Fréttablaðið - 21.03.2016, Blaðsíða 4
Beltone Legend™
Enn snjallara
heyrnartæki
Nýja Beltone Legend™ heyrnartækið tengist þráðlaust
beint í iPhone, iPad og iPod touch. Komdu í ókeypis
heyrnarmælingu og fáðu heyrnartæki
lánað til reynslu.Bel
to
ne
L
eg
en
d
ge
ng
ur
m
eð
iP
ho
ne
6
s
og
e
ld
ri
ge
rð
um
, i
Pa
d
A
ir,
iP
ad
(4
. k
yn
sl
óð
),
iP
ad
m
in
i m
eð
R
et
in
a,
iP
ad
m
in
i
og
iP
od
to
uc
h
(5
. k
yn
sl
óð
) m
eð
iO
S
eð
a
ný
rr
a
st
ýr
ik
er
.
A
pp
le
, i
Ph
on
e,
iP
ad
o
g
iP
od
to
uc
h
er
u
vö
ru
m
er
ki
s
em
ti
lh
ey
ra
A
pp
le
In
c,
s
kr
áð
í
Ba
nd
ar
ík
ju
nu
m
o
g
öð
ru
m
lö
nd
um
.
Kringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is
HEYRNARSTÖ‹IN
1
2
2
14
5 15
fulltrúar
1
224
8
623
fulltrúar
Hvernig liti borgarstjórn út í dag ef
hún væri með með 23 fulltrúa?
✿ Fjölgun borgarfulltrúa í Reykjavík úr 15 í 23
Að öllu óbreyttu mun borgarfulltrúum í Reykjavík fjölga um átta árið 2018. Grófir útreikningar
Fréttablaðsins sýna aukinn launakostnað upp á meira en 56 milljónir á ári.
Mismunur = 56.688.096 kr. á ári
Öll borgarstjórnin í dag:
15
134.216.820 kr.
Öll borgarstjórn eftir breytingar:
23
190.904.916 kr.
Samkvæmt sveitarstjórnarlögum frá
árinu 2011 mun Reykjavíkurborg
fjölga borgarfulltrúum sínum í 23 hið
minnsta en þeir eru 15 í dag.
Fjöldi sveitarstjórnarfulltrúa í
Reykjavík hefur verið nær óbreyttur
frá árinu 1908 þegar íbúar Reykja-
víkur voru 11 þúsund en nú eru
þeir orðnir fleiri en 120 þúsund. Ein
undan tekning er á þessu; kjörtíma-
bilið 1978 til 1982 var borgarfulltrú-
um fjölgað í 21 en því var breytt strax
á næsta kjörtímabili. Verkefnum
sveitar stjórnarfulltrúa hefur fjölgað
mjög undanfarna áratugi og telja
margir að fjölga þurfi í hópnum.
Þá er gjarnan sagt að á bak við
hvern fulltrúa þurfi að vera ákveðinn
fjöldi íbúa. Í Reykjavík í dag eru um
8.100 íbúar á bak við hvern fulltrúa
en væru um 5.300 eftir breytingar. Til
samanburðar eru um 5.300 manns á
bak við hvern alþingismann.
Hráir útreikningar Fréttablaðsins
á fjölgun borgarfulltrúa sýna að
launakostnaður vegna borgarfull-
trúa myndi aukast um 56 milljónir
á ári miðað við núverandi launakjör
þeirra. Þá er ekki talinn með kostn-
aður vegna skrifstofuaðstöðu, tölvu-
búnaðar og þess háttar né álag og
laun vegna nefndarformennsku. Þá
ber þess að geta að inni í útreikning-
unum eru laun fyrsta varaborgarfull-
trúa hvers flokks en samkvæmt sam-
þykkt um kjör borgarfulltrúa fá fyrstu
varamenn 70 prósent af launum
borgarfulltrúa.
Þó kemur það fram í greinargerð
með frumvarpinu að fjölgunin komi
hugsanlega ekki til með að bera með
sér kostnaðarauka. „Reynslan sýnir
að í Reykjavík eru fleiri einstaklingar
í reynd virkir sem borgarfulltrúar
en þeir 15 sem kosnir eru. Almennt
hafa varamenn einnig mjög ríka
aðkomu að stjórn borgarinnar og
skipa iðulega fundi við umræðu
um málefni sem þeir þekkja vel eða
hefur verið falið að kynna sér. Gera
má ráð fyrir að virkir borgarfulltrúar
séu í reynd nær 30 en 15,“ segir í
greinargerðinni.
Þrátt fyrir að fjölgunin liggi fyrir
er hún ekki óumdeild. Fyrir Alþingi
liggur frumvarp Sigríðar Á. Andersen
sem kveður á um að fjölgunin verði
dregin til baka enda óþarfi að lög-
gjafinn þvingi Reykjavíkurborg til að
fjölga borgarfulltrúum með sveitar-
stjórnarlögum.
