.
Ný tilboð til jóla.
Fylgstu með Jóladagatalinu á facebook síðu Krónunnar
3993kr.dósin
Verð áður 4859 kr. dósin
Mackintosh dós, 2,9 kg.
*Gildir 19. og 20. desember.
Iðnaður Kísilverð hefur lækkað
nokkuð mikið frá því í mars síðast-
liðnum. Í kynningarriti Stefnis hf.
um fjárfestingarmöguleika í kísil-
veri Thorsil frá því í nóvember er
birt verðspá sem sýnir mun hærra
verð á kísli en þekkist í dag.
Í skýrslunni, sem Fréttablaðið
hefur undir höndum og var dreift
á fundi með lífeyrissjóðum, er sagt
að verðið á kísli sé um 2.600 doll-
arar á tonnið til Evrópu. Er þetta
gert eftir langtímaspá erlends fyrir-
tækis sem heitir CRU frá því í mars.
Framkvæmdastjóri Stefnis segir
skýrsluna hafa verið uppfærða
með nýrri gögnum.
Stefnir hélt kynningu fyrir fjár-
festa í nóvember síðastliðnum og
virðist sem gamla verðspáin hafi
verið lögð fyrir fjárfestana. Þar er
verðið mun hærra en markaðsverð
kísils í dag. Í skýrslu sama fyrir-
tækis, CRU, dagsettri 15. desember
síðastliðinn, kemur fram að sex
vikna meðalverð á kísli nái ekki
2.100 dollurum.
„Hlutverk Stefnis í Thorsil-verk-
efninu hefur verið að leggja mat
á fjárfestinguna fyrir hönd okkar
stærstu viðskiptavina, sem eru líf-
eyrissjóðir og tryggingafélög, og
undirbúa verkefnið á þann hátt
að það sé tækt til ákvörðunartöku
hjá þessum aðilum,“ segir Flóki
Halldórsson, framkvæmdastjóri
Stefnis.
Flóki segir að leitað hafi verið til
fyrirtækisins CRU til að fá frá þeim
langtímaspá fyrir þær afurðir sem
Thorsil muni selja.
„Við létum fyrst gera slíka spá í
mars en létum uppfæra hana núna
í október. Allar tölur í módeli hafa
verið uppfærðar og líka grafið í
kynningunni. Fjárfestar sem hafa
fengið kynninguna með gömlu
spánni hafa fengið senda nýja spá,“
segir Flóki.
Nú vinnur Thorsil að því að fá
til sín nýja fjárfesta. Fjármögn-
unin verður í heildina 295 millj-
ónir dollara. Núverandi hluthafar
munu verða með um 15-25 millj-
ónir dollara. Nýir hluthafar koma
inn með 65 til 95 milljónir og það
sem upp á vantar, um 200 milljónir
dollara, verur fengið að láni.
Búið er að semja um afhend-
ingaráætlun á 67 MW raforku frá
Landsvirkjun og eru 23,5 MW
háð byggingu Hvammsvirkjunar.
Samningurinn er til átján ára. Einn-
ig hefur samningur verið gerður
við HS Orku um 32 MW og verður
hægt að fá 12 MW til viðbótar frá
HS Orku ef Hvammsvirkjun verður
ekki að veruleika.
Búið er að gera sölusamninga um
ríflega 80 prósent af ársframleiðslu
Thorsil og því verður fyrirtækið
ekki eins berskjaldað gagnvart
tímabundnum lækkunum og áður.
„Samkvæmt CRU eru verð eins
og þau eru í dag í línu við spána
frá því í október og gera þeir ráð
fyrir því í spá sinni að verð fari að
hækka upp úr miðju næsta ári,“
segir Flóki. sveinn@frettabladid.is
Kísilverð hefur lækkað
mikið það sem af er ári
Spá matsfyrirtækis um kísilverð hefur lækkað mikið frá því í mars í fyrra. Kynn-
ingarrit um kísilverksmiðjuna Thorsil sem fjárfestingarkost gerir ráð fyrir að
verð fari ekki að hækka fyrr en á miðju næsta ári.
Núverandi eigendur
Thorsil
northsil ehf. (60,5%)
l John Fenger
l Hákon Björnsson
l Traðarsteinn
l Miranda ehf.
l 0105 Holding ehf.
l P 126 ehf.
l Uggi ehf.
l Björgvin L. Gunnlaugsson
l ET-Sjón ehf.
l Hjúki ehf.
l Stefán Ingimar Bjarnason
l Kristján Kristjánsson
l Þórir Kristjánsson
Strokkur Silicon ehf. (39,5%)
l Masada ehf.
l Samana CapitalST
l Holding ehf.
Miði fyrir tvo á
ABBA söngleikinn sem
enginn má missa af
Mamma Mia
12.900 kr.
Miði fyrir tvo á Njálu
og eitt eintak af
Brennu-Njáls sögu.
Njála
12.200 kr.
OPIÐ TIL 22
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Gjafakort
Borgarleikhússins
Gjafakort fyrir tvo
og ljúffeng leikhúsmáltíð
Leikhúskvöld fyrir sælkera
12.500 kr.
Sérstök
jólatilboð
DómSmál Karlmaður á áttræðis-
aldri var dæmdur í átján mánaða
fangelsi fyrir kynferðisbrot í héraðs-
dómi Reykjaness í gær. Honum var
gefið að sök að hafa nauðgað konu
sem var í nuddi og heilun á heimili
hans er hún lá á nuddbekk aðeins
íklædd einnota nærbuxum. Það
gerði hann með því að beita hana
ofbeldi eða ólögmætri nauðung
en hann setti fingur inn í leggöng
hennar og viðhafði við hana kyn-
ferðislegt tal, auk þess sem hann
kyssti hana á munninn.
Maðurinn játaði brot sitt bæði
hjá lögreglu og fyrir dómi. Í dómi
Hæstaréttar segir að hann iðrist
gjörða sinna og verði að virða
það honum til málsbóta. Þá hefur
honum aldrei verið gerð refsing
áður. Hann hafi hins vegar misnot-
að sér traust sem konan bar til hans
þegar hún sótti til hans þjónustu og
hefur brotið haft mikil áhrif á and-
lega heilsu hennar.
Þá var manninum gert að greiða
konunni 800.000 krónur í miska-
bætur sem og málskostnað. – ngy
Nuddari á áttræðisaldri nauðgaði konu
Maðurinn nauðgaði konu sem var í
nuddi og heilun á heimili hans.
FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
Fjárfestar sem hafa
fengið kynninguna
með gömlu spánni hafa
fengið senda nýja spá.
Flóki Halldórsson
framkvæmdastjóri Stefnis
Kísilverksmiðja Thorsil verður reist í Helguvík. FRÉTTABLAÐIÐ/ERnIR
1 9 . D e S e m b e r 2 0 1 5 l a u G a r D a G u r8 f r é t t I r ∙ f r é t t a b l a ð I ð