Fréttablaðið - 21.03.2016, Side 18
Auður Gná Ingvarsdóttir er
lærður innanhússarkitekt frá
Barcelona en þar bjó hún og starf
aði um tíu ára skeið. Eftir að hún
flutti heim til Íslands vann hún
að ólíkum verkefnum þar til hún
stofnaði fyrirtækið Further North
með það í huga að hanna og fram
leiða fylgihluti fyrir heimili.
Hún segir hugmyndina að stofn
un fyrirtækisins hafa blundað í sér
heillengi en kveikjan að stofnun
þess hafi verið ferð hennar norð
ur í Skagafjörð þar sem hún heim
sótti sútunarstöðina sem í dag
heitir Atlantic Leather. „Ég vissi
lítið sem ekkert um sútun skinna
en sá strax að þarna var hráefni
sem væri tilvalið að vinna úr. Það
kom síðan á daginn að Atlantic
Leather er afbragðs fyrirtæki en
næstum allt sem þeir súta er sett
í útflutning en ekki fullunnið hér
heima.“
Auður hóf því að vinna með
lambaskinn og framleiddi í upp
hafi púða og veski. Fyrir tveim
ur árum kynnti hún til sögunnar
spegilinn Eileen á Hönnunarmars
og hefur síðan verið að kynna
nýja liti á honum til sögunnar. „Á
sama tíma fórum við Arnar Fells,
sem er grafískur hönnuður, í sam
starf og úr varð textíllína þar sem
tákn sem tengjast hvítagaldri eru
notuð. Arnar hafði unnið loka
verkefni sitt út frá þessum tákn
um og ég leitaði til hans með sam
starf í huga, einfaldlega af því að
mér fundust táknin sjálf svo falleg
og heillandi. Það að þau séu hluti
af menningararfi okkar er bara
bónus en fyrst og fremst höfðuðu
þau til mín fagurfræðilega. Við
völdum síðan tákn sem á einhvern
hátt teljast vera verndarstafir
fyrir heimili.“
Framúrskarandi Flott
Auður tók þátt í HönnunarMars
fyrr í þessum mánuði og var
ánægð með útkomuna. „Hönnunar
Mars verður betri með hverju
árinu sem líður og það er mjög
gaman að taka þátt. Íslensk hönn
un er að verða svo framúrskarandi
flott og það liggur svo mikill auður
í þessum geira. Að mínu mati þarf
að gera meira til að styðja við
bakið á fólki og fyrirtækjum sem
ákveða að fara út í þennan bransa.
Maður furðar sig t.d. oft á því
hvernig öll þessi flottu skandinav
ísku vörumerki ná oft að verða al
þjóðleg innan fárra ára en það er út
af því að það þykir skynsamlegt að
fjárfesta í hönnun í þessum lönd
um. Við eigum ennþá dálítið langt
í land með að ná þeirri hugsun en
HönnunarMars hjálpar þar veru
lega upp á að sýna alla ástríðuna
og alvöruna sem í þetta er lögð.“
Framundan hjá Auði er að koma
vörulínunni WM í framleiðslu og
sölu en hana kynnti hún á Hönn
unarMars. „Ég er með púða, bæði
úr textíl og leðri, auk þess sem
ég ætla að láta framleiða ullar
teppi og eitthvað slörast þetta yfir
í húsgögn í formi efna til bólstr
unar. Á planinu er líka að komast
á eina sýningu erlendis og finna
hver viðbrögðin eru við mínum
vörum þar.“
Frekari upplýsingar um vörur
Further North má finna á www.
further-north.com og á Facebook.
Allt sem þú þar ...
Gallup, okt.– des. 2015.
íbúa á höfuðborgarsvæðinu
á aldursbilinu 12–80 ára lesa
Fréttablaðið daglega.*
59,9%
Sá öldi myndi fara langt með að fylla
sæti Laugardalsvallar tíu sinnum.
59,9% lesa
Fréttablaðið
29,9% lesa
Morgunblaðið
Endalaust
ENDALAUS
GSM
1817 365.is
Á sama tíma
fórum við Arnar
Fells, sem er grafískur
hönnuður, í samstarf og
úr varð textíllína þar sem
tákn sem tengjast hvíta-
galdri eru notuð.
Púðarnir sem eru á myndinni eru úr nýju seríunni sem heitir WM og ég vann meðal annars með grafíska hönnuðinum Arnari
Fells – þetta eru meðal annars púðar sem saumuð hafa verið á hvítagaldurstákn. MYND/ÍRIS ANN
Hluti af WM línunni, skemill með
áföstu leðurkögri sem einnig hefur
verið notað í sjálfa púðalínuna
2 1 . m a r s 2 0 1 6 m Á N U D a G U r2 F ó l k ∙ k y N N i N G a r b l a ð ∙ h e i m i l i