Halldór Halldórsson, oddviti Sjálf-
stæðisflokksins í borgarstjórn Reykja-
víkur, er hlynntur frumvarpi Sigríðar.
„Ég styð það að það sé meira í
sjálfsvald sveitarfélagsins sett að
ákveða fjölda borgarfulltrúa, að það
sé ekki fyrirskipun frá Alþingi. Við
höfum lagt það mat á, þangað til að
annað kemur í ljós, að það sé dýrara
að bæta við átta borgarfulltrúum,“
segir Halldór.
Sjálfstæðisflokkurinn óskaði í fyrra
eftir upplýsingum um kostnað við
fjölgun borgarfulltrúa en þær upp-
lýsingar bárust aldrei.
Halldór segir það ljóst að kostnað-
urinn muni aukast ef halda á í sama
kerfi þar sem allir borgarfulltrúar eru
á fullum launum. „Það var ekki þann-
ig áður fyrr og er ekki í neinu öðru
sveitarfélagi á Íslandi.“
Hann nefnir til dæmis borgar-
stjórn Kaupmannahafnar sem telur
55 manns sem eru í hlutastarfi sem
borgarfulltrúar. Þá segir hann starfsá-
lagið ekki þess eðlis að það kalli á
fjölgun fulltrúa.
„Ég tel að borgarfulltrúar komist
ágætlega yfir þetta eins og er, ekki
síst vegna þess að varaborgarfulltrúar
eru í 70 prósent starfi og þá er þetta
dekkað frekar vel,“ segir hann.
Fjölgun fulltrúa gæti kostað
meira en 56 milljónir króna
Að öllu óbreyttu stendur til að fjölga borgarfulltrúum í Reykjavík um átta fyrir næstu sveitarstjórnarkosn-
ingar. Oddviti Sjálfstæðisflokksins vill ekki að Alþingi fyrirskipi fjölda fulltrúa heldur sé það sveitarfélögum
í sjálfsvald sett. Fyrir Alþingi liggur frumvarp um að draga til baka fjölgun borgarstjórnarfulltrúa í Reykjavík.
Á sjötta hundrað einhleypar konur
eignuðust börn. NordicPhotos/Getty
DanmöRk Sífellt algengara er að
einhleypar konur eignist börn í
Danmörku. Tölur frá Hagstofu Dan-
merkur sýna að fæðingum barna,
þar sem faðir er óþekktur, hefur
fjölgað stöðugt frá árinu 2012. Í fyrra
komu 580 börn í heiminn þar sem
börnin voru frjóvguð með tækni-
frjóvgun og mæður voru einstæðar.
Það samsvarar um 1 prósenti af
fæðingum í Danmörku á þeim tíma.
Flestar einhleypu konurnar sem
koma í tæknifrjóvgun eru á bilinu
35-40 ára. – jhh
Einhleypum
mæðrum fjölgar
Tveir karlmenn tilkynntu í gær
að þeir hyggist bjóða sig fram til
embættis forseta Íslands í forseta-
kosningum 25. júní. Annars vegar
Hrannar Pétursson og hins vegar
Guðmundur Franklín Jónsson.
Hrannar er 42 ára gamall félags-
fræðingur. Hann var framkvæmda-
stjóri mannauðs-, markaðs- og lög-
fræðimála hjá fjarskiptafyrirtækinu
Vodafone og talsmaður fyrirtækis-
ins um árabil. Hann starfaði áður
sem upplýsingafulltrúi hjá Íslenska
álfélaginu og fréttamaður í útvarpi
og sjónvarpi.
Guðmundur Franklín Jónsson er
viðskiptafræðingur og fyrrverandi
formaður Hægri grænna. Hann
hefur undanfarin ár haft lögheimili í
Tékklandi en hann segist hafa skráð
lögheimili sitt á Íslandi í síðasta
mánuði.
Tólf manns hafa nú lýst yfir fram-
boði til forseta Íslands, en viðbúið
er að fleiri bætist í hóp þeirra á
næstu dögum. – jhh
Tveir tilkynntu
framboð sín
hrannar Pétursson
Guðmundur
Franklín Jónsson
✿ Samanburður á fjölda íbúa á bak við hvern fulltrúa
Fulltrúum fjölgaði úr 7 í 11 í Garðabæ árið 2014. 5.200 íbúar eru á bak við hvern alþingisþingmann.
1558
7
1339
11
8170
15
5328
23
n Fjöldi fulltrúa n Fjöldi íbúa á bakvið hvern fulltrúa
Garðabær reykjavík
Stefán Rafn
Sigurbjörnsson
stefanrafn@frettabladid.is
Við höfum lagt það
mat á, þangað til að
annað kemur í ljós, að það sé
dýrara að bæta við átta
borgarfulltrúum.
Halldór
Halldórsson,
oddviti sjálf-
stæðismanna í
Reykjavík
2 1 . m a R S 2 0 1 6 m Á n U D a G U R4 F R é t t i R ∙ F R é t t a B L a ð i ð